Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Page 70

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Page 70
armannanna. Bubbi bjó svipaða skynjun og Megasar í miklu hversdagslegri búning, kippti henni ofan af stalli skáldsins og sann- færði unglingana um að allir gætu búið til texta, rétt eins og frumpönkaramir höfðu sannfært þá um að allir gætu spilað. ís- lenska nýbylgjan varð jafn sterk og raun bar vitni vegna þess að skipulag hennar var í senn anarkískt og lýðræðislegt. Allir gátu tekið til máls. Jafnframt því sem pönkið var opið öllum, t.d. án tillits til þess hvort þeir kynnu að spila, fylgdi því hvatning eða jafnvel krafa um sköpunargleði. Menn komu sér ekki bara niður á einhvem stíl og héldu sig við hann, heldur voru tónlistarmenn í pönki stöðugt að fikra sig áfram og reyna nýja hluti. Þannig var andinn í félagslegu um- hverfi þeirra öllu. Augljóslega höfðu pönk- aramir lært af sögunni. Þeir forðuðust að festa sig í einföldum skilgreiningum og básum, heldur voru þeir stöðugt á hreyf- ingu. Þetta átti við bæði um tónlist, klæða- burð og önnur þau merki sem þeir sendu til umhverfis síns. íslenska pönkbylgjan hreif aldrei nema lítinn hluta æskunnar fyllilega með sér, sennilega örfá þúsund æskufólks, og utan Reykjavíkursvæðisins var hvergi að finna nema fáeina pönkara á hverjum stað. Samt urðu tugir hljómsveita til í þessum menn- ingarheimi, og flestar þeirra mörkuðu spor með tónleikum og plötum. Áhrif pönksins á íslenska æskumenningu urðu í raun gífur- leg. Eldri kynslóðir poppara lentu í varnar- stöðu, og gátu ekki lengur hvílt makinda- lega á lárviðarlaufum sem fyrri afrek höfðu fært þeim. Margir vilja líta á pönkbylgjuna eins og stormsveip sem feykti burt hrófa- tildri ríkjandi dægurlagamenningar og skiidi eftir auða jörð. Þegar betur er að gáð, er réttara að líkja henni við fjölæra plöntu, sem ryður burt veikburða gróðri og ber — og fellir — síðan eigin blóm. Þegar næsta vetri slotar, vaxa blóm hennar að nýju, og pönkið átti hvað ríkastan þátt í að gera íslenska poppakurinn jafn lífvænlegan og hann hefur verið síðustu misserin. Sé litið á tónlistina eina, ól pönkbylgjan annars vegar upp nýja og metnaðarfulla kynslóð tónlist- armanna, en hins vegar ögraði hún bæði eldri og yngri kynslóð til að vinna sín störf af meiri metnaði en t.d. hafði ríkt síðustu misserin fyrir pönkbylgjuna. Helsti ávinningur pönkbylgjunnar er þó kannski í því fólginn að hún skapaði miklu sterkara félagslegt umhverfí í kringum dægurtónlist en áður hafði þekkst. Hún skákaði t.d. algerlega hippunum sem þó höfðu á tímabili myndað öfluga æsku- menningu. Þráðurinn frá „rokki í Reykja- vík“ hefur aldrei fallið algerlega niður, og úr því félagslega umhverfi spruttu síðar meðal annarra Sykurmolamir. Hér að framan hefur því verið lýst, hvem- ig rokkið nálgaðist smám saman íslenska þjóðmenningu. Eldri dægurtónlistarmenn og plötuútgefendur reyndu að tengja þetta tvennt saman á sjötta og sjöunda áratugnum með því að láta gera íslenska texta við rokkið. Æskunni var hins vegar meira í mun að verða fullgildur aðili að alþjóðlegu sam- félagi æskunnar, og hún lét smám saman meira að sér kveða á menningarsviðinu og varð um leið sjálfstæðari. Tónlistarmenn- imir náðu smám saman valdi á rokkform- inu, krakkamir á dansgólfinu náðu smám saman valdi á dansi, klæðaburði, hár- greiðslu, slangri og fleiru, og samskiptanet æskufólksins urðu smám saman sjálfstæð- ari og öflugri. Hægt er að orða þetta svo að á hippatímanum hafi íslensk æska loks 68 TMM 1991:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.