Morgunblaðið - 19.02.2015, Síða 65

Morgunblaðið - 19.02.2015, Síða 65
65 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2015 Stofuloftið Salurinn tekur 150 manns í sæti. gott að borða. Flestir þekkja Frið- arsúlu Yoko Ono, en færri vita að á vesturhluta eyjarinnar eru verk eftir bandaríska skúlptúrlista- manninn Richard Serra. Þar er einstaklega fallegt að ganga um, spá og spekúlera út frá verkum hans. Í Viðey upplifir fólk friðsæld og vellíðan, sem hefur tvímælalaust jákvæð áhrif þegar kemur að löngum fundasetum og mik- ilvægum ákvarðanatökum. Á sumrin gefst sérstaklega gott tækifæri fyrir hópa til að hristast saman með hópefli, eða með göngu um eyjuna undir leiðsögn, og enda svo á kvöldverð í Viðeyj- arstofu. Það má heldur ekki gleyma því að það er skemmtun í sjálfu sér að sigla yfir Kollafjörð- inn, sérstaklega ef tekin er ferjan frá gömlu höfninni í Reykjavík, þá er þetta um 15 mínútna falleg sigling. Oftast er þó farið frá Skarfabakka, þar eru næg bíla- stæði og ferðin tekur eins og áður sagði aðeins fimm mínútur.“ Erlendir gestir Reykjavíkurborg fékk Viðeyj- arstofu að gjöf frá íslenska ríkinu á 200 ára afmæli borgarinnar árið 1986. Hófst þá mikil uppbygging á húsinu sem tók tvö ár, að sögn Ágústu. „Viðeyjarstofa var opnuð í núverandi mynd 1988 og þar hefur verið veitingarekstur æ síðan, ásamt því að húsnæðið hefur verið leigt út fyrir fundi, veislur, mót- tökur og annað slíkt. Húsgögnin voru endurnýjuð árið 2008 og þá var lögð áhersla að velja íslenska hönnun, í stað þeirrar dönsku sem varð fyrir valinu 20 árum fyrr.“ Aðspurð segir Ágústa vinsælt að boða erlenda gesti á fundi og ráðstefnur í Viðey. „Útlendingar eru sérstaklega áhugasamir um Friðarsúluna og ástæðu þess að Yoko Ono valdi listaverki sínu stað í Viðey. Erlendu gestirnir heillast af friðsældinni og útsýninu til allra átta, það kemur þeim á óvart hve mikið líf var í eyjunni fyrr á öldum og hve mikil saga býr í Viðey.“ Gamla skólastofan Á neðri hæð Viðeyjarstofa eru tvö fundaherbergi, sem hvort um sig rúma um 20 manns, og á efri hæð, stofuloftinu, er 150 manna salur. „Jafnframt nýtist Gamla skólahúsið vel undir fundi og ráð- stefnur; það var reist árið 1928 og heyrði skólinn undir Mýrarhúsa- skóla á Seltjarnarnesi, enda til- heyrði Viðey þá Seltjarn- arneshreppi. Gamla skólahúsið er í austur- hluta eyjarinnar, í um það bil 15- 20 mínútna göngufjarlægð frá bryggjunni; þar er ekki netteng- ing og það hentar vel þeim sem vilja enga truflun. Í Gamla skóla- húsinu eru tvö stór rými sem hvort um sig rúma um 25 manns, annars vegar er um að ræða gömlu skólastofuna og hins vegar íþróttasalinn. Þar er útigrill sem hægt er að nota ef vill og rústir þorpsins frá tímum Milljónafélags- ins eru steinsnar frá skólahúsinu.“ Gallery Restaurant-Hótel Holt annast veitingaþjónustu í Viðeyj- arstofu og er hægt að leigja húsið til fundarhalda með veitingum. „Boðið er upp á fjölbreyttan mat, allt frá léttum kaffiveitingum yfir í margrétta málsverði. Hægt er að sníða veitingar og þjónustu að þörfum hvers og eins hóps. Starfs- fólkið hefur mikla reynslu af því að halda utan um ýmsa viðburði, stóra sem smáa, og funda- og ráð- stefnugestir verða ekki sviknir af þjónustu þeirra.“ Spurð nánar út í siglingar út í Viðey segir Ágústa fyrirtækið Eldingu halda uppi reglulegum áætlunarferðum út í eyjuna allt árið um kring. „Á sumrin er siglt á hverjum degi en á veturna að- eins um helgar. Hægt er að nálg- ast siglingaráætlunina, ásamt öll- um frekari upplýsingum, á videy.com. Hins vegar er mjög al- gengt að hópar vilja fara út í eyju utan hefðbundins áætlunartíma og þá er lítið mál að panta ferju hjá Eldingu. Við eigum í mjög góðu samstarfi við fyrirtækið, þau eru afar liðleg og reyna að verða við öllum óskum viðskiptavina.“ Náttúruperla Viðey í allri sinni dýrð.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.