Tímarit Máls og menningar - 01.09.1987, Side 49
„Er ekki nóg að lífið sé flókið?"
vegna þessa, langar mig hér að skoða Grámosann í öðru bókmenntasamhengi og
nálgast hann frá fyrri sagnagerð höfundar. Höfundarverk Thors er að vísu orðið
mjög umfangsmikið og ekki hægt að grynna mikið á því í einni grein. Mun ég
hér einkum ganga út frá vissum formgerðarviðmiðum í verkum hans og birtast
þau einna helst í örlögum sögunnar í skáldsögum Thors, í karlmyndþeirri sem í
þeim birtist og í „súbjekti" því eða sjálfi sem liggur til grundvallar textagerð
þessara verka.
Saga eða ferð: persónur og lesendur
Umræðan í kringum Grámosann hefur einkennst af því að menn telja hann að-
gengilegri og epískari en fyrri skáldsögur Thors. Það hefur orðið mörgum les-
endum fjötur um fót að þau verk hafa ekki verið skáldsögur í neinum hefð-
bundnum skilningi. Sem dæmi um neikvæðar viðtökur almennings má nefna
bréf, fleiri en eitt, sem Velvakanda Morgunblaðsins bárust þegar Thor las Óp bjöll-
unnar í útvarp veturinn 1981—82. Þar spyr fólk í hálfgerðri örvæntingu: „Um
hvað snýst sagan?“4,Nú má segjaað í þessari spurningu birtist okkurofur eðlileg
þörf lesandans fyrir að skilja um hvað sagan er — en um leið þörf fyrir að skilja
söguna frá viðfangsefninu, líkt og hún sé í „kringum" eða „utan um“ það og
þannig hægt að nálgast og umfaðma efnið með því að fletta sögunni utan afþví.
En eins og ég mun ræða frekar má segja að Thor skrifi texta án þess að skrifa hann
„um“ eitthvað — textinn sjálfur er þetta „eitthvað". Hér er þó ekki ætlunin að
taka undir þá klisju að skáldverk eigi „ekki að merkja heldur vera“ — undan
merkingu verður ekki skotist, eins og ég mun síðar víkja að.
Við getum að vísu reynt að leysa vandann með því að spyrja bara höfundinn
sjálfan, ef hann er innan seilingar. Þegar Óp bjóllunnar kom út innti Árni Berg-
mann Thor raunar eftir því í blaðaviðtali hvers konar saga þetta væri. Thor svar-
aði á þessa leið:
Ég get sagt sem svo, að hún sé um manneskjuna í heiminum í dag, með öllum sínum
vanda og þeim hrikalega háska sem yfir henni vofir. Má vera að ég hafi sagt þetta um
allar bækur mínar, en er viðfangsefnið ekki alltaf það sama í reynd: hvar stendur mað-
urinn?51
Ég er hræddur um að bréfavinir Velvakanda hefðu ekki talið sig miklu fróðari
hefðu þeir fengið þetta svar við spurningunni „Um hvað snýst sagan?" En þetta
er samt viðeigandi svar hjá Thor. Hvert verk hans hefur að geyma undarlega
heimsmynd og heimstúlkun, túlkun sem getur þó einna helst virst spurning:
hvar stöndum við (í verkinu, í veröldinni)? Þetta er heimur sem virðist að mestu
óháður landamærum og dægurmálum, en þar eiga persónur þó við vá og vanda
að glíma er þær reyna að „lesa“ veröld sína. En sú veröld er líka texti verksins og
311