Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Blaðsíða 44

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Blaðsíða 44
T/marit Máls og menningar Zhou Enlai — sameiningartákn lýðrœðislegrar stjómarandstöðu Fyrsta daginn stend ég lengi við borðstokkinn á þriðja farrými og nýt útsýnisins. Ferjan þjösnast þunglega gegnum klassískt kínverskt lands- lagsmálverk með bröttum klettum, skógi vöxnum fjallahlíðum, pagóð- um sem eru að hálfu sveipaðar í þoku. Beint yfir höfði mér gellur í hátalaranum. (A mínu farrými er strax dregið niður í honum ef einhver kveikir á tónlistardagskrá útvarpsins). Núna er dagskrá um hinn látna forsætisráðherra, Zhou Enlai. Hópur ungra barna sver Zhou Enlai eilífa hollustu í skrækum talkór: „Elsku Zhou afi, hvíldu í friði, við munum að eilífu minnast þín og ganga áfram þá braut sem þú hefur markað, halda hugsun Mao Zedongs hátt á loft, framkvæma „hina fjórþættu endur- nýjun“ . ..“ A milli talkóranna mælir grátklökk kennslukonurödd fram áminningar til barnanna. Svo byrjar talkórinn aftur og tónhæð og hljómfall minnir á Mikka mús. A meðan við siglum áfram með háværum vélarskellum verður mér hugsað til þess táraflóðs sem úthellt hefur verið vegna Zhou Enlai. Ég var sjálfur vitni að því hvernig samstúdentar mínir við Pekingháskóla bein- línis flóðu í tárum þegar fréttin um lát hans barst í janúar 1976. Ég tók þátt í minningarsamkomu um Zhou í verksmiðju. 3000 menn þrengdu sér saman í litlum matsal og grétu. Á næstu mánuðum breyttust minningarhátíðirnar um Zhou í hatramma fjöldafundi sem náðu há- marki á Quing Ming — fundinum á torgi hins himneska friðar í Peking í apríl 1976. Með þessum fjöldafundum tók ný stjórnmálahreyfing að mótast. Hreyfingunni var að hluta til beint gegn maóismanum og málsvörum hans og að hluta gegn ólýðræðislegri borgarstjórn sem átti völd sín fremur að þakka öryggislögreglunni en atfylgi byltingarnefndanna. í það skipti — 1976 — voru mótmælin brotin á bak aftur, hundruð sett í fangelsi og misþyrmt. Tveimur og hálfu ári seinna var þeim loksins sleppt úr haldi — í nóvember 1978 — og hylltir sem frelsishetjur. Þeir höfðu ekki fyrr verið látnir lausir en upp hófst sú bylgja mótmælaaðgerða og veggblaðaumræðna sem settu svip sinn á Peking og Shanghai í fyrravetur, 418
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.