Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Page 100

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1979, Page 100
Tímarit Máls og menningar er skýrð á þá lund, að hún hljóti nafn af hinni hvítu gyltu (albanus á latínu merkir hvítur). Og þegar við kynnum okkur spádóminn í Landnámu og berum saman við Eneasarkviðu sjálfa, sjáum við, að þessum tveim ritum er það sam- eiginlegt að spáandi á heima undir vatni. I kviðunni er það Típur-guðinn sjálfur, sem kemur upp úr öldum fljótsins að rýna í framtíð Eneasar, en í Landnámu hefst marmennill úr köldum bárum Steingrímsfjarðar að kveða upp um forlög Þóris Grímssonar. Flökkusagnir af kynlegum siðum i Svíþjóð hrökkva skemur til skýringa á Landnámu en lærdómsritin sem nú hafa verið nefnd. Nú má draga dæmin saman og sýna skyldleika þessara þriggja sagna með því móti að leysa þær upp í frumþáttu sína og bera atriðin saman hvert fyrir sig. Hægt er að hugsa sér frumsögu á þessa lund og verða þá frávik og sameiginleg atriði með frásögnunum þrem eins og hér segir: Eftir langa sjóför (a) er manni spáð af yfirnáttúrlegri veru (b) sem á heima undir vatni (c) að hann (d) sonur hans (d2) eigi að hlíta leiðsögu dýrs (e) og gera sér bústað þar sem það leggst niður (f) ella þar sem hann finnur það liggjandi (f2); örnefni er síðan dregið af dýrinu (g). Til glöggvunar fylgir tafla með: abcdd2 effi g Grímr/Þórir a b c d2 e f g Eneas a b c d P g Cadmus b d e f g Vísindalegur samanburður á íslenzkum fornritum og útlendum fræðiritum leiðir oft i ljós nánari skyldleika en ráðið verður af lauslegum athugunum, en staðhæfingar um norrænan uppruna, sem byggðar eru á getgátum einum, mega teljast hreinar bollaleggingar. Mynztrið í Skálmarþætti er að því leyti merkilegt, að öll atriði frumsögu eru varðveitt, en þó er um eitt frávik (d2) að ræða, þar sem spádómur lýtur að syni mannsins sem leitar frétta. En eins og Jakob Bene- diktsson bendir á í útgáfu sinni á Landnámu, á forsögn marmennils sér ýmsar hliðstæður, svo sem í Hálfs sögu og Hálfsrekka, og gegnir því öðru máli um það atriði þáttarins en um meginþráðinn. 474
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.