Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Side 112
Tímarit Máls og menningar
þeim sem eru í vanda. Þetta er einkenni á
mörgum ævintýrahetjum sem við þekkj-
um, t. d. karlssyni í Karlsson, Lítill,
Trítill og fuglarnir.
Stebbi á greinilega bágt. „Tvisvar, bað
strákurinn af svo sársaukafullu kossa-
hungri að Sólarblíðan fór að halda að
það væri satt að hann hefði ekki verið
kysstur í mörg ár“ (10). Sólarblíðan vor-
kennir honum og kyssir hann bæði þess
vegna og líka til að fá töfrasteininn. „Ef
þú lendir í vandræðum með steininn
geturðu komið og fengið ráð hjá mér“
(11) segir Stebbi og það gengur eftir. An
steinsins og Stebba hefði Sólarblíðan
ekki leyst þrautina þá að bjarga Sesselíu.
En Sólarblíðan kæmist þó stutt á
góðseminni einni ef hún væri ekki líka
klók, klár og kjarkmikil. „Fyrst ég gat
svindlað mér í þrjá strætóa, hlýt ég að
geta bjargað hausnum á þér frá því að
verða lesinn eins og bók. Eg hugsa nefni-
lega svo margt bráðsnjallt þegar ég er
hrædd“ (25).
Oft sýnist mér að höfundur hafi haft í
huga dæmigerða stelpu í stelpubókum
og reynt að hafa Sólarblíðuna algera
andstæðu. Stebbi er hins vegar með
mörg einkenni stelpu í bók enda kall-
aður stelpustrákur.
Stebbi lætur í ljós að hann sé skotinn í
Sólarblíðunni, hún sé kannske besta
stelpan í Borginni okkar. Viðbrögð Sól-
arblíðunnar eru hranaleg. „. . . ég er
ekkert góð við svona stráka einsog þig.
Eg er vond við þá. Og þar hefurðu það,
lygahjassi!" (40) Seinna sýnir hún
mikinn skapofsa.
Sólarblíðan varð svo reið að hún gat
ekkert hugsað. Hún stökk á Stebba,
hrinti honum niðrá gólf, kastaði sér
þar á hann og lamdi hann af öllum
kröftum. Hann reyndi að verja sig og
lamdi á móti, en af því Sólarblíðan
var sterkari tókst honum ekki að
koma henni undir. (62)
Skýringin er sú að hún hélt að þau væru
búin að drepa mömmu Sesselíu og lentu
í fangelsi en líka á það sinn þátt.að
þegar ég horfi á hann, þá er eitthvað sem
ég þoli ekki.“ (64) Samspilinu milli
þeirra tveggja er skemmtilega lýst. Hann
stríðir henni á að hún þori ekki að vera
skotin í strák, hún fussar og sveiar, hann
grátbiður hana að kyssa sig, hún sé svo
mjúk, hún roðnar og reynir að vera töff
en kyssir hann svo óvart í svefni 40
kossa í lotu sem verður til þess að hún
leysir hann úr álögunum.
Skessurnar
Mamma Sesselíu og tískudrottningin eru
andstæðingarnir sem við er að etja í
þessu ævintýri. Tískudrottningin hefur
lært að lesa hugsanir barna eins og bók
og ófrýnileg er hún á sinn hátt ekki síður
en skessurnar í gömlu ævintýrunum.
Hárið á henni var uppsett og svo
fullt af götum að mýs hefðu getað
notað það sem völundarhús. I fram-
an var hún máluð eins og hún hefði
keppst við í heila viku og vandað sig
óskaplega. Og fötin! Þau voru áreið-
anlega það nýjasta nýja frá
splunkunýjasta tískulandinu. (13)
Það er verulega hættuleg kona sem hér
er á ferð finnst þeim Sesselíu og Sólar-
blíðunni og nú ríður á að vera klókar og
finna út hvað tískudrottningum þykir
verst af öllu. „. . . að vera púkó, ljótar,
lummó og gamaldags" (30) er niðurstað-
an og með aðstoð steinsins er tísku-
drottningunni talin trú um að svona sé
hún og þar með eru vopnin slegin úr
höndum hennar.
462