Morgunblaðið - 19.02.2015, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2015
ar ástæður geta verið fyrir þessu að
sögn Þórólfs. „Það getur til dæmis
verið að fólk komist ekki á þeim tíma
sem það á að koma og svo gleymist
þetta. Stundum næst ekki í fólk eða
það er flutt eða eitthvað slíkt. Það eru
fjölmargar skýringar á því að þátt-
taka er ekki 100%.“
Hann segir ekki ákveðið köllunar-
kerfi í gangi hvað þetta varðar, en
verið sé að endurskoða það.
Aukaverkanir sjúkdóma verri
Að sögn Þórólfs eru mun meiri lík-
ur á alvarlegum aukaverkunum af
völdum þeirra sjúkdóma sem bólu-
sett er við, en af sjálfum bólusetning-
unum. „Af sumum bakteríusýkingum
sem verið er að bólusetja fyrir er það
þannig að 10% af þeim sem fá sjúk-
dóminn deyja og álíka fjöldi fær al-
varlegan skaða. Mislingar geta til
dæmis verið mjög alvarlegir og leitt
til tauga-, heila- eða lungnaskaða hjá
þeim sem veikjast.“
Hann segir minniháttar aukaverk-
anir af bólusetningum algengar, en
þær eru t.d. hiti, eymsli og þroti á
stungustað. „Það er bara merki um
að bóluefnið er að gera það sem það á
að vera að gera: örva ónæmiskerfið.
Þessi viðbrögð eru eðlileg.“
Þá segir Þórólfur alvarlegar auka-
verkanir bólusetningar vera mjög
sjaldgæfar, en þær geti valdið því að
börn fái lost. „Þetta sést kannski hjá
einum af milljón svo þetta er mjög
sjaldséð.“
Mikil fáfræði ríkjandi
Rannveig Gunnarsdóttir og
Tryggvi Pálsson rótarýfélagar skrif-
uðu í gær grein í Morgunblaðið þar
sem þau sögðu fullyrðingar um skað-
semi bólusetninga verða æ algengari
í hinum vestræna heimi, en þær væru
oftast byggðar á óvísindalegri hjá-
fræði klæddri í búning vísinda. Bólu-
setningar hafi bjargað fleiri manns-
lífum en nokkur önnur
heilbrigðismeðferð en þátttaka þurfi
að vera vel yfir 90% til að verjast far-
öldrum. „Það er samfélagsleg skylda
okkar að vinna gegn fáfræði og hjá-
fræði sem er ógn við heilbrigði.“
Sumir alfarið á móti bólusetningum
4 - 12% barna á Íslandi eru ekki bólusett Meginástæðan er hræðsla við aukaverkanir Margir
halda að sjúkdómarnir sem bólusett er fyrir séu ekki lengur til Ekki kallað inn í bólusetningar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bólusetningar Börnum með lögheimili hér á landi er boðin bólusetning gegn tilteknum smitsjúkdómum þeim að
kostnaðarlausu og þátttaka í bólusetningum barna hér á landi er almennt góð eða um 88-96%.
SVIÐSLJÓS
Ingileif Friðriksdóttir
if@mbl.is
Á bilinu 4 til 12 prósent barna á Ís-
landi eru ekki bólusett við helstu
sjúkdómum sem bólusett er við hér á
landi. Þetta kemur fram í svari Krist-
jáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráð-
herra við fyrirspurn Jóhönnu Maríu
Sigmundsdóttur, þingmanns Fram-
sóknarflokksins, um bólusetningar
barna.
Í svari ráðherra kemur fram að
þátttaka í bólusetningum barna hér á
landi sé almennt góð. Gögn um bólu-
setningar barna séu til í miðlægum
gagnagrunni frá árinu 2005 og hafi
tölur um þátttöku barna í bólusetn-
ingum verið nokkuð stöðugar síðan.
Til að ná til þeirra barna sem ekki
hafa verið bólusett sendir sóttvarn-
arlæknir nafnalista til heilsugæsl-
unnar um þá einstaklinga sem ekki
eru bólusettir samkvæmt upplýsing-
um úr gagnagrunninum. Þannig sé
hægt að ná til einstaklinga sem ekki
eru bólusettir og bjóða þeim bólu-
setningu.
Fólk hrætt við aukaverkanir
Þórólfur Guðnason, yfirlæknir
sóttvarna hjá Landlæknisembætt-
inu, segir embættið hvetja fólk ein-
dregið til að láta bólusetja börnin sín,
en það séu þó alltaf einhverjir sem
ekki vilji það af einhverjum orsökum.
Meginástæða þess sé sú að fólk sé
hrætt við aukaverkanir af völdum
bólusetninga. Þá séu sumir alfarið á
móti bólusetningum, og telji jafnvel
betra fyrir börn sín að fá þá sjúk-
dóma sem bólusett er við. Auk þess
segir Þórólfur marga halda að þessir
sjúkdómar séu ekki hér á landi og því
sé óþarfi að bólusetja börn sín. „Fólk
gleymir því að þeir eru ekki hér
vegna þess að það eru svo margir
bólusettir,“ segir Þórólfur.
Að því er fram kemur í svari ráð-
herra er þátttaka í fyrstu bólusetn-
ingum við þriggja og fimm mánaða
aldur best, eða um 95%. Þátttaka get-
ur svo farið að dala eftir það, en ýms-
Síðustu forvöð að sjá kjóla
og orður Vigdísar í Garðabæ
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra, Kristín Ingólfs-
dóttir, rektor Háskóla Íslands, og
Margrét Hallgrímsdóttir þjóð-
minjavörður undirrituðu í vikunni
samning um að Þjóðminjasafn Ís-
lands afhendi Háskóla Íslands
gömlu Loftskeytastöðina við Brynj-
ólfsgötu 5 til afnota.
Safnið hefur haft stöðina til um-
ráða og umsýslu frá árinu 2005, en
að tillögu safnsins féllst forsætis-
ráðherra á að HÍ tæki við ábyrgð
hennar. Háskólanum ber að sjá til
þess að saga hússins á sviði fjar-
skipta verði sýnileg. Loftskeyta-
stöðin var byggð árið 1915 og var
friðuð frá og með árinu í ár.
HÍ fær gömlu Loft-
skeytastöðina
Umferðar- og samgönguþing fer
fram í Norðurljósasal Hörpu í dag,
fimmtudaginn 19. febrúar.
Umferðarþingið verður á milli
klukkan 8 og 12 og samgöngu-
þingið hefst í kjölfarið og stendur
frá klukkan 13 til 17.
Bæði þingin eru skipulögð af inn-
anríkisráðuneytinu, samgönguráði
og Samgöngustofu.
Meðal efnis á umferðarþingi
verður erindi Kristínar Sigurðar-
dóttur læknis um áhrif umferðar-
slysa á mannslíkamann.
Meðal þeirra sem taka til máls á
samgönguþingi er Ólöf Nordal inn-
anríkisráðherra sem kynnir drög
að samgönguáætlun 2015-’26.
Þinga um umferð og
samgöngur í Hörpu
STUTT
Þórólfur segir langflesta hér á landi hliðholla bólusetn-
ingum, eða um 97%, samkvæmt könnunum sem gerðar
hafa verið. Ísland er á svipuðu róli og önnur lönd hvað
varðar þátttöku í bólusetningum, en að sögn Þórólfs er
skráning á bólusetningum þó mun betri hér en annars
staðar.
„Við erum með allt landið undir og alla landsmenn
svo okkar skráning er miklu nákvæmari en annars stað-
ar þar sem aðeins er skoðað eitthvert úrtak.“
Þá segir hann mun betri þátttöku í bólusetningum
gegn HPV-veirunni hér á landi en hjá öðrum þjóðum.
„Það var byrjað að bólusetja gegn HPV-veirunni árið
2011 og við höfum staðið okkur mjög
vel í því að bólusetja stelpur,“ segir
Þórólfur. „Það hefur tekist mjög vel
til með það hér á landi.“
Þá segir hann stöðugt reynt að
hamra á gagnsemi bólusetninga, og
því hvað sjúkdómarnir sem bólusett
er við geti verið hættulegir. „Við
minnum stöðugt á þetta, bæði hér hjá
sóttvarnarlækni og einnig á heilsu-
gæslustöðvunum þar sem verið er að bólusetja. Það er
gríðarlega mikilvægt,“ segir hann að lokum.
Skráning hér á landi betri en í öðrum löndum
97% LANDSMANNA HLIÐHOLL BÓLUSETNINGUM
Þórólfur Guðnason
Nú eru síðustu forvöð að sjá sýninguna Ertu tilbúin, frú
forseti?, en síðasti sýningardagur verður á sunnudag-
inn, 22. febrúar. Sýningin er í Hönnunarsafni Íslands á
Garðatorgi í Garðabæ og þar er til sýnis fatnaður og ýms-
ir fylgihlutir Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi for-
seta Íslands.
Vigdís mótaði hefðir um klæðaburð kvenna í slíku
embætti og þurfti ávallt að huga að klæðnaði fyrir ólík
tilefni. Á sýningunni gefst einnig tækifæri til að kynnast
persónulegum minningum úr forsetatíð hennar. Varp-
að er ljósi á ýmsar siðareglur og hefðir sem ríkja um-
hverfis þjóðhöfðingja og sýnt úrval úr orðusafni Vig-
dísar.
Kjóllinn til hliðar er meðal gripa á sýningunni, en
honum klæddist Vigdís er hún var sett í embætti.
FYRIR
BETRI
BORGARA
LANDSINS
Prófaðu hamborgarasósuna
frá E. Finnsson og gerðu gott betra.
31
18
-V
O
G
–
V
E
R
T.
IS