Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Blaðsíða 42
42 Viðtal 9.–11. mars 2012 Helgarblað
M
aría Birta Bjarnadóttir er
23 ára. Hún hefur rekið
verslun á Laugaveginum
í fjögur ár en hefur slegið í
gegn í kvikmyndum und
anfarin tvö ár. Fyrst vakti hún athygli
í unglingamyndinni Óróa en sést nú
á hvíta tjaldinu í vinsælustu mynd
inni á Íslandi, Svartur á leik. Þá standa
tökur yfir á kvikmyndinni XL þar sem
María Birta leikur eitt aðalhlutverk
anna á móti Ólafi Darra. María Birta
er miðborgarstelpa. Svo mikil að hún
tók ekki bílpróf fyrr en á síðasta ári þar
sem hún bæði bjó og starfaði í bæn
um.
„Ég hélt alltaf að ég þyrfti ekkert á
því að halda en nú skil ég ekki hvern
ig ég fór að þessu,“ segir María Birta
og brosir. Hún ólst upp í Vesturbæn
um og eyddi drjúgum tíma með föð
ur sínum þar sem hann starfaði á
skemmtistaðnum Gauki á Stöng. „Ég
segi stundum að ég hafi alist þar upp
að hluta. Ég var oft að hjálpa þar til í
eldhúsinu og svona. Mér fannst það
alveg klikkuð breyting þegar ég flutti í
Grafarvoginn tólf ára,“ segir María og
játar því hlæjandi að hún vilji halda sig
sem næst bænum.
Ótrúlegar viðtökur
Svartur á leik var frumsýnd á fimmtu
daginn fyrir viku og hefur aðsóknin
verið með því mesta á íslenska mynd
frá upphafi. Hún hefur fengið fjórar
stjörnur í öllum dagblöðum lands
ins og er keppst við að hlaða mynd
ina lofi. „Viðtökurnar hafa verið alveg
trylltar,“ segir María Birta. „Ég bjóst
ekki við þessu ef ég á að vera hrein
skilin. Vegna þess að þetta er svo gróf
mynd hefði mér ekkert komið á óvart
ef einhver hefði gengið út af frumsýn
ingunni og ég sagði það við Óskar leik
stjóra. En viðtökurnar hafa verið ótrú
legar og miklu betri en ég bjóst við.“
Hún segist snortin yfir velgengn
inni. „Þetta er svolítið fyndið því strák
arnir sögðust ekki ætla að lesa neina
dóma. Það bjóst enginn við að all
ir yrðu svona sáttir en sú virðist vera
staðreyndin og ég er alveg í skýjun
um. Það er eins og ég sagði á Face
booksíðunni minni, ég er einfaldlega
snortin yfir þessu. Nú eru líka að koma
inn á netið alls konar viðtöl sem voru
tekin við okkur eftir gerð myndarinnar
sem er mjög skemmtilegt.“
Vildi hverfa á frumsýningu Óróa
María Birta kemur nakin fram í mynd
inni og þurfti hún að sitja í sal fullum
af fólki og horfa á sig bera sig á hvíta
tjaldinu. Henni leið ekki vel til að byrja
með en fljótlega leið það hjá. „Ég bjóst
við að ég myndi fríka út. Þegar ég fór
á frumsýningu Óróa langaði mig bara
að hverfa. Allan tímann vildi ég að það
væri takki sem ég gæti ýtt á og horfið
niður í gólfið. Í byrjun á Svartur á leik
var hjartað alveg á fullu en eftir svona
korter var ég orðin alveg sallaróleg. Ég
var svo sjúklega ánægð því ég vissi að
myndin myndi alveg slá í gegn,“ seg
ir María Birta sem hugsaði ekki einu
sinni út í fólkið sem sat í salnum með
henni og sá hana nakta.
„Ég hafði bara ekkert hugsað þetta
þannig. Ég var ekkert að pæla í því að
ég væri eitthvað nakin. Málið er að ég
breytti mér svo mikið fyrir þetta hlut
verk að mér fannst ég ekkert vera að
horfa á mig sjálfa. Það er öðruvísi en í
Óróa þar sem ég þurfti ekki að breyta
mér neitt og mér fannst það rosalega
óþægilegt. Mamma vill reyndar að við
förum saman aftur á myndina því hún
sagðist hafa verið svo stressuð og beið
bara alltaf eftir því að ég kæmi aftur á
skjáinn. En ég veit reyndar ekki hvort
ég geti það. Það verður svolítið bjána
legt ef ég er alltaf að fara að sjá mig aft
ur,“ segir María og hlær við.
Vill krefjandi verkefni
María Birta er nú við tökur á kvik
myndinni XL þar sem hún leikur
Það eru fáir heitari í dag en leikkonan og verslunareig-
andinn María Birta Bjarnadóttir. Hún leikur stórt
hlutverk í vinsælustu mynd landsins, Svartur á leik,
þar sem hún kemur nakin fram og finnst það ekkert
mál. Hún lifir hvern dag eins og hann sé hennar síðasti
og keppist við að taka eins mörg próf og hún getur.
Tómas Þór Þórðarson settist niður með Maríu Birtu
í vikunni þar sem hún sagði frá uppeldinu fyrir framan
myndavélina, verslunarrekstrinum á Laugaveginum,
fáránlegu áramótaheitunum og hvernig það er að
vera ungur og frægur á Íslandi í dag.
„Ég er
bara
örugg“
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Viðtal
„Það má kannski
alveg segja að ég
sé svolítið stjórnsöm.
Nektin ekkert mál
María Birta kippir sér
ekki upp við að sjást
nakin á hvíta tjaldinu.
myNdir sigTryggur ari