Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Side 15

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Side 15
Ólafur Proppé Stuðlar skólinn að betri menntun og auknu lýðræði? Menntun og lýðræði fara saman. Hvorugt er hugsanlegt án hins. Almennar kosningar án menntunar og menningar verða skrílræði eða einræði en ekki lýðræði — ekki stjórn fólksins sjálfs fyrir heildina. Bandaríski heimspekingurinn og uppeldisfræðingurinn John Dewey skrifaði bók árið 1916 sem hann nefndi Lýðrœði og menntun. I henni tengir hann þessi tvö hugtök saman og lætur hvort um sig varpa birtu á hitt. Byltingarkenndur boðskapur bókarinnar var að lýðræðissamfélag verði að veita þegnunum jöfn tækifæri til menntunar — ekki aðeins með því að láta öllum börnum í té jafnmikið af menntun, t. d. jafnmörg ár í skóla, heldur að án undantekninga ættu allir að fá jafngóða menntun. Þessar hugmyndir hafa haft víðtæk áhrif meðal vestrænna þjóða og víða hefur verið reynt að hrinda þeim í framkvæmd. Við höfum, eins og flestar ef ekki allar þjóðir sem við þekkjum, „fallið“ á þessu „prófi“. Reyndar er verkefnið svo erfitt að það er skiljanlegt, og jafnvel afsakanlegt, að okkur hafi ekki enn tekist að leysa það. En við getum ekki haldið áfram að nota sömu aðferð við lausn þess. Slíkt myndi hafa geigvænlegar afleiðingar fyrir okkur öll. Til að bjarga menningu okkar, efnahagslegu sjálfstæði og hamingju einstaklinganna í samfélaginu — eink- um í framtíð — verðum við að standast þetta erfiða „próf“. Við höfum öll mótast af skólakerfi sem hefur aðeins náð hálfa leið að markinu. A því berum við öll ábyrgð; við enga aðra er að sakast. Skólasaga þeirrar aldar sem nú er bráðum öll einkennist af tilraunum til að skapa almenn og sem jöfnust menntunartækifæri fyrir öll „landsins börn“. I dag höfum við almennan níu ára grunnskóla fyrir börn á aldrinum sjö til fimmtán ára. Við höfum byggt framhaldsskóla sem hafa rúm fyrir næstum jafn marga nemendur og ungt fólk er í landinu á aldrinum sextán til nítján ára. Við höfum smám saman komið upp skólum til enn frekara fram- haldsnáms fyrir stóran hluta hvers aldurshóps, háskólum og sérskólum af mismunandi tagi. Við höfum lyft Grettistaki — og enn höfum við áætlanir, svo sem vera ber, um frekari uppbyggingu skólakerfisins. Okkur hefur 365
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.