Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Blaðsíða 37
Frábært og
hvetjandi
Það er frábært og hvetjandi fyrir okkur að vinna svona verðlaun,“ segir Selma
Hreggviðsdóttir sýningarstjóri (ó)sýn sem
ásamt Ragnhildi Jóhanns hlaut Menn-
ingarverðlaun DV í flokki myndlistar fyrir
sýninguna. (Ó)sýn var sett upp í Gerðar-
safni í tilefni af útgáfu annars tölublaðs
Endemi, tímarits sem stofnað var til fjalla
um samtímalist íslenskra kvenna. „Við lít-
um á blaðið sem gallerí. Við gefum lista-
konunum opnurými sem þær vinna svo
með í blaðinu, það er að segja í því tvívíða
rými um leið og unnið er með sýningar-
rými,“ segir Selma.
Þótt verðlaunin hafi verið veitt fyrir
uppsetningu sýningarinnar (ó)sýn í Gerð-
arsafni er af augljósum ástæðum ekki
auðvelt að aðskilja tímaritið frá sýning-
unni enda helst hún í hendur við útgáfu
blaðsins. Þetta má greina í umsögn dóm-
nefndar um sýninguna þar sem tímaritinu
er hrósað og það sagt vettvangur fyrir nýja
myndlist sem hafi meðal annars það að
hlutverki að rýna í kynjaójafnvægi í lista-
og menningarumfjöllun á Íslandi. „Á sýn-
ingunni og í tímaritinu var kynjahlutföll-
unum snúið við en í almennri umfjöllun
er hlutur kvenna aðeins um 30 prósent á
móti 70 prósenta hlut karla,“ segir dóm-
nefndin.
„Það er ákveðinn kynjahalli í íslenskri
myndlist. Hann lýsir sér fyrst og fremst í
því hvernig valið er á sýningar og sérstak-
lega samsýningar,“ segir Selma og bendir
á að nafnið (ó)sýn sé skírskotun til þess
sem kalla mætti ósýnileika listakvenna. Sá
ósýnileiki segir Selma að lýsi sér ekki bara
í því að athygli beinist fyrst og fremst að
verkum karla. Taka þurfi inn að myndlist
geti verið karllæg. Um þetta fjallar Hlyn-
ur Helgason myndlistarmaður í inngangs-
texta blaðsins og sýningarinnar. „Vitaskuld
er kvenlæga sýnin ekki bundin við konur,
hið sérstæða getur aldrei verið bundið við
neitt hlutverk eða valdaskipan. Hins vegar
er það svo að (karl)menn eiga auðveldara
með að fella sig að hinu almenna: þeirra
er valdið og hefðin,“ segir Hlynur.
„Við lögðum upp með kyngervi sem
vinnuhugmynd að sýningunni. Þeir sem
eru með verk á sýningunni dreypa allir á,
eða tengjast á einhvern hátt, hugmynd-
um um kyngervi, hvort sem er efnis-
lega eða hugmyndalega,“ segir Selma
um hvert hafi verið inntak og innblást-
ur sýningarinnar. Selma segist telja um-
ræðu um kynjahalla í íslenskri myndlist
nokkuð sterka. Hún telur að almennt sé
meðvitund um að til staðar sé ákveðinn
kynjahalli. „Mér finnst umræðan eiga sér
stað. Við finnum allavega fyrir miklum
meðbyr,“ segir Selma. „Við erum að gera
þetta af hugsjón og með aðstoð styrkja.
Blaðið rétt rúllar fyrir prentkostnaði,“
segir Selma en bendir á að það sé mik-
ilvægt að gefa út blað um íslenska sam-
tímalist enda sé slíkt efni af skornum
skammti.
Selma Hreggviðsdóttir Sýningarstjóri
(ó)sýn sem ásamt Ragnhildi Jóhanns hlaut
menningarverðlaun DV í flokki myndlistar.
mynd EndEmi
37m e n n i n g a r v e r ð l a u n d v 2 0 1 17 . m a r s 2 0 1 1 myndlist
tónlist
Sýningin (ó)sýn hlaut menningarverðlaun DV í flokki myndlistar
„Við finnum allavega fyrir miklum meðbyr.
Þetta er bara heiður og skemmtilegt að hljóta við-urkenningu. Það er ekki
leiðinlegt,“ segir Kristján Páll Kristjáns-
son, bassaleikari hljómsveitarinnar Of
Monsters and Men, sem hlaut Menning-
arverðlaun DV í flokki tónlistar árið 2011.
Meðlimir hljómsveitarinnar voru þó
fjarri góðu gamni þegar verðlaunin voru
afhent, enda stödd í Þýskalandi þar sem
þau flakka á milli útvarpsstöðva og kynna
sig í viðtölum. „Við erum að keyra og
akkúrat í þessum orðum töluðum erum
við að lenda í Hamborg, að hitta frúna
í Hamborg,“ segir hann og slær á létta
strengi. Bætir því svo við að það geti verið
erfitt að eiga við frúna, enda megi hvorki
svara henni játandi né neitandi.
Um er að ræða vikuferðalag um Þýska-
land og Kristján segir þau búin að mæta í
ansi mörg viðtöl hjá fjölmörgum útvarps-
stöðvum síðustu daga.
„Áttu ótrúlega flott ár“
Of Monsters and Men bar sigur úr býtum í
Músíktilraunum árið 2010 og fór þar með
sjálfkrafa á dagskrá Icleand Airwaves-há-
tíðarinnar það sama ár. Þá fóru hjólin að
snúast og leiðin hefur stöðugt legið upp á
við. „Áttu ótrúlega flott ár,“ segir í umsögn
dómnefndar um sigurvegarana og er þar
átt við árið 2011.
Þau gáfu út plötuna My Head Is An
Animal og komu meðal annars laginu
Little Talks á toppinn hjá útvarpsstöð í
Fíladelfíu. Lagið var líka á toppi íslenskra
vinsældarlista sumarið 2011. Var það mat
dómnefndar að framtíð hljómsveitarinn-
ar væri björt.
missa af Las Vegas
Plata sveitarinnar verður gefin út bæði í
Bandaríkjunum og Kanada þann 3. apríl
næstkomandi. Í næstu viku leggur hljóm-
sveitin svo af stað í mánaðarlangt tón-
leikaferðalag um Bandaríkin sem hefst á
Southwest Southwest-tónlistarhátíðinni í
Austin í Texas. „Svo þræðum við Banda-
ríkin að stórum hluta. Við förum reyndar
ekki til Las Vegas og ég grét mikið vegna
þess. Mig langaði svo mikið að fara í spila-
víti,“ segir Kristján. Í raddblæ hans má þó
ekki greina mikla sorg svo blaðamann
grunar að ekki búi mikil alvara þar að
baki.
Umbreyttust í rokkstjörnur
Hljómsveitina skipa, ásamt Kristjáni,
þau Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, Ragn-
ar Þórhallsson, Brynjar Leifsson, Arn-
ar Rósenkranz Hilmarsson og Árni Guð-
jónsson. Á Facebook-síðu sinni lýsa þau
sér sem hópi dagdraumafólks sem spilar
þjóðlega tónlist. Þau segjast þó hafa um-
breyst í algjörar rokkstjörnur eftir sigurinn
í Músíktilraunum. „Við bara einhvern veg-
inn unnum,“ er haft eftir Nönnu Bryndísi,
söngvara og gítarleikara, á síðunni. „Við
bjuggumst engan veginn við því.“
solrun@dv.is
Hljómsveitin Of Monsters and Men sigraði í flokki tónlistar
Eru að hitta
frúna í Hamborg
Björt framtíð Var það mat dómnefndar að hljómsveitin Of Monsters and Men hefði átt ótrúlega
flott ár og að framtíð hennar væri björt.