Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Side 58

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Side 58
Tímarit Máls og menningar John Holt hefur að undanförnu lagt mikla áherslu á að byggja upp slíkt samstarf. Hann telur það m. a. mikilvægt vegna þess að heimakennsluhreyf- ingin „muni að líkindum fæða af sér athyglisverðar hugmyndir og aðferðir sem kunna að geta hjálpað skólunum að leysa mörg alvarlegustu vandamálin sem þeir eiga við að glíma."3 Utgáfustarfsemi á vegum hreyfingarinnar miðast einmitt fyrst og fremst við að miðla hugmyndum — segja frá efni og aðferðum sem þykja gefa góða raun. Holt ritstýrir einu af þremur tímaritum sem tengjast starfinu, Growing Without Schooling. Auk þess hefur hann gefið út stóra leiðbeiningabók handa fólki sem kennir heima, Teach Your Own. Auk hagnýtra upplýsinga um framkvæmd, viðfangsefni, gögn og aðferðir er þar að finna ýmiss konar uppörvun, t. d. er fullyrt að viðhorf „kennarans“ skipti meira máli en þekking hans. Hvaða gagn má hafa af róttœkri skólagagnrýni? Eg býst við að ýmsum kunni að finnast það efni sem hér hefur verið fjallað um býsna fjarlægt og eiga takmarkað erindi við hið grunnmúraða skóla- samfélag okkar Islendinga. Ég er hinsvegar þeirrar skoðunar að nú sé einmitt tímabært að staldra við og huga nánar að hvert það stefnir — og nýta hina hvössu greiningu róttækrar skólagagnrýni í því sambandi. Þá má leita fanga víðar en hér hefur verið gert, t. d. hef ég alveg orðið að láta hjá líða að minnast á þekktasta skólagagnrýnanda á Norðurlöndum, Nils Christie. En víkjum nú fyrst að þeim efasemdum sem varpað var fram í upphafi þessarar greinar og birtust í riti sem dreift var til allra félagsmanna í Kennarasambandi íslands: „Ef skólaskylda og skólar eru lögð niður verða það þá ekki enn frekar en nú hinir ríku sem njóta góðs af?“ Fyrst ber þess að gæta að það er tvennt ólíkt að leggja niður skólaskyldu og að leggja niður skóla. Hafi lesandinn í huga það sem á undan er sagt ætti að vera óþarft að fjölyrða frekar um það. Mestu skiptir að dregnar séu réttar ályktanir af rökstuddri skólagagnrýni. Þær geta varðað margt: ytri ramma starfsins, viðhorf, viðfangsefni og aðferðir sem nú ríkja og móta skólastarf á öllum stigum. E. t. v. er gagnlegast að leita svara við spurningunni sem vitnað er til hér að ofan með því að íhuga svör við öðrum spurningum: Mun aukin áhersla á ábyrgð foreldra á uppeldi og menntun barna sinna bitna á þeim lakast settu í samfélaginu? Getur aukin virðing fyrir því sem börn og fullorðnir læra utan skóla og minni virðing fyrir skólagöngu og prófskír- teinum einnig bitnað á þeim sérstaklega? Ég held að svo sé ekki — og tel raunar líklegt að þessu sé þveröfugt farið. Aukin viðurkenning á réttmæti skólagagnrýni af því tagi sem hér hefur verið lýst getur að mínum dómi orðið gagnleg fyrir börn og fullorðna, skóla og fleiri stofnanir — og ekki 408
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.