Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Blaðsíða 62
62 Sport 9.–11. mars 2012 Helgarblað H eimildamynd sem BBC sýndi í byrjun vikunnar um eigendur úrvalsdeildarliðs- ins Queens Park Rangers og samskipti þeirra við undir- menn sína hefur vakið mikla athygli knattspyrnuáhugamanna. Myndin sýnir berlega hvernig gengi liðs hrak- ar þegar eigendurnir skipta sér ekki bara af rekstrinum heldur líka inná- skiptingum þjálfarans. Myndin QPR – The Four Year Plan (Fjögurra ára áætlunin) sýnir allt það sem maður hafði heyrt af en hélt að gæti ekki gerst hjá ensku úrvalsdeild- arliði. Eitt af því sem er sagt hafa orðið André Villas-Boas, þjálfara Chelsea, að falli var að hann leyfði eigandanum, Roman Abramovich, að komast of nærri liðinu. Eftir erfið- an kafla hjá liðinu í vetur á Abramo- vich að hafa tekið sig til og fylgst með liðinu á æfingum, svipað og skóla- meistari fylgist með kennara sem nemendurnir hafa kvartað undan. Í úrvalsdeild á fjórum árum Óveðursskýin vofðu yfir Loftus Road sumarið 2007. Liðið var búið að vera í miklum fjárhagsvandræðum og fallhættu úr ensku B-deildinni árin á undan. Í ágúst komu frelsararnir. Bernie Eccelstone, sem rekur Form- úlu 1-sirkusinn, og Flavio Briatore, sem stýrði Renault-liðinu, eignuð- ust 70% í félaginu. Í desember keypti Lakshmi Mittal, sjötti ríkasti mað- ur heims, þriðjung í félaginu. Amit Bhatia, tengdasonur hans, tók sæti í stjórninni á hans vegum. Nýju eigendurnir lögðu upp með fjögurra ára áætlun með það markmið að koma liðinu í úrvals- deildina. Þeir veittu einnig hópi heimildamyndagerðarmanna ótak- markaðan aðgang að sér. Þeir fjár- mögnuðu myndina en höfðu ekkert að segja um hvað var notað. Í það minnsta Briatore hefði eflaust verið til í að fegra myndina af sér. Skipa þjálfaranum fyrir með SMS Sagan hefst í raun ári seinna þegar Iain Dowie er þjálfari liðsins. Tveir hausar höfðu þegar fokið undir nýju stjórninni. Dowie situr við hlið Bria- tore í stúkunni á leik með varaliðinu þar sem Ítalinn formælir leikmönn- unum en rekur síðan þjálfarann nið- ur á hliðarlínuna með þau skilaboð til liðsstjórans að senda boltann oftar á ítalskan leikmann sem er til reynslu hjá félaginu. Dowie segir aðstoðar- manninum í leiðinni að hann ætli ekki að láta undan öllu því sem Bria- tore skipi. Dowie er loks rekinn eftir a n Heimildamynd BBC um QPR vekur mikla athygli n Afskiptasemi eigenda hefur áhrif á árangur liðsins ðeins 15 leiki. Vinningshlutfall hans er yfir 50%, hið langhæsta meðal þeirra tíu stjóra sem QPR hefur verið með und- anfarin fimm ár. Bráðabirgðaþjálfarinn þykir öllu meðfærilegri. Briatore og ítalskir að- stoðarmenn hans eru sýndir á æfingu kvöldið fyrir leik, ræða saman um hvernig best sé að koma skipunum til þjálfarans á meðan leik stendur. Ekki má hringja beint í aðalþjálfarann, það er of augljóst. Niðurstaðan er að senda SMS á aðstoðarþjálfarann. Vandræðalegt að vera bara með einn framherja í heimaleik Þar sjást menn sem hafa óbilandi trú á eigin viti. Enginn þeirra hefur sér- staka þekkingu á fótbolta. Briatore kemur úr Formúlu 1. Stjórnarfor- maðurinn, Gianni Paladini, er Ítali sem fluttist til Englands á sjöunda áratugnum og auðgaðist á fasteigna- viðskiptum. Hann liðkaði síðan fyrir komu fyrstu Ítalanna í enska boltann, svo sem Fabrizio Ravanelli. Allt í einu er hann farinn að reka QPR. Þeir fá síðan staðfestingu á eigin snilli þeg- ar varamaðurinn þeirra skorar sigur- markið í heimaleik á lokamínútunni. Fögnuður þeirra er einlægur. Nýr þjálfari, Portúgalinn, Paolo Sousa, er fljótlega kynntur. Sá end- ist ekki lengi. Hann lendir upp á kant við stjórnina því hann vill eigin leik- menn. Hann stillir upp í 4-5-1 leik- aðferðina á heimavelli. Það þykir eigendunum vandræðalegt. Þegar Sousa lætur reka sig af velli í hálfleik notar Paladini tækifærið til að fara niður í klefa og skipa aðstoðarþjálfar- anum að bæta við öðrum framherja. Að auki láta þeir markahæsta mann liðsins fara án þess að spyrja Sousa. Eftir að Sousa bregst við með að segja sannleikann á blaðamannafundi eru dagar hans taldir. „Hér erum við jákvæðir“ Ekki tekur betra við. Tímabilið á eft- ir, 2009–10, eru þjálfararnir fjórir og liðið í fallhættu þegar Neil Warnock er ráðinn. Þá er Briatore reyndar hættur daglegum afskiptum af fé- laginu og Amit Bhatia orðinn stjórn- arformaður. Bhatia er sigurvegari myndar- innar. Hann er sífellt að endurskoða reksturinn, allt frá matseðlinum yfir í blómaskreytingarnar, til að reyna að spara. Bhatia gefur Warnock frið. Hann styður hann, treystir honum til að sjá um fótboltaliðið. Hann breyt- ir líka hugarfarinu innan stjórnar- innar. Eftir að Paladini stendur upp, þegar QPR klúðrar dauðafæri og hreytir út úr sér orðaflaumi á ítölsku, sem er þýddur en örugglega ekki fallegur, bankar Bhatia kurteislega í lærið á honum og segir: „Gianni. Þegar við sitjum hér þá öskrum við ekki á leikmennina. Hér erum við jákvæðir.“ Segja má að öll vinnu- brögð Bhatia séu eins og klippt út úr kennslubók í stjórnun. Jákvæðnin skilar sér. Liðið er í efsta sæti deildarinnar allt tímabil- ið 2010–11. Myndinni lýkur í raun á fagnaðarlátunum yfir deildarmeist- aratitlinum vorið 2011 sem markar endurkomu félagsins í úrvalsdeild- ina eftir fimmtán ára fjarveru. Fjögurra leikja áætlunin Átökin innan félagsins hafa haldið áfram. Bhatia vék úr stjórninni eftir síðasta tímabil eftir deilur um miða- verð en kom aftur inn í nóvember. Í millitíðinni seldu Eccelstone og Bria- tore hlut sinn til malasíska auðjöf- ursins Tony Fernandes. Sá er jafn- framt stjórnarformaður í dag. Eftir góða byrjun á tímabilinu fór að halla undan fæti. Fernandes brást við með sömu örvæntingunni og forverar hans, rak Warnock og réð Mark Hug- hes í janúar. Um leið bættust nýir leikmenn við en það hefur lítið bætt gengið. Meginlærdómur myndarinnar er tvískiptur. Vertu jákvæður og ekki skipta þér af því sem þú hefur ekki vit á. Þekktu takmarkanir þínar, treystu undirmönnum þínum. Allt þetta þverbrýtur Briatore. Nokkrir tímar í stjórnun í endurmenntun Háskóla Íslands hefðu getað borgað sig fyrir hann. Gallinn er samt sennilega sá að hann hefði trúlega verið búinn að reka kennarana eftir tvo tíma og verið farinn að kenna sjálfur. Það borgar sig líka að gera áætlanir og hafa dug í sér til að standa við þær, jafnvel þótt að illa gangi á stundum. Heiti myndar- innar, Fjögurra ára áætlunin, er eig- inlega rangheiti. Fjögurra leikja áætl- unin væri nær lagi, miðað við hversu ört er skipt um þjálfara. Gunnar Gunnarsson Afskipti eigenda hafa vond áhrif n Heimildamynd BBC um QPR vekur mikla athygli Afskiptasamur Briatore skipti sjálfur inn á framherja. Upplifað vitleysuna Heiðar Helguson hefur verið í QPR undir stjórn Briatore. Mynd reUterS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.