Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 33

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 33
hólum. Hugmyndin um fylgjuna er skyld þessum náttúruátrúnaði, en þó annað og meira, því fylgjan er tvífari mannsins og fulltrúi hans í öðrum heimi, en birtist oft á örlagastundu á jörðu niðri. I Svarfdæla sögu segir frá því er hart er barist á bökkum Svarfaðardalsár, en vígamennimir eru ekki einir: Skíði hljóp og þangað við þriðja mann og sá að bæði var á gmndinni göltur og hvíta- bjöm og gengust þeir að en Skíði gekk að og skildi með þeim og lét eigi kost að berjast lengur „því að tveir em hvorir.“ (Svarfdæla, 20:1811). Að mati Boyers er tvífarahugmyndin í fom- bókmenntum skýr vitnisburður um að heimsmynd norrænna manna til foma hafi síður en svo verið fmmstæð. Tilvemréttur mannsins, mannhelgi hans, byggðist á sam- bandi hans við annan heim, í gegnum hug hans, ham eða fylgju. Þessa mannhelgi ber að virða, og má ekki rjúfa til dæmis með níði (hugmynd sem tengist sannfæringunni um „andlegt“ framhaldslíf, sbr. það sem segir um orðstír í Hávamálum, og það markmið einstaklingsins að verða söguleg- ur, gera þá hluti sem eru í frásögur færandi). í krafti tvífarans binst maðurinn „hinum“ heiminum, fær jafnvel rofið mörk tíma og rúms og nýtt sér yfimáttúrleg öfl, til góðs eða ills. Tvífarinn í íslendingasögum á ekki mikið skylt við þá sjálfsköfun sem einkennir tví- fara í seinni tíma bókmenntum. Fombók- menntir okkar útmála ekki innra líf persóna sinna og lýsa ekki sálarstríði nema óbeint og í kveðskap sögupersóna. En tvífarinn opnar sýn í annan heim. Sýnin opnast manninum þegar tvífarinn tekur völdin, og það er auðvitað helst þegar maðurinn er ekki fullkomlega „sjálfs síns herra“: í svefni, óráði og á dauðastundinni. í svefni gátu forfeður okkar gægst inn í annan heim, hann var þeim því ekki bara líkamleg líkn: „Svo er mér þungt í dag sem þá jafnan er að sækir nokkuð og skal nú sofa í dag“, segir Finnbogi í Finnboga sögu ramma (41:669). Svefninum fylgir draumurinn, aðalheimild forspárra manna um örlögin og það sem koma skyldi. Það er ekki að ástæðulausu sem talað er um draum\farir og svefnifarir og þær stundum sagðar harðar (sbr. Gísla sögu). Heiðin trú á annan heim samofinn þess- um, hefur enn lifað góðu lífi þegar íslend- ingasögur voru ritaðar, hvað sem leið andúð kristinna manna á fordæðuskap. Einsog Halldór Laxness bendir á í „Fomeskju- tauti“ börðust kirkjunnar menn á móti fjöl- kynngi „ekki af því þeir tryðu því að seiður væri hégilja, heldur af því þeir trúðu að seiður væri raunveruleiki.“16 Og hvort sem menn fallast á kenningu Boyers eða ekki er ljóst að fommenn trúðu því að þeir gætu átt sér fulltrúa í öðrum heimi, og að hugurinn gæti sagt skilið við fangelsi líkamans og lagst í ferðalög. Fomíslenski tvífarinn tilheyrir yfirskil- vitlegum heimi, en það setur ekki að þeim sem mætir honum hroll efans líktog í seinni tíma tvífarasögum. „Tvöfeldnin“ í mann- skilningi íslendingasagna er þáttur í mót- aðri lífssýn. Ekki framandlegur veruleiki sem veldur hugarangri: Sjálfsmynd þess sem á sér dýrafylgju er ekki dregin efa. Fylgjan er fulltrúi örlaganna, en tvífari seinni tíma er fulltrúi þess sem á sér engin örlög, tákn innri sálarkvalar og efa. TMM 1990:3 31
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.