Tímarit Máls og menningar - 01.06.1994, Side 116
Yfirgripsmikil en köflótt haglýsing
Sigurður Snævarr: Haglýsing tslands, (Mál
og menning, 1993)
Haglýsing tslands eftir Sigurð Snævarr,
hagffæðing á Þjóðhagsstofhun og kenn-
ara við Háskóla íslands, kom út á síðasta
ári hjá Máli og menningu. Mikil vinna
liggur á bak við bókina, enda er hún um
500 blaðsíður og spannar vítt svið hag-
sögu og haglýsingar íslands. Heimilda-
skrá og neðanmálsgreinar bera þess
merki að víða hefur verið leitað fanga
við samningu hennar. t formála kemur
fram að bókin sé að stofni fyrirlestrar
höfundar á námskeiði um íslenska hag-
lýsingu, sem hann hefur kennt um ára-
bil. Þörfin á slíkri bók mun hafa komið
skýrt fram í kennslunni, en síðasta verk
af þessu tagi fyrir útkomu bókar Sigurð-
ar var Þjóðarbúskapur íslendinga eftir
Ólaf Björnsson, en fyrri útgáfa af þeirri
bók kom út 1952 og sú seinni 1964, og
því löngu úrelt.
Það er athyglisvert að bera saman
bækur Ólafs og Sigurðar. Bók Sigurðar
er að sumu leyti meira verk, þar sem
talnagögn eru ítarlegri, í bókinni er
fjöldi mynda, sem ekki var til að dreifa í
bók Ólafs, og stuðst er við mun fleiri
heimildir. Þetta þarf þó ekki að þýða að
það hafi verið meiri vinna að taka saman
bók Sigurðar. Grunnurinn sem byggt er
á og tæknin sem notuð er, er einfaldlega
betri. Mikið hefur verið unnið í rann-
sóknum á íslensku efnahagslífi og hag-
sögu síðan bók Ólafs kom út. Aðgangur
að talnagögnum og gagnagrunnum er
nú betri en þá var og nútíma tölvutækni
gerir mun auðveldara að semja bækur
sem nýta slíkt talnaefni, m.a. í myndum,
en áður var. Það er einnig athyglisvert að
bera saman efnistökin í þessum tveim
bókum og sjá hvernig tíminn hefur
breytt áherslunum. 1 bók Sigurðar er
meiri áhersla á hagþróun og hagstjórn
en var í bók Ólafs. Einnig er í bók Sig-
urðar leitast við að setja fram og kynna
fræðikenningar um viðfangsefnið, sem
minna bar á í bók Ólafs. Ekki er þó víst
að það sé alltaf til bóta þar sem kenn-
ingahlutinn verður stundum í skötulíki
innan um haglýsinguna og efast má um
nauðsyn hans í mörgum tilfellum.
Þannig þarf miklar einfaldanir til að
fjalla um muninn á kenningum Keynes
og nýklassískrar hagffæði um atvinnu-
leysi á hálfri síðu, eins og gert er á bls.
288.
Haglýsing íslands skiptist í 15 kafla,
þar sem veitt er yfirlit yfir hagþróun,
mannfjölda, mannafla, vinnumarkað og
tekjuskiptingu, farið yfir atvinnuvegi,
náttúruauðlindir, opinberan búskap,
utanríkisviðskipti og útgjöld þjóðarinn-
ar og fjallað um hagstjórn, gengismál,
peningamál og verðbólgu, og er þá ekki
allt talið. Engin leið er að gera grein fyrir
öllu þessu efni í stuttum ritdómi. Ég læt
því nægja að drepa á nokkur atriði, og
staldra helst við þau sem ég hef athuga-
semdir við, eins og oft vill verða. Kafl-
arnir eru auðvitað misgóðir, eins og
búast má við í svona yfirgripsmiklu
verki. Þannig eru kaflarnir um mann-
fjölda og mannafla, tekjuskiptingu og
vinnumarkað vel gerðir og án athuga-
semda af minni hálfu, enda liggur efnið
á sérfræðisviði Sigurðar innan Þjóð-
hagsstofnunar. Hins vegar er umfjöllun-
in um peningamál veik á köflum, eins og
nánar verður fjallað um hér á eftir.
Hagþróun
í fyrsta kafla bókarinnar er gefið yfirlit
yfir hagþróun íslands frá upphafi til
vorra daga. Framan af er stiklað á stóru,
eins og eðlilegt er í riti sem er haglýsing
en ekki hagsaga, en umfjöllunin verður
ítarlegri þegar komið er ff am á þessa öld.
Þróunin er m.a. rakin í nokkrum mynd-
114
TMM 1994:2