Morgunblaðið - 19.02.2015, Síða 88

Morgunblaðið - 19.02.2015, Síða 88
88 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2015 Orgelkvartett í heimsklassa Daybreak bbbbn Sigurður Flosason á saxófón og Kjeld Lauritzen á Hammondorgel. Með þeim leika Jakob Fischer á gítar og Kristian Leth á trommur. Storyville, 2015. Á síðasta ári komu út fjórar skífur með Sig- urði Flosasyni saxófónleikara: The Eleventh Hour með Kaupmanna- hafnarkvartettinum, Blátt líf með íslenska org- elbandinu hans og Jakobi Fischer sem gesti, Í nótt- inni með Kristjönu Stef- ánsdóttur og svo eina þriðja straums skífan ís- lenska, fyrir utan Samstæður Gunnars Reynis Sveinssonar. Tveir heimar nefndist hún og hafði að geyma verk eftir Gunnar Reyni, Árna Egilsson og Áskel Másson, skífa sem allir áhugamenn um íslenskan tónskáldskap og spuna verða að eiga. Í þessum mánuði kom svo út önnur skífa Sig- urðar með kvartetti hans og danska Hammond- organistans Kjeld Lauritsens. Daybreak nefn- ist hún, en fyrri skífa þeirra var Nightfall. Á þessari skífu má finna sjö söngdansa auk tveggja verka meistara Ellingtons. Annað þeirra er „I Like The Sunrise“, ballaðan yndis- lega úr Líberíu-svítu meistarans, sem sungin var af Al Hibler í frumflutningi. Hér er gengið rösklega til verks og ballaðan máluð nýjum lit- um, sem heppnast fullkomlega og er þetta eitt albesta verk skífunnar, ásamt frábærri túlkun Sigurðar á „Dreamsville“ Henry Mancini. Sig- urður og gítaristinn Jakob Fischer leika tveir einir upphafið að slagaranum sem við þekkjum best með Sinatra, „In The Wee Small Hours of The Morning“, síðan bætast Lauritsen og trommarinn Kristian Leth í hópinn. Annar glæsisóló Sigurðar er þarna á ferð og mikið væri gaman að fá dúettskífu með honum og Fischer. Hinn titurlitli, svali tónn Sigurðar, sem á stundum ber í sér websteríska þoku, hefur sjaldan notið sín betur en á þessari skífu og hann fer aldrei út af sporinu eins og stundum henti hér áður, þó djarft sé teflt, eins og vera ber í ekta orgelkvartetti. Lauritsen er fantafínn organisti og þó hann leiki bassann með vinstri hendi en ekki fótum, heldur hann uppi sterkri sveiflu ásamt Jakobi gítarista og Leth. Sumt fellur kannski ekki að mínum smekk eins og lat- ínskotið upphaf „Blue Moon“ eða „Softly As in A Morning Sunrise“, en það lag hef ég ekki enn heyrt djassleikara kreista til gleði. Það þarf að gera á því „coltranískan“ uppskurð líkt og saxó- fónleikarinn gerði á „My Favorite Thing“ eftir sömu höfunda, Rodgers og Hammerstein. Aft- ur á móti hefur kvartettnum tekist nokkuð vel að nota stafróf djassins á söngdans þeirra úr Oklahoma, „Oh, Wath A Beautiful Morning“, með blússkotnum sóló Jakobs Fischers í heið- urssæti. Þar hleypir Sigurður djassfola sínum á sprett og það sýður á Lauritsen. Flott skífa hvort sem er til að hlusta á í dagrenningu eða glymjandi næturstuði. Hápunktur ADHD ADHD5 bbbbm Magnús Tryggvasen Elíasson á trommur og gjöll, Ómar Guðjónsson á bassa og gítar, Davíð Þór Jónsson á flygil, Hammondorgel og syntha, Ósk- ar Guðjónsson á tenórsax. ADHD, 2014. Fimmta skífa ADHD er hreint hunang og besta skífa félaganna til þessa. Það má segja að draumkenndur djassvefur þeirra, sem í ýmsu minnir á það besta í ís- lensku listpoppi og töfra- heimi eins besta djassgíar- ista norðursins, Jakob Bro, sé kominn á leiðar- enda. Lengra verði ekki náð í þessum stíl. Annar hápunktur á ferli ADHD, tónleikar þeirra í Eldborg á Jazzhátíð Reykjavíkur í fyrra, þar sem nýju og gömlu efni var blandað saman í heildstætt tón- verk, styður ennfremur þá skoðun mína að tími sé til þess kominn að kanna nýja stigu – enda eru þeir ekki listamenn þeirrar gerðar er endur- taka sig eilíflega. ADHD 5 er bæði gefin út á geisladiski og vín- ýl og þar verður mjúkur þokukenndur og getz- ískur hljómur tenórs Óskars Guðjónssonar enn mýkri. Hrynveggurinn að baki markar jafnt taktinn og magnar upp seið. Í upphafi meistara- melódíunnar „Sveðjunnar“ slær Davíð Þór Jónsson flygilinn, annars er Hammondið hans hljóðfæri og hljómar glæsilega eins og gítar Óm- ars Guðjónssonar í fáum markvissum sólóum þeirra er tenórinn þagnar. Magnús Tryggvason Elíasen er jafn ævintýralega góður sem fyrr við trommusettið.Átta lög, hvert öðru betra, og ekki að undra þetta sé vinsælasta djasshljómsveit landsins. Hér er listpoppið undirspil djassins. Millispil þríleiksins Hold bbbmn Árni Karlsson Trio: Árni Karlsson á píanó, Þor- grímur Jónsson á bassa og Scott McLemore á bassa. Árni Karlsson 2014 Hold er önnur skífa í tríólógíu píanistans Árna Karlssonar. Sá fyrsti heitir Mold og ætli sá þriðji beri ekki eitthvert rímorð í samhengi. Mold er að mínu viti besta skífa sem Árni Karlsson hefur sent frá sér og þó Hold sé verðugur fylgi- fiskur er hún ekki eins tær og fyrirrennarinn. Árni ber hér frekar með sér að vera klassískt skólaður pí- anisti og á stundum finnst mér hann vera dálítið kantaður – en á því bar ekki í Mold. Sem fyrr eru laglínur hans draum- fagrar og oft er spuninn rennandi fínn, einsog í „Tímans skauti“, einni fallegustu melódíu disks- ins. Bassaleikur Þorgríms Jónssonar er kraft- mikill og voldugur og kallast á við þungan und- irstraum í píanóleiks Árna. Trommarinn Scott McLemore er svo límið í tríóinu – léttstígari en þeir félagar en hryntraustur með afbrigðum. Ég mæli með þessari skífu og það verður spenn- andi að heyra hvernig lok tríólógíunnar hljóm- ar. Sálmar á atómöld 525 bbbbn Gunnar Gunnarsson á píanó. Með honum leika Ásgeir Ásgeirsson á gítar og Þorgrímur Jónsson á bassa. Dimma, 2014 525 Gunnars Gunnarssonar er öðruvísi píanó- skífa. Gunnar fær til liðs við sig Ásgeir Ásgeirs- son gítarista og Þorgrím Jónsson bassaleikara og er samvinna þeirra hnökralaus. Gunnar er fá- dæma smekklegur pían- isti og hefur allt litróf tón- anna á valdi sínu, frá miðaldamúsík til djass. Hann er ekki djasspíanisti í klassískum skilningi orðsins heldur fyllir þann flokk sem sífellt fer vaxandi í Evrópu og notar aðferðir djassins við að kanna tónsmíðar eigin þjóðar og hefur þannig rifið sig frá bandarískri djassmenningu og skapað nýja list á þjóðlegum grunni og í fáguðum einfaldleika sínum hefur hann markað sér sérstöðu meðal íslenskra djasspíanista, ekki ólíkt og Jan Johansson gerði meðal sænskra. Á þessari ljúflingsskífu endurskapar Gunnar sálma eftir samtímatónskáld og djassista frá Atla Heimi Sveinssyni til Sigurðar Flosasonar. Þarna má finna „Allt eins og blómstrið eina“ úr óperu Gunnars Þórðarsonar um jómfrú Ragn- heiði og „Minningu“ Tómasar R. Einarssonar, sem er einstaklega vel leikin, ekki síst af bassa- leikaranum Þorgrími Jónssyni. Hér er lagið flutt án spuna og oftar er spuninn ekki í fyrir- rúmi í túlkun verkanna. Stundum bregður Gunnar fyrir sig blokkhljómum eins og í þýsk- íslenska sálminum, „Þá lærisveinarnir sáu hann“, sem er ásamt öðrum sálmi, einnig frá því um og eftir 1600, „Þá lærisveinarnir sátu þar“, ævintýralegustu verkin á plötunni. Það er eins og Gunnar færist allur í aukana í þessum gömlu sálmum og láti hina hefðbundnu túlkun er ein- kennir nútímasálmana lönd og leið. Gunnar á eitt lag á diskinum, „Morgunsálm“, þar sem Ásgeir spilar laglínuna undurblítt í upphafi og Gunnar skreytir hljómum. Einfald- leikinn í spunalínum Gunnars og klassískir hljómar leiða hugann að John Lewis – og þar er ekki leiðum að líkjast. Innan sinna marka er þessi skífa nær fullkomin, eins og skífa Flosa- sonar og Lauritzens, og er óbrigðult meðal til að róa hugann og lyfta andanum í veðrabrigðum vetrarins. Undir djassgeislanum Yfirlit yfir nýjar íslenskar djassplötur Vernharður Linnet linnet@simnet.is Morgunblaðið/Golli Fantafínir Rýnir ber lof á Daybreak Sigurðar Flosasonar og Kjeld Lauritzen. Morgunblaðið/Ómar Ljúflingsskífa „Nær fullkomin“ innan sina marka, segir um plötu Gunnars Gunnarssonar. Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi | Opið virka daga 10-18, laugard. 11-15 Nýjar vörur • Vor og sumar Athygli vakti að lagið „Once Aga- in“, í flutningi Friðriks Dórs, fékk fleiri stig en „Unbroken“, sungið af Maríu Ólafsdóttur, í samanlagðri niðurstöðu dómnefndar og síma- kosningar úrslitakvölds Söngva- keppninnar síðastliðinn laugardag. Í einvígi Maríu og Friðriks hafði sú fyrrnefnda hins vegar vinninginn og getur hún þakkað þjóðinni fyrir það. Þá var met sett í símakosning- unni en hátt í 169 þúsund atkvæði voru greidd. Morgunblaðið/Eggert Söngvakeppni María Ólafsdóttir fór með sigur af hólmi á laugardaginn. Dómnefndin valdi Friðrik Dór
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.