Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1962, Page 22

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1962, Page 22
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ónauðsynlegar ef allir fylgdu boðorð- unum fjórum. Arangurinn af umbótastarfinu er í réttu hlutfalli við barnaskapinn. Og láta þó siðvæðingarmenn óspart í veðri vaka að þeir hafi komið við sögu heimsmála, leyst úr vandamálum Afríkuþjóða, sett niöur kynþáttadeil- una í Little Rock, ráðið miklu um úr- slit landhelgisdeilu íslendinga og Breta. Þeir reka ósleitilega áróður fyrir málstað sínum og gerast þá oft óvandir að meðölum, um eitt skeið stunduðu þeir þá iðju að kaupa upp heilar síður í ýmsum stórblöðum und- ir auglýsingar um sitt eigið ágæti. Síöan vitnuðu þeir til þessara auglýs- inga og kölluðu það ummæli blað- anna. Árið 1955 fóru þeir í hnattför með mikiÖ lið, sýndu þá söngleik sem Peter Howard hafði samið að undir- lagi Guðs og Buchmans. Þeim tókst að ginna Bandaríkjastjórn til þess að lána þrjár herflugvélar til að flytja þetta áróðurslið. Söngleikurinn „Vanishing Island“ átti að sýna átök austurs og vesturs og lýsir því hvern- ig siÖvæÖingin kemur til skjalanna og bjargar öllu við. Bandarísk blöð og ýmsir fulltrúar utanríkisþjónustunn- ar sáu skjótt hverskyns var og varð ljóst að áliti Bandaríkjanna var stefnt í voða. Bandarískur almenningur reiddist þessu bruðli með ríkisfé og utanríkisráðuneytið í Washington sá sér ekki annað fært en fyrirskipa sendiráöum sínum í þeim löndum er flokkurinn heimsótti, að taka af öll tvímæli um að stjórnin væri á engan hátt viÖriðin förina. Flugmálaráð- herra sá sem lánaÖ hafði vélarnar sagði af sér embætti og siövæðingin varð að lokum neydd til að punga út fyrir leigunni á þeim, 124.930,00 dollara. Ekki munar Guð um slíkt smáræði. Peter Howard hefur skrifað heila bók þar sem hann hrósar söngleik sín- um í hástert og fer mörgum orðum um gífurlegar vinsældir hans og frá- bærar viðtökur. M. a. varð Sjang Kæ Sjekk snortinn af leiknum er hann var sýndur á Formósu undir nafninu „Island with the Key“. (Af „sálfræði- legum ástæðum“ þótti ekki fært að halda hinu upprunalegu nafni þegar leikurinn var sýndur á Formósu!!!) Syngman Rhee og stjórn hans tóku flokknum með kostum og kynjum er hann kom til Seoul. Utanríkisráð- herra Kóreu lét svo um mælt við það tækifæri: „Ég er sannfæröur um að miklar hörmungar munu dynja yfir, ef andi siðvæðingarinnar sigrar ekki í heiminum.“ Syngman Rhee hefur nú fengið að kenna á ósigri siðvæðing- arinnar heima fyrir. Dr. Konrad Adenauer kanzlari Vesturþýzkalands lét í ljós stuðning sinn við siðvæð- inguna með því að senda sérlegan fulltrúa á þing þeirra á Mackinac- eyju. Fyrir valinu varð augasteinn hans, dr. Theodor Oberlander, flótta- 212

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.