Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Síða 40
Tímarit Máls og menningar
landsins, hans hágöfgi“ (E1 Mercurio og La Tercera, 21. okt. 1977)). Stéttarlegt
innihald þessarar stefnu verður enn augljósara í ljósi þess að hún er beinlínis
gegn þjóðarhagsmunum Kína sjálfs. Gagnvart alþýðunni virkar hún sem
þóttafullt andsvar við baráttu hennar fyrir lýðræðislegum réttindum, og útávið
eykur hún á hróður sósíal-heimsvaldastefnunnar, sem í flestu hagar sér af meiri
kunnáttusemi (jafnvel þótt þeir hafi lagst á sveif með eþíópískri heimsvalda-
stefnu gegn þjóðfrelsisbaráttu sómala í Ogaden og eritreumanna). Til þess að
fullvissa sig um hin neikvæðu áhrif utanríkisstefnu Kína þarf ekki annað en að
taka vinnandi alþýðu þriðja heimsins tali, en í þeirra augum hefur hróður Kína
aldrei verið jafn lágur.
Hin nýja forysta kínverska kommúnistaflokksins hefur þegar hlotið dóm
sögunnar. Þegar til lengdar lætur getur hún einungis beðið ósigur, eins og hin
langa saga endurskoðunarstefnunnar ber vitni. Smám saman mun hún því
neyðast til þess að afhjúpa sitt rétta andlit — þannig að það verði augljóst þeim
sem ekki vilja eða ekki geta horfst í augu við það i dag. I raun og veru situr þessi
forysta á eldfjalli. Hagvöxtur kann að aukast lítilsháttar fyrstu árin, en brátt
munu mótsetningarnar á milli iðnaðar og landbúnaðar, borga og sveita,
andlegrar og líkamlegrar vinnu, fjármunamyndunar og neyslu aukast í sífellu,
því að sú leið, sem núverandi valdhafar í Kína hafa haldið inn á, er leið
kapítalismans. Það kann að vera að meirihluti kínversku þjóðarinnar trúi því að
flokkurinn sé enn að leiða hana á braut sósíalismans, að staðið verði við gefin
loforð. Þessar aðstæður, ásamt með þeim mistökum sem fjórmenningarnir
gerðu og þeirri þreytu sem einstrengingslegar starfsaðferðir þeirra sköpuðu,
skýrir hvers vegna hluta þjóðarinnar létti við valdaskiptin og sýndi jafnvel
nokkur merki hrifningar.
En hludrnir eiga eftir að breytast. Kínverska þjóðin hefur háð langa og
sigursæla baráttu fýrir sósíalisma, hún á reynslu menningarbyltingarinnar að
baki, hún hefur séð hinn jákvæða efnahagslega og pólitíska árangur þessarar
byldngar í raun, hún hefur lært að standa uppi í hárinu á ríkjandi valdhöfum.
Þjóð með svo mikla reynslu að baki mun ekki snúa aftur, heldur halda baráttu
sinni áfram.
Við þær aðstæður sem ríkja í dag er það skylda allra vina Kína á erlendri
grund að standa nú fastar við hlið kínversku þjóðarinnar en nokkru sinni fyrr.
Þeir ættu, án þess að blanda sér í innri málefni Kína, að forðast að gera nokkuð
það sem aukið gæti hróður þeirra valdhafa sem nú eru að leiða þjóðina á
glötunarveginn. Ennfremur er mikilvægt að bregðast við vonbrigðum þeirra
félaga um allan heim sem sjá nú menningarbyltingunni afneitað og kastað fyrir
414