Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Page 16

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Page 16
þess (en þó ekki vissa) að einhverjar skynsamlegri aðferðir finnist til að láta eðlilegar kröfur okkar um þjóðfélagslegt samráð um eigin vinnu og um félagslega mannsæmandi reglugerðir annars vegar halda til jafnvægis við það hreyfiafl sem hefur reynst óhjákvæmilegur hvati allrar vinnu, nefnilega mannlega framtakssemi og kristöllun ávinnings í ófölsuðum markaðstengslum hins vegar. En svo lengi sem ekki er slegin skjaldborg um manninn, bjargast hann ekki af neinum tæknilegum eða skipulagslegum brögð- um svo sem bættum efnahag, ekki fremur en sía á verksmiðureykháfinn megnar að varna því að hið mannlega fari forgörð- um. Spumingin um það, af hverju kerfi skilar árangri, er mikilvægari en hin, með hvaða hætti það skilar árangri. Eða megn- ar kerfið að skila árangri þegar það þjónar málstað algerrar eyðileggingar? En hvað er ég að tala um þetta hér og nú? Þegar ég horfi á veröldina frá þeim sjónarhóli sem örlögin hafa úthlutað mér, kemst ég ekki hjá að álykta að margir í vestri botni lítið í því, um hvað leikurinn raunverulega stendur á okkar dögum! Ef ég skoða dálítið nánar þá tvo grund- vallarkosti í stjórnmálum sem mennta- maður á Vesturlöndum á nú um að velja, virðist mér að þeir séu ekki annað en tvær ólíkar aðferðir til að ganga með í þann leik sem persónuvana vald býður mann- inum uppá — svo sem tvær götur er báðar liggja að sama allsherjar alræðiskerfinu. Önnur aðferðin er sú að persónuvana skilningur haldi áfram að leika sér með leyndardóm efnisins — „leika guð“ — sem sé að finna upp og koma fyrir æ fleiri gereyðingarvopnum sem vitaskuld öll skulu „verja lýðræðið“, en í reynd draga lýðræðið niður í samskonar óbyggilegt fen og sósíalisminn í okkar hluta Evrópu er löngu sokkinn í. Hin leiðin er aftur á móti sú freistandi hringiða sem hrífur með sér svo mikið af ágætu og heiðarlegu fólki og kallast „friðarbarátta“. Sjálfsagt þarf það ekki endilega að vera svo, en ég get ekki varist þeirri áleitnu hugsun að hér sé sama svikula og ópersónulega valdið að verki, sem hafi sett þessa hringiðu á svið, þessa ljóðrænu tálbeitu fyrir mann- lega vitund. (Athugið: ég á hér við ópersónulegt vald sem hugtak og megin- reglu en ekki Moskvu eina saman, enda væri það sannarlega ekki á hennar færi að skipuleggja neitt svo margþætt sem frið- arhreyfingarnar eru um þessar mundir!) Hvernig yrði nú betur að því staðið að gera heiðarlegan og frjálshuga mann óvirkan — slíkur maður er mesta ógn sem steðjað getur að persónuvana valdi — í heimi sem einkennist af arfleifð skyn- semishyggju og hugmyndafræðilegum skilgreiningum, en að bjóða honum ein- földustu kenningu sem hugsast getur, skreytta öllum einkennum guði þóknan- legs málstaðar? Er hægt að hugsa sér nokkuð áhrifameira til að kveikja í ær- legri sál, fá henni viðfangsefni, gera hana önnum kafna og að lokum gelda hana andlega heldur en það að berjast gegn stríði? Er til nokkur lipurri aðferð til að friða fólk heldur en beita þeirri blekkingu að það geti varist styrjöld með því að leggjast gegn því að vopnum verði komið fyrir sem undir öllum kringumstæðum verður komið fyrir? Það er harla erfitt að ímynda sér betri aðferð til að leggja hug- ann í læðing. Því augljósara sem það verður að vopnunum mun vissulega kom- ið fyrir, þeim mun skjótar hlýtur hugs- 14 TMM 1990:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.