Tímarit Máls og menningar - 01.06.1994, Qupperneq 54
fornaldar. „Lestu þessa kalla nokkurn tíma?“ spyr hann. Powys lítur forviða
á hann og svarar: „Hvernig spyrðu Henry minn, ég les þá á hverju ári!“
Hafi álit „þekktra stærða“ í bókmenntunum eitthvað að segja gagnvart
Powys, þá mætti taka fram að meðal þeirra sem hafa talið hann til höfuð-
snillinga tuttugustu aldar, er að finna höfunda á borð við Hermann Broch,
Thomas Mann, Hermann Hesse, Simone de Beauvoir, Peter Handke, Iris
Murdoch og Elías Canetti, auk þeirra sem áður eru nefndir.
Það var eitt haustkvöld nokkrum árum eftir lát John Cowper Powys (hann
lést 1963, á 92. aldursári) að Phyllis ekkja hans var að dútla í eldhúsinu hjá
sér og í rökkrinu úti við hliðið grillir hún í lágvaxinn gráhærðan mann sem
tekur hikandi í hliðlokuna en snýr frá, kemur svo aftur og gengur heim að
húsi og ber að dyrum. Phyllis opnar fyrir honum og hann spyr næstum
feimnislega hvort þetta sé ekki húsið sem John Cowper Powys hafi búið og
starfað í undir lok ævinnar. Hún segir það vera. Þá kynnir hann sig, segist
heita Elías Canetti og hingað hafi hann lengi ætlað að koma. Phyllis bauð
honum inn í tesopa, þar sátu þau lengi kvölds á tali, og hún gat sagt honum
til gleði að aðdáunin hefði verið gagnkvæm, því Powys hefði álitið Die
Blendung eina merkustu skáldsögu aldarinnar.
Þegar litið er yfir feril John Cowper Powys sýnist varla einleikið hve vítt
og breitt hann fer um margþætta heima mannlegrar þekkingar, nánast jafn
auðveldlega og grænlenskur særingamaður um andaheima, og hvernig hann
nær að þenja huga sinn einsog lílcnarbelg milli andstæðra póla í tilfinningum
og vitund manneskjunnar í skáldverkum sínum, spanna allar þær dularfullu
mótsagnir sem búa í manninum og allir vita af en aðeins fáir útvaldir ná að
varpa ljósi á. Sérhver höfundur reynir þetta auðvitað, en þanþol manna er
mismunandi, og sömuleiðis þrek og kjarkur til að læra að þekkja allt í sjálfúm
sér og öðrum.
Kínversk heimspeki forn var John Cowper mjög hugleikán, sér í lagi
hugmyndir taóistans Kwang-Tse (annar ritháttur Zhuang-Zi, valdir kaflar
úr ritum hans eru til á íslensku undir heitinu Vegurinn ogDygðin), sem leggur
áherslu á heild og jafngildi alls lífkerfisins og tilverunnar, og í samræmi við
það var John Cowper vökull gagnvart umhverfisvernd löngu áður en hún
varð tískuefni, sömuleiðis var hann baráttumaður fyrir jafnrétti kynjanna
(um skeið skrifaðist hann á við valkyrjuna Emmu Goldman, sem var kannski
ekki dæmigerður pennavinur miðaldra karlmanns í þá daga!) og allra kyn-
þátta, frjálsræði allra manna, og lét ekki sitja við orðin tóm. Og hann lét ekki
staðar numið við mennina; eftir því sem árin færðust yfír hann barðist hann
af síauknum þunga gegn vísindalegum tilraunum á dýrum, og hafði raunar
margt að athuga við siðferði vísindanna, honum þótti þau í mörgum grein-
um tvöföld í roðinu, og oft yrði sönn mennska að lúta í lægra haldi. Það var
52
TMM 1994:2