Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1974, Blaðsíða 76

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1974, Blaðsíða 76
Tímarit Máls og menningar 9 David Hilbert (1862-1943), kunnur þýskur stærðfræð'ingur. 10 L. E. J. Brouwer (1880-1966), hollenskur stærðfræðingur, höfundur svonefndrar „innsæisstefnu“ (intuitionisma) j stærðfræði. 11 Karl Menger (1840-1921), austurískur þjóðhagfræðingur, upphafsmaður hins svo- nefnda „austurríska skóla“ í þjóðhagfræði. Kenning Mengers um vörugildið sem hér er lauslega ýjað að var í stuttu máli þessi: Gildi vörunnar ræðst af því liversu nauðsyn- lega við álítum hana vera fyrir fullnægingu tiltekinr.a þarfa. Menger veittist að þeirri skoðun Ricardós ofl. að gildi vörunnar réðist af þeim tíma sem varið væri til fram- leiðslu hennar. Menger leit svo á, að enginn hirti um það í sínu daglega lífi á hvern hátt varan hefði orðið til. Hver og einn legði mat á vöruna eftir þeim notum sem hann hefði af henni og því, hvers hann færi á mis ef hann þyrfti að vera án hennar. 12 Machismi er kenndur við austurríska eðlisfræðinginn og heimspekinginn Ernst Mach (1838-1916), sem m. a. hélt fram þeirri skoðun að þekkingin væri grundvölluð á einföldum skynhrifum og að í raun væri „heimurinn" ekki annað en heild skynjana okkar. 13 Ný-Berkeleyanismi er kenndur við írska heimspekinginn George Berkeley (1685- 1753), sem m. a. er frægur fyrir þá skoðun sína að rangt sé að tala um efnislega hluti sem séu óháðir meðvitund okkar og orki á hana: ldutirnir eru raunverulegir með því að þeir eru viðfang skynjunarinnar: esse est percipi. Mennirnir skynja að sjálfsögðu aðeins brot af heiminum, en heimurinn er eilíflega skynjaður af guði. 14 Um aðför Berkeleyanismans að orsakalögmálinu segir Björn Franzson m. a. í bók sinni Efnisheimurinn: „Vér skulum ekki eyða mörgum orðum að slíkri heimspeki, en láta oss nægja að spyrja fulltrúa hennar þessarar spurningar: „Af hvaða orsökum er orsakalögmálið úr gildi fallið?" Og þeir svara: „Af þeim orsökum, að hin nýrri vísindi hafa komizt að niðurstöðum, sem við viljum leggja í þann skilning." Af þeim orsökum! Það er að segja: Til þess að nema úr gildi orsakalögmálið, þarf maður á orsakalög- málinu að halda. En orsakalögmálið er vitanlega ekki hægt að nema úr gildi. Án þess væru öll vísindi óhugsanleg, öll hugsun ómöguleg." (Bls. 163). 15 Um slíkar tilraunir heimspekinga til að afneita tilvist efnisins, segir Björn Franz- son m. a. í áðurnefndu riti sínu um efnisheiminn: „Fulltrúar þessarar heimspekistefnu Platons og Berkeleys grípa fegins hendi við þeirri staðreynd, að uppgötvaður hefur verið nýr eiginleiki efnisins, sá, að það hagar sér stundum á þann hátt, að vér kunnum ekki að lýsa þvi betur með öðru en líkja því við ölduhreyfingu. Þetta túlka þeir þannig, að efnið sé horfið, vísindin hafi sannað, að það hafi aldrei verið annað en ímyndun. Það er eins og ef sagt væri, að ljósið hefði horfið, glatað raunveruleik sínum, þegar Huyghens sýndi fram á, að það hagaði sér eins og ölduhreyfing. Auðvitað er slík heim- speki sem þessi ekkert annað en fásinna og fjarstæða, sem á sér engan stað í niður- stöðum nútímavísinda, enda þótt lærðir prófessorar láti sér hana stundum um munn fara. Efnið er jafnraunverulegt og það hefur alltaf verið. Vér gætum jafnvel sagt, að það væri nú raunverulegra en áður, í þeim skilningi, að vér höfuð nú öðlast réttari skilning á eðli þess. Uppgötvaður hefur verið nýr eiginleiki efnisins, sem áður var of lítill gaumur gefinn: hreyfingin. Efnishlutirnir, efniseindirnar eru ekki aðeins sjálfar á sífelldri hreyf- ingu, heldur felst hreyfingin með nokkrum hætti í þeim sjálfum sem djúptækari eðlis- þáttur." 66
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.