Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Page 82

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Page 82
Tímarit Máls og menningar hafði stúlkan drifið sig ótrúlega oft í hjónabönd með mönnum frá ótal fyrrverandi nýlendum, eins og brúðkaupsmyndirnar sönnuðu og hinn súri bíldudalssvipur á andliti foreldranna. Sá frá Filipseyjum var síðasta ástin sem hvarf, sagði stúlkan og fletti myndum af fimm hjónaböndum og foreldrum með stíft bak, eins og ættarstólpinn hefði verið rekinn upp um óæðri endann á þeim, og reist höfuð sem var auðsæilega löngu hætt að hugsa. Nú vantar mig línu út í bæ, sagði stúlkan og henti sinni ljósmynduðu ævi og ættarskrá í skúffuna á dýrgripahauginn. Eg fór niður, gaf henni línu og sótti um leið mjólk handa barninu. Þegar ég sneri aftur strunsaði hin ljóshærða, hávaxna og ættstóra stúlka að útidyrunum. Eg þoli ekki eskimóa, sagði hún. Eg varð móðguð og brjáluð þegar mógulu mennirnir mínir spurðu hvort við værum eskimóar. Þú ert þá eins og daninn sem var hér um daginn, sagði ég. Sjá djöfuls bauni og drulludeli, sagði stúlkan. Heldurðu ekki að ég bjóði honum inn. Síðan svíkur hann mig í tryggðum þegar við erum nýtrúlofuð og ákveður að fara til kerlingarinnar sinnar. En í nótt er ég ástfangin í alvöru, bætti ættstóra stúlkan við og reif upp dyrnar og ruddist út í rok og byl að leigubíl, rammíslensk á svip og albúin að leggjast af eldmóði undir hvern sem er og gefa sig draumórum á vald sökum heilagrar einfeldni. Undir morgun rís hún eflaust úr rúminu, kvartandi og kveinandi og sótbölvar svikum, beygð um stund af vonbrigðum yfir valdinu sem hún lagðist undir. En undir kvöld er stúlkan aftur haldin ódrepandi draumórum og bjartsýni. Hún er heilög og einföld og afneitar reynslunni. Hún böðlast í ástinni af íslenskri atorku en lítilli tilfinningu, og þess vegna er hún og afkomendur hennar ævinlega örlítið vansælir en bestu grey. 456
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.