Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Blaðsíða 7

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Blaðsíða 7
Adrepur styrjöld bandaríkjamanna. Enda stendur ekki á nýlendukúgurum okkar tíma að viðurkenna ábyrgð sína. í upphafi Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í haust samþykktu Bandaríkin, kínverjar og fylgiríki þeirra að Páll Pott og félagar hans væru enn „lögmætir valdhafar“ í Kampútsíu. Og auðvitað stóð ekki á her- námsstjórn Olafs Jóhannessonar að greiða þeirri tillögu atkvæði, án þess að til nokkurs ágreinings virtist hafa komið í þeim framliðna rifrildishópi. Fyrir- myndin virtist vera sú afstaða SÞ áratugum saman að telja valdmenn á Tævan leiðtoga Kínaveldis. Eg sá í sjónvarpi í Danmörku i sumar leið margar myndir af nauðstöddum indókínverjum, fullorðnum mönnum sem litu út eins og húð væri strengd yfir beinagrindur, kornabörnum með útblásna hungurmaga. Atvikin höguðu því svo að ég kom heim til Islands með flugvélinni sem ferjaði 30—40 indókínverja til Islandsvistar, valda af fulltrúum þjóðkirkjunnar og rauðakrossins. Eg virti þessa væntanlegu samlanda mína fyrir mér í flugvélinni og þeir voru af annarri gerð en fólkið sem ég hafði séð í kvikmyndunum. Hinir austurlensku sam- ferðamenn mínir voru ungir, í góðum holdum og virtust í eðlilegu jafnvægi. Þetta var mjög geðugt fólk og dugnaðarlegt og lét ekki uppi eftirvæntingu sína þó að það væri að flytjast úr hitabelti á nyrsta hjara hins byggilega heims, fyrr en vélin flaug sunnan Vatnajökuls í sólskinsdýrð — þá þyrptust kinverjarnir að gluggum og störðu á fyrirbæri sem þeir höfðu aldrei séð fyrr; einn þeirra dró upp úr pússi sínu þykka lopahúfu og dró hana langt niður fyrir eyru meðan hann starði á breðann, þótt vel væri hlýtt i vélinni. Eg spjallaði lítillega við fulltrúa þjóðkirkjunnar og rauðakrossins sem í vélinni voru og spurði hvernig þeir hefðu valið þessa nýju íslendinga. Þeir tjáðu mér að úr hópi þeirra sem vildu flytjast til íslands hefðu þeir valið þá sem unnið hefðu að fiskveiðum og fiskiðnaði i heimalöndum sínum, Víetnam og Kampútsíu. Þegar ég settist aftur í sæti mitt sóttu að mér ógnarlegar grun- semdir. Voru þessir fólksflutningar alls ekki líknarstarfsemi heldur tilgangurinn sá einn að tryggja „hinum þjóðlegu íslensku atvinnuvegum“, fiskveiðum og fiskiðnaði, nægilegt vinnuafl? A því sviði höfum við áratugum saman þurft á aðfluttu vinnuafli að haldda. Var alls ekki verið að likna fólki heldur að tryggja mannafla til þess að draga þorsk úr sjó, fletja hann og flaka og setja hann í girnilegar neytendaumbúðir til sölu á bandarískum markaði? Ég rifjaði upp í huganum ljóðlínur Arnar Arnarsonar sem ég lærði ungur: „Svo langt kemst mannúð manna / sem matarvonin nær“. llta okt. 1979. 381
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.