Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Page 110
Bílar og bílamenn
Ásgeir Sigurgestsson. Brotin drif og bílamenn.
Saga bifreiðaviðgerða og Félags bifvélavirkja á
fyrri hluta aldarinnar. Hið íslenska bókmennta-
félag og Iðnsaga íslendinga (Safn ti! iðnsögu ís-
lendinga II. bindi A). Reykjavík. 1988.
1
Bíllinn er sérkennilegt fyrirbrigði. Hann léttir
skapara sínum sporin, samtímis því sem hann
veldur mannkyni öllu ófyrirséðu hugarangri.
Bíllinn breytir ásýnd borga og bæja og hann
ristir spor sín í landslagið. Einnig veldur hann
því að samskipti fólks eru nú með öðrum
hætti en áður var. Bíllinn á þátt í því að
minnka heiminn með hraðri yfirreið sinni —
dagleið er orðin að örskoti, — og hann er einn
þeirra vágesta sem mengar umhverfi vort.
Þau eru mörg og alvarleg slysin þar sem bíll
kemur við sögu.
Þær bækur, skráðar á íslenska tungu, sem
fjalla um þennan örlagavald eru fáar að tölu.
Því er ánægjulegt að fyrir skömmu birtist á
bókamarkaði ritið Brotin drif og bílamenn.
Það greinir frá upphafi bílaaldar og bifreiða-
viðgerða á íslandi frá því menn fikruðu sig
áfram við kertaljós á moldargólfum fram að
því er bifvélavirkjar höfðu stofnað með sér
stéttarfélag og náð mikilli leikni í starfi á
fjórða tug aldarinnar. Ritið er fyrri hluti um
þennan áfanga í sögu þjóðarinnar. Síðari hlut-
inn mun lýsa þróuninni fram á þennan dag.
Brotin drif og bílamenn er þriðja bindi í
ritröðinni Safn til iðnsögu íslendinga. Ritið er
nokkuð frábrugðið fyrri verkum í ritröðinni.
Það hefur að geyma bæði iðn- og stéttarfé-
lagssögu, auk þess sem nokkuð er fjallað um
þá einstaklinga sem ruddu braut í bifreiða-
viðgerðum hér á landi. Fyrri bindi hafa hins
vegar einskorðast við iðnsögu og þar gætir
vart persónusögu. Einnig sker ritið sig úr að
því leyti að ekki er getið um orðtök tengd
greininni. Munu þau e.t.v. birtast í öðrum
hluta. Ennfremur má geta þess að minna ber
á ljóðum um viðfangsefnið heldur en í fyrri
bindum.
Brotin drif og bílamenn er rituð af Asgeiri
Sigurgestssyni sálfræðingi. Furðu kann að
vekja að sálfræðingur skuli ráðinn til þess að
skrifa sögu bílaviðgerða á Islandi en höfund-
ur er næstum að segja alinn upp á bílaverk-
stæðum og í bílum og er auk þess sonur eins
af fyrstu forystumönnum bifvélavirkja. Sýn-
ist valið skynsamlegt, eins og bókin ber með
sér.
2
Bók Ásgeirs er vel skrifuð, framsetning er
skýr og hún er skemmtin á köflum þar eð
bókarhöfundur kryddar frásögn með kímnum
dæmum bæði í megintexta og rammagrein-
um. Á spássíum eru víða myndir af upphafs-
mönnum bílaviðgerða hérlendis og æviágrip
þeirra. Mikill fjöldi mynda, sem tengjast
bókarefni, er í riti Ásgeirs. Rammagreinar,
með frásögnum og öðru, er snýr að texta,
getur að líta á víð og dreif. Mjög gott jafnvægi
er á milli megintexta og rammagreina.
Frágangur er hinn ákjósanlegasti, pappír
vandaður, útlit smekklegt og vinnubrögð
bókagerðarmanna öll til fyrirmyndar (lítið
um prentvillur eða aðrar ambögur).
Brotin drif og bílamenn skiptist í sex kafla,
auk aðfaraorða menntamálaráðherra og rit-
stjóra, inngangs höfundar og viðbætis. í
Bókarauka eru fyrstu lög Félags bifvélavirkja
og fyrstu kjarasamningar birtir.
í öðrum kafla rekur Ásgeir forsögu bílsins
allt frá öndverðu til aldamóta. Þar er rakin
hönnun bíla sem og vélbúnaðar, einkum í
Frakklandi, Þýskalandi og Sviss á 18. og 19.
öld.
Því næst fjallar bókarhöfundur um upphaf
bílaaldar á Islandi. Þar getur hann m.a. um
fyrstu bíla sem komu til landsins. Sá fyrsti,
bíll Thomsens kaupmanns í Reykjavík, kom
með gufuskipinu Kong Tryggve hinn 20. júní
1904 og markar upphaf að sögu bifreiða hér-
lendis. Ennfremur er getið um bíl kenndan við
108
TMM 1990:1