Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Page 2
2 Fréttir 9.–11. mars 2012 Helgarblað Hrottaleg hnífstunga Guðgeir Guðmunds­ son var úrskurð­ aður í gæsluvarð­ hald í vikunni en hann stakk Skúla Eggert Sigurz, framkvæmda­ stjóra Lagastoðar, á mánudag. Í DV á miðvikudag var ítarlega fjallað um málið og meðal annars rætt við vini og kunningja Skúla. „Skúli er gæða­ maður sem vill öllum vel. Það talar enginn illa um Skúla, hann er alveg toppmaður,“ sagði kunningi hans úr lögfræðistétt. Vinir og kunningjar Skúla eru harmi slegnir yfir atburðum mánudagsins og hugsanir þeirra liggja hjá Skúla og fjölskyldu hans. Viðvörunarbjöllur í kringum Geir Af vitnis­ burði þeirra sem borið hafa vitni fyrir lands­ dómi að dæma var ekkert hægt að gera til að koma í veg fyrir hrun bankakerf­ isins árið 2008. Ekki er þó hægt að skilja það öðruvísi en að viðvörunarbjöllur hafi glumið alls staðar í kringum Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, og ríkisstjórnina. Björgvin G. Sigurðs­ son, fyrrverandi viðskiptaráðherra, sagði til að mynda fyrir dómnum á þriðjudag að ekkert hefði mátt segja eða gera til að koma ekki af stað alls­ herjarhruni. „Það glitti í að það væru mjög tröllvaxnir atburðir yfirvofandi,“ sagði Björgvin meðal annars. Ofurlaun hjá forstjórum Lykilstjórn­ endur stærstu fyrirtækja landsins hafa hækkað ríflega í launum að und­ anförnu. Segja má að strax eftir hrun og fyrstu árin þar á eftir hafi laun staðið í stað, en svo virðist sem launaskrið stjórnenda sé aftur komið á fulla ferð. Þannig var Jón Sigurðs­ son, forstjóri Össurar, með rúmar 15 milljónir króna í mánaðarlaun í fyrra, en árið 2010 voru laun hans um 13,9 milljónir á mánuði. Hjörleifur Páls­ son, fjármálastjóri Össurar, var með 7,5 milljónir króna á mánuði í fyrra. Árið 2010 var hann hins vegar með um 4,6 milljónir á mánuði. Frá þessu var greint í DV á mánudag. Fréttir vikunnar í DV 1 2 3Ostborgari franskar og 0,5l gos Máltíð Mánaðarins Verð aðeins 1.045 kr. d v e h f. 2 0 12 / d av íð þ ó r Stigahlíð 45-47 | Sími 553 8890 *gildir í mars Mikil aukning hjá Stíga- mótum „Stóru og leiðinlegu fréttirnar eru að við höfum ekki hitt svona margt fólk síðan 1994,“ segir Guðrún Jóns­ dóttir, framkvæmdastýra Stígamóta, við kynningu ársskýrslu samtak­ anna. Þrettán prósenta aukning varð á málum milli áranna 2010 og 2011. Guðrún bendir á að þegar Stígamót voru stofnuð árið 1992 var ekki um önnur úrræði að ræða. Það ár komu 454 mál til kasta Stígamóta, sem er meira en nokkur tímann síðar. Þetta skýrir Guðrún svo að þá hafi samtökin verið að mæta upp­ söfnuðum vanda. Þá segir hún að hafa verði í huga að Barnahús hafi ekki verið til árið 1994. Fjöldi til­ kynntra brota í fyrra var 434, eða meira en eitt á dag. Níu af tíu brotaþolum sem leita til samtakanna eru konur. Karl­ menn voru 11,5 prósent í fyrra en það er rúmu prósenti meira en undanfarin ár. Gerendur eru þó ekki á pari við þetta en samkvæmt ársskýrslu Stígamóta eru gerendur karlkyns í 93,8 prósentum tilkynntra brota. Það þýðir að 424 gerendur voru karlkyns en tíu konur. Farsakenndur landsdómur „Réttarhaldið fyrir landsdómi lítur út eins og farsi, þótt vitnisburðir einstakra vitna bregði nýrri birtu á aðdraganda hrunsins,“ segir Þorvaldur Gylfason, hagfræðiprófessor og stjórnlagaráðsfulltrúi, á bloggi sínu á DV.is. Hann gagnrýnir harðlega fyrirkomulagið og segir það Hæstarétti til minnkunar. „Sakborningurinn gengur um salinn eins og stórstirni og spjallar við vitni. Fréttamað­ ur ríkissjónvarpsins talar við vitni í réttarsal eins og erindreki sakborningsins. Eitt vitnið, eið­ svarið, reytir af sér brandara, og hæstaréttardómararnir í lands­ dómnum veltast sumir um af hlátri,“ segir Þorvaldur og bætir við að þannig fari réttarhöld ekki fram í siðuðum löndum. Hann gagnrýnir að fólkið í landinu fái aðeins að sjá valdar glefsur í sjónvarpinu og að upp­ tökurnar verði læstar í 70 ár. „Svo er ekki að sjá, að for­ maður dómsins sjái neitt at­ hugavert við framgang réttar­ haldsins, sem hefur nú staðið í þrjá daga með óbreyttu sniði.“ V egna gamalla mistaka hjá Sparisjóði Kópavogs gat við­ skiptavinur Íslandsbanka farið inn á heimabanka alls ókunnugs manns og milli­ fært af reikningi hans. „Ég fór inn á heimabankann minn og sá þar reikn­ ing sem ég kannaðist ekkert við. Ég ákvað því að skoða þetta nánar og sá þá að þetta var reikningur manns sem ég þekki ekki neitt. Ég gat fengið yfirlit yfir hans mál og reikninga. Allt inni á mínum heimabanka,“ segir kona sem er viðskiptavinur Íslandsbanka en vill ekki láta nafns síns getið en bendir á að óprúttinn einstaklingur hefði get­ að nýtt sér tækifærið og nælt sér í pen­ ing. Hvetur fólk til að hafa varann á sér Konunni var vitanlega brugðið og ákvað að athuga hvort hún gæti milli­ fært af reikningi mannsins yfir á sinn. Hún tók 10.000 krónur og færði yfir á sinn reikning án vandkvæða en flutti peninginn þó strax aftur yfir. Dag­ inn eftir fór hún í bankann og ræddi við starfsmann þar sem gat ekki gefið henni neina skýringu á þessu. Síðar var henni tjáð að um gömul mistök væri að ræða sem gerð voru hjá Sparisjóði Kópavogs sem síðar varð Byr. Hún og maðurinn hafi lík­ lega haft svipuð notendanöfn og þeg­ ar heimabankar Byrs voru færðir til Íslandsbanka hafi mistökin orðið ljós. Henni finnst ástæða til að fólk viti af þessu og að þetta geti gerst. Hún hvetur fólk til að hafa varann á sér og fylgjast vel með reikningum sínum og prenta út stöðuna með vissu millibili. „Ef fólk getur búið til gott kerfi þá eru aðrir sem eru færir um að gera mis­ tök, hvort sem það er viljandi eða ekki.“ Hún velti fyrir sér öryggi heima­ bankanna og spyr sig hvort það sama gæti ekki komið upp hjá öðrum bönk­ um. Aðeins fjögur tilvik DV hafði samband við Guðnýju Helgu Herbertsdóttur, upplýsinga­ fulltrúa Íslandsbanka, sem benti á að á þriðja tug þúsunda notenda hafi verið fluttir yfir til Íslands­ banka í tengslum við sameiningu við Byr. Í fjórum tilvikum hafi kom­ ið upp frávik sem öll hafi verið leið­ rétt um leið og þeirra varð vart. „Eitt þessara tilvika á sér rætur að rekja til mannlegra mistaka sem áttu sér stað hjá Sparisjóði Kópavogs. Ekki varð ljóst að reikningurinn hafði verið tengdur inn á annan not­ anda fyrr en kerfi Byrs og Íslands­ banka voru sameinuð þar sem kerfi Íslandsbanki birtir slíka reikninga á annan máta. Hvorki var um að ræða villu í kerfum Teris né Íslands­ banka. Við höfum rætt við hlutað­ eigandi aðila og beðið þá velvirð­ ingar,“ segir Guðný. Hún ítrekar að netbanki Íslandsbanka uppfylli strangar öryggisreglur sem gerðar eru til slíkra kerfa og reglulega séu gerðar úttektir á öryggi netbankans. Eins leggur hún áherslu á að um mannleg mistök hafi verið að ræða en ekki kerfisvillu. n Viðskiptavinur Íslandsbanka fékk óvart upplýsingar um annan viðskiptavin Komst í reiKning óKunnugs manns „Ef fólk getur búið til gott kerfi þá eru aðrir sem eru færir um að gera mistök, hvort sem það er viljandi eða ekki. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Íslandsbanki Segir að heimabankinn sé öruggur Heimabankinn Viðskipta- vinurinn sá alla reikninga og færslur annars manns.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.