Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Page 132

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Page 132
Tímarit Máls og menningar með öllu: Einn daginn eru aðeins flaska skál og fiskur á borðinu. Var ekki epli líka í gær? (42) I öðru samhengi kemur terrassógólf aft- ur fyrir og verður eins konar tákn liðins tíma: maður man úr honum brot en sem heild verður fortíðin sama marki brennd: hún er öll í brotum. Þar sem Kort stekkur út á ísinn í Helsingjabotni til að ríða selnum er eins og minni hans og heili leysist upp í graut: Milli jakanna sá hann ofan í ís- hrönglið, hann horfði í kvikandi dröfnóttan graut eins og terrassógólf í upplausn (79). Hvernig muna menn fortíðina? Hvernig er tíminn í skynjun mannsins? Gengur allt í hring, er hringurinn tákn tímans og grunntákn tilverunnar eins og haldið var fram í bókum í hitteðfyrra? Ekki segir Kolli mix, og „Einmitt“ samsinnir þá Kort Kjögx: „lífið er gormur" (23). Þá má líklega kalla drauginn annað grunntákn sögunnar. Minningar eru eins konar draugagangur, söguhöfundur er draugur. Hann talar til okkar af blað- síðum sem eru firrtar hlutbundnum veruleika. Söguhöfundur er „vakandi vitund“ (162, 170) eða með öðrum orð- um draugur. I sögunni er hans annað og seinna líf, þar gengur skáldið aftur. Enn má nefna dúkkuna Lillý sem er biluð: getur ekki lagt aftur augun. A blaðsíðu 22 reynir Fúsi (Vigfús) í For- húð að gera við hana, en á því verki byrjaði Fúsi (Sigfús) í Forhúð í sögunni „Forvarsla" í Ofsögum sagt (OS, 58). Það vantar lóð á vogarstöng inni í höfði hennar, og loks finnur hann hentugt hlass: „blýkúlu úr höfði ungrar konu sem hafði fyrirfarið sér“ (23). Ætla má að höndin á bókarkápu sé af Lillý. Lillý er að nokkru leyti skyld draugum, dauð, stareyg. Einhver er að reyna að tjasla henni saman eins og gömlum minningarbrotum en gengur ekki vel. Hún endar í ruslagámi í sögulok ásamt brotum úr terrassógólfi og hinum mikla samantjaslara gamalla muna: Kolla mix (162). Þannig er fortíðin send á ösku- hauga eins og biluð brúða. Dúkkan Lillý er eins og Kort Kjögx: einhver mixari og dútlari (höfundurinn) er að reyna að koma henni heim og saman. Lóðið sem vantar varð bani einhvers, sem vildi ekki lifa. Og þótt lóðið vanti ekki lengur og dúkkan sé heil lendir hún á haugunum - eða: hefði hún lent í gleymsku nema af því að hennar er get- ið í Skuggaboxi. Þá er ótalið boxið, sem telja má eitt af grunntáknum sögunnar. Box er íþrótt sem var bönnuð með lögum hérlendis en lifði í undirheimum. Oldungar stunda íþróttina ólöglega í kjallara í gamla bænum, samfélagið er þeim and- snúið. Þeir eru afturgöngur. - Ef les- andinn kysi að líta á þetta sem táknmál, hvernig mundi hann ráða táknin? Mér dettur í hug skáldið Þórarinn sem ein- mitt situr á svipuðum slóðum í gamla bænum og rýnir í þjóðleg fræði sem senn njóta svo lítillar hylli að þau mega teljast bönnuð. Skáldið situr og býr til sögupersónur sem eru draugar eða skuggar sem boxa hver annan, hann boxar skuggana sem hann semur, setur þá í box bókar, enda sé bók box skugga: camera obscura. Póstmódernísk dótaskúffa Skuggabox minnir á dótaskúffu. Eitt og annað smálegt er tínt til og tengt saman, stundum aðeins af hálfum huga, því 394
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.