Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Blaðsíða 19
Eins og í grófri glæpamynd Fréttir 19Helgarblað 9.–11. mars 2012 Djúpnærandi Silki- andlitsolía serum með blágresi og rauðsmára ásamt vítamín- ríkum apríkósu- og argan- olíum, sem þekktar eru fyrir nærandi og yngjandi áhrif á húðina. Til hamingju, Vigdís! Vigdís Grímsdóttir hlaut Menningarverðlaun DV fyrir bók sína TRÚIR ÞÚ Á TÖFRA? Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttatíminn „Þetta er sannkallað meistaraverk.“ Steingrímur Sævarr Ólafsson / pressan.is „Þetta er afskaplega fallega skrifuð bók.“ Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu O fbeldi í undirheimum Reykjavík verður sífellt gróf- ara. Þetta merkja bæði lög- reglumenn og menn sem tengjast þeim ljóta heimi. Ögmundur Jónasson innanríkisráð- herra segir í samtali við DV að margt af því sem sé að gerast í íslensku sam- félagi síðustu misserin sé eins og úr grófri glæpamynd. Þar er hann ekki bara að tala um ofbeldisverk. Vís- bendingar séu uppi um svo umfangs- mikil efnahagsbrot og svindl að það nái heimssögulegum hæðum, með tilheyrandi afleiðingum fyrir samfé- lagið. Afrakstur þeirrar vinnu, sem hófst skömmu eftir hrun með Evu Joly í fararbroddi, muni innan tíðar skila sér. Vonandi með breyttu skipu- lagi og bættu siðferði. Fjarri því að vera hetjur Ögmundur segir ekki síður alvarlegt að hér skuli vera að festa sig í sessi hópar sem sumir hverjir eigi sér fjöl- þjóðlegar rætur og tengsl inn í ljóta og myrka heima. Hann gagnrýnir fjöl- miðla. Nokkur brögð hafi verið að því að einstaklingar sem höfðu gerst sek- ir um hrottafengnar meiðingar á öðru fólki væru hafnir til skýjanna í sér- stökum viðhafnarviðtölum. Maður sem neytir aflsmunar einn eða í hópi með öðrum til að meiða aðra mann- eskju er eins fjarri því að vera hetja og hugsast getur,“ segir Ögmundur og leggur á það áherslu. „Hann get- ur hins vegar átt bágt sjálfur og verið kominn þangað sem hann er kominn vegna erfiðs lífs. Það er því verkefni út af fyrir sig að hjálpa ungum drengj- um sem í vanmætti sínum leita inn í raðir glæpahópa fyrir ímyndað skjól og stuðning. Þeir vakna upp við þann vonda draum að þeirra bíður ekkert annað en andlegt þrælahald.“ Vernda þarf vitnin Hann segir að sumir glæpahópar gefi af sér þá mynd að meðlimirn- ir séu kraftmiklir og frjálsir karlar. Ef betur sé að gáð séu þeir hins vegar meira eða minna handbendi ann- arra. Þeir hlýði skipunum að ofan og vinni mannskemmandi verk gagn- vart sjálfum sér og öðrum. „Í öllum mönnum eru til góðir og mannlegir þræðir og verkefni samfélagsins er að virkja hvern og einn til góðra verka, en þá þurfa líka allir að vita að skipu- lögð glæpastarfsemi er ekki vett- vangurinn til að finna hið góða hvort sem er í sjálfum sér eða öðrum.“ Ögmundur segir það ekki mega gerast að fólk treysti sér ekki til að mæta fyrir rétt vegna hótana. Þess séu því miður dæmi á Íslandi. Veita þurfi vitnum þá vernd sem þau þurfi. Slíkt sé hann að skoða í ráðu- neyti sínu en hann hafi vegna þess veruleika sem við blasi beitt sér fyr- ir auknu fjármagni til lögreglurann- sókna á starfsemi þessara hópa. Hann segist fagna því að þingið sé að undirbúa tillögu um að framhald verði á því starfi, með tilheyrandi fjárveitingum. Burt með glæpi og fordóma Ögmundur vill vara fólk við að setja samasemmerki á milli mótorhjóla og glæpamanna, jafnvel þó sumir glæpahópar hafi gert mótorhjólið að kennitákni sínu. Það megi ekki ger- ast. „Ég hef heyrt á mörgum félögum í íslenskum mótorhjólaklúbbum að á þessu örli. Áhugafólk um mótor- hjól er ekki líklegra til að vera glæpa- menn en félagar í Rótarý, Kiwan- is, Oddfellow, Hestamannafélaginu Fáki eða KR. Þarna eiga alhæfingarn- ar ekki við. Burt með glæpina en líka fordómana.“ Ofbeldi tengt glæpahópum Sakborningar Ríkharð Júlíus og Davíð Freyr í Héraðsdómi Reykjavíkur n Black Pistons-málið. Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, foringi Black Pistons, var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir frelsissviptingu, sérstaklega hættulega líkamsárás og fíkniefnalagabrot fyrir skemmstu. Annar meðlimur samtakanna, Davíð Freyr Rúnarsson, hlaut þriggja ára dóm fyrir sömu brot. Fórnarlambið í málinu var ungur maður sem sagðist fyrir dómi óttast um öryggi sitt. Ljóst er að reynt hafði verið að hafa upp á fórnarlambinu sem býr í foreldrahúsum í þeim tilgangi að ógna því og foreldrum þess og hafa þannig áhrif á vitnisburð þeirra. Forsetinn Einar „Boom“ Marteinsson, forseti Hells Angels, hefur alltaf þrætt fyrir að samtökin tengist glæpastarfsemi. n Hrottaleg líkamsárás í Hafnarfirði. Ráðist var á konu með hrottalegum hætti á heimili hennar í Hafnarfirði þann 22. desember síðastliðinn. Fjórir einstaklingar sem allir tengjast Hells Angels sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins, þar á meðal Einar „Boom“ Marteinsson, forseti Hells Angels á Íslandi. Einar er talinn hafa skipulagt árásina á konuna, en hann á að hafa talið hana hafa hótað sér og öðrum meðlimum samtakanna. Samkvæmt gæsluvarðhaldsúrskurði á að hafa verið gefið út „veiðileyfi“ á konuna með SMS- skilaboðum til nokkurra einstaklinga. Konan nýtur nú verndar lögreglunnar þar sem óttast er um öryggi hennar. Skotárásarmálið Aðalvitnið í skotárásarmálinu bar við minnisleysi og gat því ekki svarað spurningum varðandi aðal- meðferð málsins fyrr í vikunni. n Þrír menn eru ákærðir fyrir tilraun til manndráps eftir að hafa í tvígang skotið með afsagaðri haglabyssu að bíl í Bryggjuhverfi. Tveir þeirra eru meðlimir í vélhjólagenginu Outlaws, sem lögregla skilgreinir sem skipulögð glæpasamtök. Skotárásin átti sér stað í nóvember og tengdist fíkniefnaskuld. Við aðalmeðferð málsins sagðist annar þeirra sem varð fyrir skotárásinni ekkert muna frá árás- inni og vildi ekkert segja til um hvernig hann þekkti eða tengdist sakborningum. Hann sagðist heldur ekki muna eftir að hafa lagt fram bótakröfu, en staðfesti að hann vildi draga hana til baka. n Ögmundur Jónasson berst gegn uppgangi glæpahópa „Maður sem neyt- ir aflsmunar einn eða í hópi með öðrum til að meiða aðra manneskju er eins fjarri því að vera hetja og hugsast getur. Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is Berst gegn glæpahópum Ögmundur vinnur að því að tryggja auknar fjárheimildir til lögreglunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.