Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Page 122

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Page 122
Tímarit Máls og menningar staðar, hefur flæmt fólk frá ljóðlistinni og leitt það inn í ævisagnagrúsk í stað þess að auka yfirsýn og skilning á samhengi og heildareinkennum ljóðlist- ar. Eg valdi vissulega „bestu ijóð að eigin mati“ en ekki til þess að kynna einstök skáld heldur til þess að sýna skáldskap nýrra skálda á ákveðnu skeiði, einkenni hans og hugðarefni. Silja virð- ist telja það galla á bókinni að hún kunni að vera sett saman á þann hátt sem „auðveldar nemendum úrvinnslu". Eg er aftur á móti viss um að flestir telja það kost enda verður ekki séð að skáldskap- urinn líði neitt fyrir það. Samt er rétt að taka það fram að hugsanleg notkun í skólum réð ekki byggingu bókarinnar. Það er greint frá því í formálanum að ég tel þessa tilhögun vænlega til „að sýna heildarsvip og megineinkenni bestu ljóða nýrra skálda á næstliðnum áratug.“ Að sjálfsögðu er valið og matið á mína ábyrgð eins og hvers annars sem tekur að sér að velja í slík rit. Þessari greinargerð um markmið bók- arinnar gengur Silja Aðalsteinsdóttir framhjá þegar hún skrifar að bókin sé „varla nýstárleg fyrir þá sem langaði til að kynnast hér á auðveldan hátt því sem Eysteinn kallar „neðanjarðarútgáfur“ eftir dularfull skáld undirheima sem aldrei komast á Landsbókasafn." Nú verð ég að taka það fram í þessu sambandi að ég hef hvergi minnst á „dul- arfull skáld“ eða „undirheima" eins og skilja mætti af framangreindum orðum Silju. Eg notaði orðið „neðanjarðarút- gáfur“ einungis á einum stað neðanmáls í gæsalöppum með fyrirvaranum „eins konar“ og af samhenginu er ljóst að átt er við útgáfuaðila sem ekki hafa sinnt skilaskyldu til safna. Flestar fjölritaðar bækur er auðvelt að fá, en ég átti við fáeinar einkaútgáfur sem mér reyndist erfitt að finna þegar ég var að leita uppi kverin. Kannski er þetta óheppilegt orð, a. m. k. ef það á sök á væntingum fólks um spennu og dulmögnun. Það er engu líkara en að sumir séu búnir að smíða sér einhverja goðsögn um þessar fjölrituðu einkaútgáfur á ljóðum og haldi að þar sé eitthvað óvenjulega spennandi og dular- fullt á ferðinni og Silja virðist hafa orðið fyrir vonbrigðum vegna þess að slíkt endurspeglast ekki í sýnisbók nýgræð- inganna. Að sjálfsögðu hef ég lesið all- rækilega öll þessi kver og allar þessar bækur og tekið margt úr þeim í sýnis- bókina. Ég tel hins vegar fráleitt að leggja sérstaka áherslu á úrval úr bókum sem gefnar eru út með ódýrri prent- tækni eða vanræktri skilaskyldu til Landsbókasafns. Það er ekkert í þeim sem skapar þeim samstöðu nema prent- unaraðferðin, þetta eru ljóð af öllu tagi, ekki síður fornfáleg nýgræðingaljóð en nýstárleg. Þarna er enginn sérstakur, af- markaður þjóðfélagshópur á ferðinni né heldur sérleg viðhorf eða nýr stíll. En þar sem Silja Aðalsteinsdóttir er ráða- maður í bókaútgáfu eru hæg heimatökin hjá henni að láta setja saman úrtak úr slíkum bókum. En mér væri spurn: I hvaða tilgangi? I enda greinar sinnar um Nýgræðinga í ljóðagerð 1970—1981 segir Silja: „. . . auðveldlega má margfalda tölu skálda í þessari bók með sjálfri sér ef fá á út fjölda þeirra sem dunda við að yrkja í skólablöð, alls kyns tímarit og ofan í skúffur." Þessi tíðindi koma varla mörgum á óvart. En vonandi hreppir enginn útgef- andi þau örlög að þurfa að velja upp úr öllum skúffunum. Eysteinn Þorvaldsson. 472
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.