Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Page 100

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Page 100
Tímarit Máls og menningar lesnari einmitt þess vegna), og hryllingi söguefnisins hvarvetna haldið í mjög viðráðanlegu hófi (t. d. ekki notuð vís- bending Píslarsögunnar um að Jón yngri hafi verið svo illa bundinn á bálinu að hann hafi margsinnis bylt sér út úr log- unum; og lesandi er ekki neyddur til að liugsa mikið út í geðveiki prests þótt hann sé látinn lýsa henni nokkuð). Þó er það grípandi innan þeirra marka sem höfundur kýs sér, og hygg ég sagan megi í heild kallast vel heppnuð. Helgi Sktili Kjartansson. VINUR VORS OG BLÓMA Anton Helgi Jónsson er fæddur árið 1955. Hann hefur sent frá sér ljóðabæk- urnar Undir regnboga 1974 og Dropi úr síðustu skúr 1979. Vinur vors og blóma, saga um ástir og örlög, kom út hjá Iðunni 1982 og er fyrsta skáldsaga höf- undar. Sagan fjallar um ástir og örlög Magnús- ar, sem er verkstjóri við höfnina í Reykjavík. Hann býr með stúlku austan af Fjörðum, Katrínu. Hún á eitt lausa- leiksbarn. Bróðir Katrínar heitir Vil- hjálmur og hann er vinnufélagi og jafn- framt sálufélagi Magnúsar þótt þá greini á um margt, sérstaklega stjórnmálaskoð- anir, því Vilhjálmur er ákaflega róttækur en Magnús er áhugalaus um byltingar- áform hans. Velunnari Magnúsar er móðurbróðir hans og heitir einnig Magnús. Með Magnúsi yngra og Maríu, eiginkonu Magnúsar eldra, takast ástir. Magnús flytur frá Katrínu og hún fer heim til sín austur á Firði. María fer til sumardvalar í Grikklandi og Vilhjálmur deyr í vinnuslysi. Eftir stendur svo Magnús, án ástar og vináttu og einstæðingsskapurinn leggst þungt á hann. I sögulokin er hann sem rekald og skolast til og frá en hefur þó orðið með- vitaður um stéttlægan mun sinn og Maríu. Hann hafnar henni þegar hún leitar aftur á hans fund, þorir svo ekki að nálgast hana á ný þótt hann langi ekki til annars meir. Magnús er umkomulaus maður sem litlu sem engu ræður um örlög sín. Hann er hvarvetna jrolandi og tími hans líður til einskis. Astir hans og örlög markast af stétt hans og stöðu. Hann er til að byrja með nokkuð ánægður með hlutskipti sitt, og á auðvelt með að láta sig dreyma burt frá raunveruleikanum ef hann verður óþægilegur. Þetta tekst honum best með því að horfa á afþrey- ingarkvikmyndir og samsama sig persónunum. Honum finnst þægilegt að vera undir verndarvæng Magnúsar föð- urbróður síns og sér ekkert athugavert við það að njóta þess sem hann réttir að honum. Andstæðurnar verða honum ekki ljósar fyrr en við dauða Vilhjálms, en hann gerir enga uppreisn, hann bogn- ar undan þeirri byrði sem skilningurinn er. Holdtektir stéttaandstæðnanna, Magnús og María, eru bæði trúverðugar persónur sem geyma með sér bældar óskir um betri heim. En það verða aldrei nein átök milli þeirra, til þess er leikur- inn of ójafn, og auk þess á María, — sökum þess að hún er kona, — ekki fulla samleið með þeim sem ráða fyrir auði og valdi. Eiginmaður hennar, Magnús eldri, er hins vegar af því sauðahúsi, enda er það helst gagnvart honum sem nafni hans og frændi gerir tilraun til upp- reisnar, rífur svolítið kjaft og kemur honum í uppnám. Katrín, sambýliskona Magnúsar, er 450
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.