Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Blaðsíða 26
Á vefsíðu Newsweek, The Daily Beast, er að finna lista með nöfnum 150 kvenna sem taka þátt í ráðstefnunni Women in the World sem haldin er í New York-borg á vegum Newsweek og The Daily Beast. Um er að ræða konur sem koma úr nánast hverjum afkima jarðarinn- ar og úr ólíkum geirum mannlífs og samfélags. Eðli málsins samkvæmt ber hátt konur úr stjórnmálum; forsætisráð- herra, kanslara eða forseta, og nægir þar að nefna til þess að gera nýkjör- inn forsætisráðherra Danmerkur, Helle Thorning-Schmidt, kanslara Þýskalands til allmargra ára, Angelu Merkel, og Ellen Johnson Sirleaf, for- seta Líberíu og einn þriggja hand- hafa friðarverðlauna Nóbels í fyrra. Umræddur listi hefur að geyma vel þekkt nöfn, minna þekkt nöfn og nánast óþekkt. Marisela Morales heitir kona nokkur í Mexíkó. Mar- isela var skipuð ríkissaksóknari af forseta landsins, Felipe Calderon, árið 2011 fyrst kvenna. Fyrir var hún aðstoðarsaksóknari og þekkt fyr- ir framgöngu sína í baráttunni gegn skipulögðum glæpum. Marisela Morales hefur þurft að greiða hátt gjald fyrir framgöngu sína; árið 2010 var bróður hennar rænt og hann síð- an drepinn. Um var að ræða hefnd glæpasamtaka sem hún hafði sótt mál gegn. Í fyrra heiðruðu Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, og Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Mariselu fyrir ódrep- andi baráttuanda. Frægð eða fátækt Í hópi þeirra 150 kvenna sem heiðra munu ráðstefnuna með nærveru sinni er leikkonan Angelina Jolie. Hvaða álit sem fólk hefur á holdafari leikkonunnar eða leikhæfileikum ætti það að geta sammælst um dugn- að hennar í þágu mannúðar- og góð- gerðamála. Árið 2001 var Angelina Jolie út- nefnd sendiherra umboðsskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í málefnum flóttamanna (e. Goodwill Ambassa- dor for the United Nations High Commissioner for Refugees), og hefur beitt áhrifum sínum og frægð í þágu málefna flóttamanna, meðal annars til að koma upp skólum og sjúkramiðstöðvum í Kenía, Eþíópíu og Afganistan. Óhætt er að segja að afganska konan Fawzia Koofi hafi ekki átt láni Angelinu að fagna. Fawzia er eina stúlkan í sinni fjölskyldu sem fékk að mennta sig. Hún hefur verið sjö ár á afganska þinginu og hefur orðið skotspónn íhaldsafla þar í landi sök- um óttaleysis síns og framsækinna sjónarmiða. Fawzia Koofi stefnir ótrauð á framboð í forsetakosningum árið 2014 þrátt fyrir að slíkt muni valda mikilli reiði á meðal talíbana. Svo lengi sem Fawzia lífsandann dregur mun hún einskis láta ófreistað til að „… leiða þjóð sína úr hyldýpi spill- ingar og fátæktar,“ sagði hún í viðtali við The Daily Beast. Litla þúfan Fyrir einu ári var Camila Vallejo eins og hver annar námsmaður í Chile-há- skólanum. En síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og mörg orð verið töl- uð og þessi 23 ára kona er eitt þekkt- asta andlit stjórnmálaafls sem hef- ur skekið hefur undirstöður sitjandi forseta landsins, milljónamæringsins Sebastians Pineira. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi en Camila hefur ekki langt að sækja baráttuandann því hún er dóttir Rei- naldos Valleja og Marielu Dowling, tveggja sögufrægra meðlima chileska kommúnistaflokksins og aðgerðas- inna í andspyrnuhreyfingu landsins í valdatíð einræðisherrans Augustos Pinochet. Vatnaskil urðu í lífi írönsku kon- unnar Tölu Raassi eftir að hún hélt upp á sextán ára afmæli sitt í Teher- an, höfuðborg Íran. Í miðjum veislu- höldum lét lögreglan til skarar skríða og Tölu og vinum hennar var kastað í grjótið – sök hennar var að klæð- ast vestrænum fatnaði, í þessu tilfelli stuttu pilsi. Eftir fimm daga á bak við lás og slá voru hún og vinir hennar húðstrýkt og sem fyrr segir urðu vatnaskil hjá Tölu. Að menntaskóla loknum flutti hún til Washington í Bandaríkjunum þar sem hún kom á laggirnar tískufyrir- tæki og hannar nú sína eigin línu. „Í mínum huga merkir tíska frelsi,“ hefur The Daily Beast eftir Tölu Raassi. Dómari og díva Georgina Theodora Wood var skipuð æðsti yfirmaður dómsmála í Gana í júní 2007 og varð ekki einasta fyrsta konan til að gegna því embætti held- ur hafði engin kona í sögu landsins gegnt jafn háu embætti. Georgína Thedora Wood hefur verið ungum stúlkum sem hyggja á svipaðan frama bæði hvatning og fyrirmynd. Associated Press sagði óperu- söngkonuna Önnu Netrebko vera „ríkjandi nýja dívu 21. aldar“ og tíma- ritið Playboy sagði hana vera „kyn- þokkafyllstu konu klassískrar tónlist- ar“. Hvort heldur hrósið hún metur meira má segja að saga hennar sé í anda Öskubusku. Fyrstu skrefin inn- an veggja óperuhúsa tók Anna inni á salernum þeirra sem hún sá um að þrífa, en nú hefur hún nánast unnið með öllum helstu óperum heims og unnið til fjölda viðurkenninga. Árið 2002 spreytti Anna sig í fyrsta skipti á fjölum Metropolitan-óper- unnar er hún söng hlutverk Natösju í Stríði og friði Prokofievs. Samkynhneigðir í Úganda Kasha Jacqueline Nabagesera ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægst- ur í Úganda. Yfirvöld þar í landi hafa bannað samkynhneigð með lögum og varðar hún allt að 14 ára fangelsisvist. Kasha hefur ákveðið að láta sig málið varða og sökum afskipta hennar á hún oftar en ekki yfir höfði sér dvöl á bak við lás og slá. Reyndar gott betur því nafn hennar var á „lista yfir samkyn- hneigða“ sem bar yfirskriftina „Hengj- um þau“. Einn vinnufélaga hennar, David Kato, var einnig nefndur til sögunn- ar á áðurnefndum lista og var myrtur þremur mánuðum eftir að listinn var birtur. Fyrir vikið hefur Kasha séð sér þann kost vænstan að flytja hús úr húsi og ekki dvelja of lengi á sama stað. En hún hefur ekki látið neinn bilbug á sér finna og heldur ótrauð áfram baráttu sinni fyrir réttindum samkynhneigðra. Löng leið að lýðræði Búrmnesku baráttukonuna Aung San Suu Kyi þarf vart að kynna fyr- ir nokkrum manni, enda fyrir löngu orðin táknmynd baráttu fyrir lýð- ræðisumbótum í heimalandi sínu. Stallsystir hennar, Zin Mar Aung, er ekki eins vel þekkt en hefur þó til- einkað líf sitt lýðræðisbaráttu, aukn- um áhrifum kvenna og því að finna lausn á þeim átökum sem einkennt hafa Búrma. Zin Mar Aung tók þátt í aðgerð- um námsmanna sem börðust fyr- ir lýðræðisumbótum í Búrma árin 1996 og 1998. Stjórnvöld í Búrma kunnu henni litlar þakkir fyrir og hún var dæmd til fangelsisvistar og var í fangelsi í meira en áratug. Eftir að Zin Mar Aung losnaði úr fangelsi tók hún upp þráðinn þar sem frá var horfið og hefur meðal annars sett á stofn sjálfshjálparsam- tök fyrir konur sem hafa setið í fang- elsi af pólitískum ástæðum. Einnig tók Zin Mar þátt í stofnun Rainfall – samtaka sem hafa að markimiði að auka áhrif og styrk kvenna. Hér hefur aðeins verið drepið á nokkrum þeirra kvenna sem taka þátt í Women in the World-ráðstefn- unni í New York-borg. Nánari upp- lýsingar er að finna á vefsíðu News- week. Heimildir Newsweek, The Daily Beast Wikipedia og fleiri. Anna Netrebko Leið hennar lá úr salernisþrifum upp á fjalir virtra óperuhúsa. Beitir sér fyrir málefnum flóttamanna Angelina Jolie lætur ekki sitt eftir liggja í Kenía, Eþíópíu og víðar. Kasha Jacqueline Nabagesera Bar- áttukona fyrir réttindum samkynhneigðra í Úganda. Nafn hennar er að finna á lista manna sem hugsa henni þegjandi þörfina. Georgina Theodora Wood Engin kona hefur náð jafn miklum frama í sögu Gana. Fawzia Koofi Situr á afganska þinginu og hefur háleit markmið. „Svo lengi sem Fawzia lífsandann dregur mun hún einskis láta ófreistað til að „ … leiða þjóð sína úr hyldýpi spillingar og fátæktar.“ Kolbeinn Þorsteinsson blaðamaður skrifar kolbeinn@dv.is 26 Erlent 9.–11. mars 2012 Helgarblað Konur með KjarK n Konur sem láta ekki að sér hæða hittast í New York Camila Vallejo Hefur látið að sér kveða í Chile í baráttu fyrir umbótum í menntunarmálum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.