Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Síða 97

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Síða 97
U MSAGNIR UM BÆKUR ýmsan hátt vera eitt hið merkasta, sem til er frá 19. öld. Að því er ég bezt veit þá skrásettu erlendir safnarar að miklu leyti sögur sfnar sjálfir og breyttu þeim oft með einhverjum hætti að eigin geðþótta. Hér er mikill hluti safnsins skráður af sögumönn- um sjálfum. Skrásetjendur safnsins eru rúmlega 120, og heimildamenn rúmlega 350. Skrásetjendur eru fólk af flestum stéttum þjóðfélagsins (sýslumenn og amtmenn vant- ar m. a.), þeir eru á öllum aldri frá 12 ára snáðum til hárra öldunga. Samkvæmt reg- istri eru þeir flestir ótitlaðir alþýðumenn, en reynast margir bændur sé betur að gáð. Þá koma prestar, heimasætur og húsfreyjur, iðnaðarmenn, alþingismenn, prófessorar, skáld, ritstjórar, bankamenn og bókaverðir. Meðal heimildamanna kennir enn fleiri grasa, því að þar birtast sýslumenn, niður- setningar, biskupar, djáknar, kapteinar, málarar, læknar og verzlunarmenn. Þetta fólk er hvaðanæva af landinu. Fyrri útgef- endur, þ. á m. Jón Árnason sjálfur, tíðkuðu að breyta á ýmsan hátt stílsmáta skrásetj- ara, en þeir Árni og Bjami forðast allar slíkar fræðimanna falsanir. Þeir gefa sög- urnar út orðréttar eftir handritum, en ekki stafréttar. Sögumenn og skrásetjendur voru sumir ofar moldu fyrir fáum árm. Hjálmar Þorgilsson frá Kambi, f. 1871, var heimilda- maður Jóns Ámasonar og mun enn á lífi norður á Sauðárkróki. Þannig er núlifandi kynslóð tengd því fólki, sem upphaflega safnaði sögunum. Sumir skrásetjendur kvarta undan vankunnáttu sinni, einkum í stafsetningu, Allar þær umkvartanir eru óþarfar, því að stafsetning þeirra allra er viðhlítandi. Hins vegar er mönnum meiri bagi að pappírsskorti. Það er ekki mennl- unarskortur, heldur fátækt, sem kreppir að þjóðsagnasöfnuninni. Pappírseign Guð- mundar Jónssonar frá Minnahofi í Eystri- hrepp er þrotin, svo að hann getur ekki sent Jóni Ámasyni nema eina sögu að vísu all- langa, en hún er vel sögð, svo að gjaman hefði Guðmundur mátt skrá fleiri, sem hann kunni. í skýringagreinum við sögum- ar geta útgefendur helztu einkenna á rit- hætti skrásetjara, ef þeir skrifa t. d. þettað í stað þetta, þaug í stað þau, miðöl í stað meðöl og gingdi í stað gegndi o. s. frv. Að öðru leyti fá þeir að halda orðfæri sínu. Þeir fara eitthvört sinn að gefa kúnum ábætir o. s. frv. Þannig sýna öll frávik út- gáfunnar frá venjulegu ritmáli málfar sagnamanna. Þeir em leiddir fram eins og þeir koma fyrir í handritum, og útgáfan er skreytt 72 rithandasýnishomum þeirra. Þar getur m. a. að líta rithönd þeirra Konrads von Maurers, Jóns Ámasonar, Bólu-Hjálnt- ars, Kristjáns Fjallaskálds, Ásthildar Thor- steinsson, móður Muggs, Brandþrúðar Benónísdóttur og drengsins Páls Pálssonar í Árkvörn, svo að dæmi séu nefnd. Síðasta bindi þjóðsagnanna hefur að geyma m. a. nafna- og atriðaskrár, skrár um heimildamenn, skrásetjara og gerðir ís- lenzkra ævintýra, sem í þjóðsögunum birt- ast. Þar er einnig efnisyfirlit alls verksins og enskur orðalykill að atriðaskránni. í nafnaskránni eru rúmiega 5300 mannanöfn, staðanöfn eru um 4700, atriðaskráin vísar til um 21 þúsund staða í öllum sex bindun- um, en atriðisorðin eru rúmlega 1500. Þessi upptalning ætti að gefa dálítið hugboð um hvílíkt verk liggur að baki þessarar útgáfn, enda er hún til mikillar fyrirmyndar. Utgáf- an er einhver sú vandaðasta og bezta, sem nokkru sinni hefur verið gerð hér á landi. Það er gleðilegt, að íslendingar virðast kunna að meta það, sem vel er gert. Ég veit ekki betur en hún hafi gengið mjög vel út og sum bindin séu jafnvel á þrotum. Það mun láta nærri, að gamla útgáfan af þjóðsögum Jóns Ámasonar hafi einungis að geyma um % hluta af þjóðsagnasafni lians. Þessi útgáfa er því um % hlutum 189
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.