Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 63

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 63
veröldina og okkur sjálf í smækkaðri ímynd alheimsins. Hún er árangur samvinnu þar- sem hlutverk áhorfandans er jafnmikilvægt ef ekki mikilvægara hlutverkum leikenda á sviðinu. Hér er um að ræða ákaflega veiga- mikið atriði í allri umræðu um gildi hinnar fomu tragedíu fyrir nútímann, þareð leik- húsgestur tuttugustu aldar er ekki ævinlega til þess búinn að bregðast við frýjunum og opinberunum tragedíunnar sökum þekk- ingarskorts á baksviði hennar og innbyggð- um eigindum, jafnvel þó hann láti hrærast eða hrífast af því sem fyrir hann ber á leiksviðinu. Skilgreiningar Aristótelesar Enn sem fyrr er Aristóteles besti leiðbein- andinn til skilnings á tragedíunni, jafnvel þó hann hugi meir að formi og tækni en sjálfum kjama tragedíunnar og trúarlegum rótum, sem margir nútímamenn em líka einkennilega glámskyggnir á. Tilvemheim- speki Aristótelesar kemur hér að meiri not- um en umfjöilun hans um skáldskaparlist- ina. Hann segir að þareð hver tegund hafi sitt rétta og viðeigandi form, og hvert form hafí viðeigandi hlutverk í tilvemnni, sem felist í því að fullþroska vem sína, þá sé hið sérstaka form manneskjunnar skilgreint og ákvarðað af skynsemi hennar og hyggju- viti. Með skynseminni grannskoði maður- inn vitnisburð skilningarvitanna og ákvarði hver sé vænlegasta leiðin fyrir hann til að ná endanlegum tilgangi sínum. Samkvæmt þessari forskrift fylgir athöfn vemnd, og er jafnvel spuming hvort til geti verið vemnd án athafnar. En hvort sem Aristótelesi var það ljóst eða ekki, þá var athöfnin, sem tragedían líkti eftir, ekki einhver mennsk athöfn, heldur goðsögn, og í sjónarmiðju goðsagn- arinnar var hetjan og fylgdi óumflýjanlegri athafnastefnu, sem leiddi til neikvæðrar fullþroskunar, ef svo mætti orða það. Eitt af forvitnilegum vandamálum trag- edíunnar, einsog Aristóteles túlkar hana, er það sem hann nefnir hamartía og Kristján Amason nefnir „misferli“ í þýðingu sinni á riti Aristótelesar, Um skáldskaparlistina. Aðrir tala gjama um „tragískan brest“ eða „tragíska veilu“. Þegar Aristóteles fjallar um hina tragísku hetju segir hann: „Það er sá sem hvorki skarar fram úr að dygð eða réttlæti né ratar í ógæfu sakir mannvonzku eða óþokkaskapar, heldur sakir einhvers misferlis og er í hópi þeirra sem njóta mikils álits og velgengni Hamartía hefur valdið talsverðum heilabrotum, að ekki sé sagt hugtakaruglingi, þareð siðgæðispostular hvers tíma hafa staðið á því fastar en fót- unum, að átt sé við einhvem tiltekinn löst í fari hetjunnar eða eitthvert ódæðisverk. Þannig hefur því gjama verið haldið fram, að óhöppin sem dundu á Ödípúsi hafi verið afleiðing þess að hann banaði föður sínum í fjallaskarði, en sá verknaður stafaði aftur af meðfæddu óhóflegu bráðlyndi. Agam- emnon týndi lífinu afþví hann bakaði sér reiði Klýtemnestm konu sinnar með því að fóma Ífígeníu dóttur þeirra í Ális. Aristóteles bregður ekki frekara ljósi á hugtakið hamartía, og má kannski í því gaumleysi greina muninn á heimspeki og skáldskap, muninn á þeirri sérgildu mynd siðferðislegrar hughyggju sem heimspeki hans er dæmi um og þeirri raunhæfu spegl- un mannlegrar reynslu sem tragedían er. Því þegar við raunverulega lifum tragíska atburðarás á leiksviði, þá vaka ekki fyrir okkur heimspekilegar vangaveltur um eig- inlegan tilgang mannsins; við skiljum ekki TMM 1990:3 61
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.