Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 10

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 10
urinn Rory McTurk sem er bæði þekktur og virtur meðal þeirra sem leggja stund á nor- ræn fræði, hélt gestafyrirlestur hér við Há- skólann síðasta vetur. Fyrirlesturinn hét „Ragnars saga og Gunnlaðar saga“. Hans kenning er að Loðbrók hafi verið eins konar gyðja sem Ragnar var vígður og hann hefur fundið heimildir fyrir þessu sem virðast sannfærandi. Hann sagði mér líka frá breska fræðimanninum C. Patrick Worm- ald, sem hefði skrifað ritgerð árið 1982 um að herkonungar hefðu tekið við af alþýðu- konungum á Norðurlöndum og það hefði verið undanfari víkingatímabilsins. Sjálf byggði ég á fomleifarannsóknum Dana þegar ég valdi þessi tímaskil í skáldsög- unni. En mér finnst þetta athyglisvert og varð auðvitað glöð að fá þetta staðfest. Mér fannst þetta vatn á myllu Gunnlaðar. Óttinn — Ameríski bókmenntafrœðingurinn Alice Jardine segir að öll hin vestrœna umrceða um vísindi einkennist afþví sem hún kallar „karlmannlegt ofsóknarbrjálæði“ en það er að vera haldinn afhugmyndum um tak- markanir, kerfi, stjórnun. „Karlmannlegt ofsóknarbrjálæði" finnst mér vera þema sem skýtur aftur og aftur upp kollinum í bókum þínum og Oðinn í Gunnlaðar sögu er kannski skýrasta dœmið um þetta. Þú sagðir í útvarpsviðtali um Leigjand- annforðum (8171976) að bókinJjallaði um það að „frelsi og öryggi séu í raun and- stæður“ og það skil ég þannig að því sterk- ari varnir sem maður byggir upp gegn öðru fólki til að vernda sjálfan sig, því veikari verður maður, jafnvel fangi síns eigin ótta og fyrirlitningar á öðrum. Þetta er tekið upp í leikritinu Lokaæfing, 1983, sem ger- ist íkjarnorkubirgi, í eins konar hræðilegri lokaæfingu fyrir frumsýninguna sem er kjarnorkustyrjöldin. Oðinn í Gunnlaðar sögu verður fórnar- lamb sinnar eigin valdagræðgi, undir lokin sér hann ógnun og hœttu í öllum, allir eru mögulegir óvinir hans, allir sitja um líf hans og hann er kvalinn afótta. Ofsóknar- brjálæðið er það verð sem hann greiðir fyrir völdin. — Já. En þeir ævafomu helgisiðir sem Óðinn verður að fara í gegnum em kerfis- bundin þjálfun í því að horfast í augu við ótta sinn, sætta sig við lífið og dauðann. Þannig túlka ég þetta. Ég læt Gunnlöðu tjá þetta þannig að meg- inandstæðumar séu ekki á milli lífs og dauða, heldur á milli lífs og ótta. Á bak við óttann við hið óþekkta, hið framandi er óttinn við dauðann. Ef maður getur litið á dauðann sem hluta af lífinu, þá em líf og dauði engar andstæður lengur. Óttinn er aftur á móti ekki dýnamískur, hann er eyði- leggjandi og fjandsamlegur lífinu. —Heldurðu innst inni að nokkur geti sætt sig við tilhugsunina um eigin dauða? — Dauðinn er óumflýjanlegur og ég held að maður verði að sætta sig við það. Maður verður líka að geta tekið hinni fullkomnu einsemd sem nálægð dauðans hefur í för með sér, því að enginn af þeim sem þú elskar getur tekið þátt í tilfinningum þínum eða farið með þér þessa hinstu för. En þessi einsemd þarf hvorki að vera sársaukafull né merkt óttanum ef menn viðurkenna að hún sé þáttur af tilvist okkar, þáttur af lífinu. Stundum hugsa ég um hvort það komi ekki að því að þú finnir það á þér, líkamlega og andlega, að nú sé nóg lifað, nú vitir þú að dauðinn nálgast, þú óskir þess kannski ekki en vitir það með vissu. 8 TMM 1990:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.