Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Síða 94

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Síða 94
TIMARIT MALS OG MENNINGAR ckki benl á neinn ákveðinn mann til að taka við ráðherrastarfinn og selja þar með Dönnm sjálfdæmi í málinu. Nú að hálfri öld liðinni er tæpast ágreiningur um það, að enginn hafi verið betri kostum búinn en Hannes til að takast á hendur hið virðu- lega og vandasama embætti. I bókarlok hef- ur Iiannes sem sagt verið skipaður í þessa stöðu, og mun því væntanlega í síðara bind- inu verða rakin á samfelldan hátt stjóm- málasagan eftir 1904. Mun vafalaust mörg- um leika forvitni á að sjá hversu til tekst, því að þar er að ýmsu leyti um óplægðan akur að ræða. Það er eftirtektarvert þegar athuguð er hin snarpa senna milli flokka þessa tíma í hvaða átt blöðin eru að stefna í málflutn- ingi sínum. Nú taka þau að fyllast æsiskrif- um, rógi og svívirðingum í garð andstæð- inganna meira en nokkru sinni fyrr. Þar með var vikið af braut hinna málefnalegu vinnubragða, sem voru einkennandi fyrir Jón Sigurðsson og flesta þá, sem um stjórn- mál rituðu á 19. öld, þótt vissulega væru til undantekningar í þeim efnum. Hér virðist mér ótvírætt mega greina fyrstu sporin á þeirri sorglegu þróunarbraut, sem íslenzkir stjórmnálahöfundar hafa troðið í æ ríkara mæli og náð hefur e. t. v. hámarki á okkar tímum. Bókin um Ilannes Hafstein er hin þokka- legasta að útliti og frágangi, prófarkalestur virðist góður og prentvillur fáar. Ekki verð- ur hnotið um nein umtalsverð mállýti. Fjöldi mynda prýða bókina og eru góðar flestar, en aðrar full daufar og hafa illa prentazt. Skemmtilegt er að sjá málverk og teikningu eftir Ilannes sjálfan, en þær myndir bera þess merki, að honum liefur verið fleira til lista lagt en ljóðagerðin ein. Að einu atriði vil ég loks víkja hér síðast en ekki sízt, sem ég felli mig ekki alls kost- ar við. Höfundur tekur þá stefnu að til- greina ekki nákvæmlega, hvorki neðanmáls né í bókarlok, hvar þær tilvitnanir, sem hann hefur sótt í blöð, bækur eða bréf, er að finna. Hér sýnist mér höfundi hafa orðið á veruleg mistök, sem ég tel ástæðu til að gagnrýna harðlega. Þessi háttur, sem hér er hafður á rýrir gildi verksins sem áreiðan- legs sagnfræðilegs heimildarrits. Hvað sem aðfinnslum líður að öðru leyti, fagna ég því að fá sögu okkar fyrsta inn- lenda ráðherra og vinsæla þjóðskálds. Sú saga liðins tíma skírskotar til nútíðar og er okkur, sem nú lifum, í senn lærdómsríkt fordæmi og eldheit eggjun að standa traust- an vörð um þá heimastjórn, sem fslending- ar aldamótanna áunnu þjóð okkar með harðfylgi og þrautseigju. Einar Laxness. íslenzkar þjóðsögur og ævintýri Safnað hefur Jón Árnason. Ný útgáfa I.—VI. Ámi Böðvarsson og Bjarni Vilhjálmsson önnuðust útgáfuna. Bókaútgáfan Þjóðsaga. Prentsmiðjan Hólar h.f. Reykjavík MCMLIV—MCMLXI. NÚll er mjög merkileg tala. Eitt sér merkir það í rauninni ekki neitt, en styðji það við bak einhverrar annarrar tölu, er það orðið geysimikilvægt, og í afmælis- dagareikningi táknar það stórveizlu, þjóð- eða jafnvel alþjóðahátíð. Þrettán pilárar mætast í hjólnöfinni, en þó stæði vagninn fastur, ef þar væri ekki gat. Það er gatið, núllið, sem skiptir höfuðmáli. Ártalið ’62 er þeirrar undarlegu náttúru í íslenzkri sögu að draga eftir sér slóða af 0- og 00-af- mælum! í ár eru liðin 700 ár frá því, er Gissurarsáttmáli var gerður, 400 ár frá Kópavogseiðum og 200 ár, frá því að fjár- 186
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.