Morgunblaðið - 19.02.2015, Side 20

Morgunblaðið - 19.02.2015, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2015 Áþreifanleg vellíðan EDDA HEILDVERSLUN Stofnsett 1932 Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími: 525 8210 eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is 82 ÁRA EDDA Heildverslun Draumur um góða nótt Heildverslun með lín fyrir: • hótelið • gistiheimilið • bændagistinguna • veitingasalinn • heilsulindina • hjúkrunarheimilið • þvottahúsið • sérverslunina Gæði og glæsileiki Heildverslunin Edda hefur um áratuga skeið sérhæft sig sem innflytjandi á líni. Mörg af stærstu hótelum landsins jafnt sem minni nota allt lín frá okkur. Bjóðum einnig upp á lífrænt lín. BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Gististaðir eru ekki heimilir í Örfirisey samkvæmt nýrri deiliskipulagstillögu fyrir svæðið, en fram hafa komið hugmyndir um slík- an rekstur þar. Þá er ekki gert ráð fyrir stækkun eða fjölgun stórmark- aða og skal slík starfsemi vera víkj- andi á svæðinu, segir í greinargerð með tillögunni. Þar er byggt á aðalskipulagi frá síðasta ári og er meginmarkmið hennar að spyrða saman gildandi áætlanir í eina heildstæða deili- skipulagsáætlun. Í greinargerð kemur fram að margar deiliskipu- lagsáætlanir eru í gildi sem sam- anlagt taka til nánast alls skipulags- svæðisins. „Þær hafa verið gerðar eftir því sem eftirspurn og þarfir gáfu tilefni til. Því verður ekki sagt að unnið hafi verið samkvæmt fyrir- fram ákveðinni stefnu til langs tíma hvað varðar byggðarmynstur og umhverfismál,“ segir í greinargerð- inni. Opinn fiskmarkaður Auglýsing skipulagsfulltrúans í Reykjavík er dagsett 16. febrúar og er frestur til að gera athugasemdir til 30. mars. Í auglýsingunni segir að markmið deiliskipulagsins sé að hafnarstarfsemi verði efld og vaxtarskilyrði tryggð, að Vesturhöfn verði áfram miðstöð útgerðar og fiskvinnslu. Í greinargerð segir að á vesturhafnarsvæðinu gegni sjávar- útvegur og vinnsla sjávarafurða áfram lykilhlutverki og ekki verði þrengt að þeirri starfsemi. Til framtíðar hefur verið mörkuð stefna um uppbyggingu á Reykjavík Seafood Hall í tengslum við starf- semi í húsi Íslenska sjávarklasans í Grandagarði 16, segir í greinargerð- inni. Þar segir að útleiga Faxaflóa- hafna á verbúðum við Grandagarð 15-37 til fjölbreyttrar verslunar- og þjónustustarfsemi sé í samræmi við markmið aðalskipulags. Svæðinu er skipt í þrjú svæði hvað varðar landnotkun og er hafnsækin starfsemi í fyrirrúmi. Fjölbreyttari landnotkun s.s. verslun, þjónusta og fínleg atvinnustarfsemi er þó heimil á ákveðnu svæði við Fiskislóð og Grandagarð. Þar er sérstaklega tal- að um matvöruverslanir (stórmark- aði) og segir að slík starfsemi skuli vera víkjandi á svæðinu. Einnig að gististaðir séu ekki heimilir þar. Olíuhöfnin í Örfirisey er ekki hluti þessa deiliskipulags, en við heildar- endurskoðun svæðisskipulags höf- uðborgarsvæðisins verður hugað að framtíðar staðsetningu olíuhafnar. Endurskoðun umferðarmála Gert er ráð fyrir að fjölbreytt menningar og þjónustustarfsemi verði við vestari hluta Grandagarðs og áhugaverð dvalarsvæði og göngu- leiðir við vestur- og norðurhluta Grandagarðs. Fram kemur í grein- argerð að unnið er að endurskoðun umferðarmála á Grandagarði frá Grandatorgi að Járnbraut með það fyrir augum að greiða leiðir fyrir gangandi vegfarendur og hjólandi. Sérstaka skoðun fær gatan frá Grandatorgi að Hólmaslóð sem borgargata. Að stórum hluta tekur skipulags- svæðið til lands á uppfyllingu, en jafnframt er hluti þess gamalt at- hafnasvæði. Talsvert er því um frið- lýst mannvirki á svæðinu og má nefna ytra byrði verbúðanna við Grandagarð, steinhleðslur í Norð- urgarði og hluta steinhleðslna við Víkina og verbúðarbryggju frá Rastargötu til Bótabryggju. Engir gististaðir í Örfirisey  Starfsemi stórmarkaða verði víkjandi  Meginmarkmið nýrrar deiliskipulagstillögu að spyrða saman gildandi áætlanir í eina heildstæða  Hafnarstarfsemi verði efld og vaxtarskilyrði tryggð Morgunblaðið/Eggert Á Grandagarði á góðum degi Mikið líf hefur færst í gömlu verbúðinar á síðustu árum og margir sækja þangað. „Að leggja fram jafn metnaðar- lausar tillögur og raun ber vitni veldur miklum vonbrigðum svo ekki sé talað um samráðsleysið,“ segir í bréfi sem sent var stjórn Faxaflóahafna um miðjan desem- bermánuð. Þar eru gerðar marg- víslegar athugasemdir við deili- skipulagstillögu fyrir Vestur- höfnina. Bréfið er ritað af hálfu eigenda fasteigna á níu lóðum við Fiskislóð og eiganda lóðarréttar á einni lóð til viðbótar. Alls er við- komandi reitur 25.900 fermetrar. Torvelda byggðaþróun Í bréfinu segir m.a. að tillögurn- ar loki fyrir þá möguleika sem hafi falist í nýsamþykktu aðalskipulagi Reykjavíkur um að opna mætti gististaði í flokki II og III á svæð- inu. Nýtingarhlutfall sé langt fyrir neðan það sem heimilað hafi verið á öðrum byggingarreitum í borginni, ákvæði um hámarkshæð veki furðu. Þá sé skipting í flokka eftir svæðum íþyngjandi fyrir Lindberg sem er eigandi mannvirkja á lóðunum. „Í tillögunum vottar ekki fyrir framtíðarsýn um uppbyggingu á svæðinu, þvert á móti torvelda þær alla byggðaþróun,“ segir í bréfinu. Verði dregnar til baka Eigendur Lindberg fara fram á að deiliskipulagstillögurnar verði dregnar til baka og félaginu verði gefinn kostur á viðræðum við borgaryfirvöld um framtíðarupp- byggingu á svæðinu. Bréfið er ritað fyrir hönd FSPB 2 ehf., sem er félag í eigu SPB hf., áð- ur Sparisjóðabanka Íslands. Það er aftur eigandi félagsins Lindberg ehf. sem er eigandi fyrrnefndra fasteigna. Straumur fjárfesting- arbanki hf., fer með eignaumsýslu fyrir hönd skiptaráðanda á eignum þrotabús Sparisjóðabankans. Bréfinu var vísað til umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar og samkvæmt upplýsingum blaðsins munu fulltrúar Lindberg fylgja at- hugasemdum sínum eftir nú þegar deiliskipulagstillagan er komin í formlegt ferli. „Vottar ekki fyrir framtíðarsýn“  Harðorðar athugasemdir frá eigend- um fasteigna á níu lóðum við Fiskislóð Morgunblaðið/Júlíus Byggt á uppfyllingu Margvísleg starfsemi er í húsunum við Fiskislóð. Á fundi stjórnar Faxaflóahafna 14. nóvember var fjallað um deiliskipulag í Örfirisey og var samþykkt að senda tillöguna til hefðbundinnar meðferðar skipulagsráðs Reykjavíkur. Júl- íus Vífill Ingvarsson bókaði eft- irfarandi á fundinum: „Tillagan er að mestu stað- festing á gildandi deiliskipulag- sáætlunum en horfir ekki til framtíðar og þeirra fjölmörgu spennandi tækifæra til byggða- þróunar, sem liggja í svæðinu Enda þótt fulltrúi Sjálfstæðis- flokksins telji tillöguna endur- spegla litla hugmyndaauðgi samþykkir hann að auglýsa hana en setur fyrirvara við end- anlega afstöðu eftir að at- hugasemdir og ábendingar hafa borist frá hagsmunaaðilum og öðrum sem áhuga hafa á byggðaþróun og betri borg.“ Fyrirvari við afstöðu BÓKUN JÚLÍUSAR VÍFILS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.