Tímarit Máls og menningar - 01.06.1994, Síða 51
sjálfum, með öllum hans sérvitringshætti og næstum ótrúlega öflugri tilfinn-
ingu fyrir því sem kalla mætti „veruleika handan veruleikans" — og er
hæfilega óljóst orðalag. Sama ár birtist eitt af mikilvægari heimspekiritum
hans, The Meaning ofCulture. Þremur árum síðar kemur „mammúturinn“,
A Glastonbury Romance, og 1934 Weymouth Sands, þriðja bókin í flokknum.
Samhliða henni sendir hann frá sér sjálfsævisögu sína á 700 blaðsíðum,
skrifaða á níu mánuðum á litlu býli í Hillsdale í New York fylki, verk sem á
sér tæplega hliðstæðu í stíl og anda, nema ef vera skyldi Játningar Rousseaus.
1935 flytur hann frá Ameríku til Wales, kaupir lítið hús í Corwen. Hann lýkur
svo fjórleiknum með Maiden Castle, einu stórvirkinu til. Til samans eru
þessar fjórar bækur á lengd við í leit að liðnum tíma eftir Marcel Proust, og
þætti víst nægilegt ævistarf útaf fyrir sig. Fyrstu þrjár bækurnar skrifar hann
í Ameríku, yfirkominn af heimþrá, og í þeim magnar hann upp andblæ
bernskuslóðanna á þann veg að kalla mætti galdur í orðsins fyllstu merkingu.
Raunar er það svo að landið, í þessu tilviki fæðingarsýsla hans Dorset, leikur
offlega jafn mikilvægt hlutverk og mannfólkið í sögum Powys. Allt öðlast
eins konar vitund; plöntur, steinar, tjarnir — og minnir á hugmyndir
heiðinna manna til forna um náttúruna. Segja má með nokkrum rétti að
dofni yfir hlutunum í Maiden Castle, þar sem sú bók er skrifuð í nánd við
heimahérað hans, það er kominn slaki á þá taug sem „rekka dregur föður-
túna til.“ Svo upptalningu sé haldið áfram, þá kemur árið 1938 bóksem heitir
The Pleasures ofLiterature, rúmar 600 síður með ritgerðum um Proust, Poe,
Wordsworth, Cervantes og fleiri. Þess má til gamans geta að eina safn hér á
landi sem á þetta rit, er Héraðsbókasafnið í Borgarnesi!
Á árunum upp úr 1920 hafði hann fengist mest við heimspekiskrif og
ritgerðir um bókmenntir, frá þeim tíma er eitt meginrita hans úr þeim
„geira“, The Complex Vision, þar sem hann gerir tilraun til þess að steypa
saman í heild margbrotna lífssýn sína, án þess að nota storknunarefni
kerfishugsunar. Fljótlega eftir að Ódysseifur James Joyce kom út, ritaði hann
litla bók um þennan vígahnött módernismans, og varð þar með í hópi þeirra
fyrstu til að benda á verðleika bókarinnar, þó svo hann væri eins ólíkur
íranum og hugsast gat. Út frá þessu varð það svo hlutskipti hans að bera vitni
við réttarhöld í máli sem höfðað var gegn Joyce, og varði þar af einurð hans
Ódysseif, sem forsjárhyggjumenn töldu siðspillandi fyrir ungar stúlkur!
Hugsanlega hefur framganga Powys í þessum réttarhöldum orðið til þess að
gera hann enn tortryggilegri en hann var þegar orðinn í augum afturhalds-
afla, hvað sem því líður var höfðað mál á hendur honum sjálfum þegar A
Glastonbury Romance kom út, fyrir aðrar „sakir“ þó. Voldugur námueigandi
í Glastonbury þóttist bera kennsl á sjálfan sig í heldur óskemmtilegu gervi í
bókinni og fékk Powys dæmdan í háar sektir.
TMM 1994:2
49