Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Blaðsíða 36
Það var mjög ánægjulegt að hafa fengið þessi verð-laun. Þau vekja athygli á bókinni og möguleikum landsins til ferðalaga,“ segir Jónas Kristjáns- son, fyrrverandi ritstjóri, en Jónas fékk Menningarverðlaun DV í flokknum Fræði fyrir bók sína 1001 þjóðleið. Jónas segir bókina afrakstur mikillar vinnu um áratugaskeið. „Þetta er búið að vera mikið fyrirtæki sem hefur tekið langan tíma. Nú er hún komin út og dæminu því lokið að því leytinu. Þetta eru ákveðin kaflaskipti á ævi minni,“ segir Jónas sem sjálfur fór 250 leiðir af þeirri 1001 leið sem fjallað er um í bókinni. „Það eru því ansi mikil ferðalög á bak við þetta auk þess sem ég hef dregið saman upplýsingar úr mörg- um áttum. Ég hef dregið saman ótal atriði úr gömlum kortum, bókum og sögum úr Sturlungu. Þarna er slegið saman texta og upplýsingum af ýmsu tagi, svo sem sagnfræði, náttúrufræði og leiðarlýsingum auk kortsins sjálfs sem sýnir leiðirnar nákvæmlega,“ segir Jónas en bókinni fylgir diskur sem gerir fólki kleift að hlaða leiðunum niður í GPS-tæki. „Ég vona að margir eigi eftir að nota þennan disk því þar eru sýndar leiðir sem fólk hefur farið öld- um saman. Sumar hverjar eru fallnar í gleymsku en aðrar ekki.“ Jónas hefur ferðast mikið um landið í gegnum árin og þá mest á hestbaki. Aðspurður segir hann Löngufjörur á Snæfellsnesi bjóða upp á skemmti- legustu leiðirnar. „Það er afskaplega skemmtilegt svæði. Fjarri vegum. Ég er ekki mjög göngulipur og fer næst- um allar mínar ferðir á hestum. Flestar þessara leiða eru líka gönguleiðir og sumar bara gönguleiðir,“ segir hann og bætir við að í bókinni fái hver leið sína einkunn um það hversu heppi- legar þær eru til göngu eða reiðar. „Svo hef ég líka afskaplega gaman af Fjallabaki. Þar er landslagið óskaplega fallegt. Kjal- vegur er skemmtilegur líka en gönguleiðin þar er fjarri bílvegum. Þessar leiðir, eins og Kjalvegur, eru partur af óbyggðum. Menn eru dögum saman þar sem hvergi eru mann- virki né bílar.“ Sjálfur hefur Jónas tileinkað sér tæknina á ferðalögum. „Marg- ar þessar leiðir eru ógreinilegar og ekki allar varðaðar eða merktar. Með GPS- tæki er hægt að vera viss um að maður sé á réttri leið. Þetta er líka feiknalega gott öryggistæki. Í þoku getur maður séð hvar maður er staddur og hvert líkleg- ast sé réttast að fara. Svo er þetta líka áttaviti, kort og leiðarvísir svo þetta eru mikil öryggistæki.“ Næst á dagskrá hjá Jónasi er vinna að stórum kortum. „Bókin er svo stór og þung að menn taka hana ekki með sér í ferðalög. Þeir sem vilja ekki vera með GPS geta þá verið með saman- brotin kort í vasanum. Sennilega verða slík kort gefin út.“ indiana@dv.is Afrakstur mikillar vinnu Jónas fékk Menningarverðlaun DV í flokknum Fræði fyrir bók sína 1001 þjóðleið. 36 m e n n i n g a r v e r ð l a u n d v 2 0 1 17 . m a r s 2 0 1 2 hönnun fræði Þetta kom ótrúlega skemmti-lega á óvart,“ segir Snæfríð Þorsteins, en hún og Hildi- gunnur Gunnarsdóttir unnu Menningar- verðlaun DV fyrir hönnun. Hún segir að þær hafi verið afar ánægðar þar sem allar tilnefningar hafi verið svo fínar að tilnefn- ing ein og sér hefði verið þeim nóg. Það sé þó alltaf gott að fá svona klapp á bakið. Snæfríð og Hildigunnur hafa starfað saman í rúman áratug og Snæfríð segir að samstarfið hafi byrjað fljótlega eftir að hún kom heim úr námi. „Við unnum fyrst saman í umbroti hjá Iceland Review, líklega í kringum árið 1999. Þá færði ég mig yfir á auglýsingastofuna Gott fólk og Hildigunnur kom fljótlega á eftir en við höfum unnið sjálfstætt saman síðan árið 2000. Þetta samstarf hefur gengið alveg eins og í sögu,“ segir Snæfríð. Þær stefna á áframhaldandi samstarf og fram- undan hjá þeim eru mörg verkefni og af nógu að taka. „Það er svolítið af bókum í farvatninu og svo ætlum við að taka þátt í Hönnunarmars en þar verðum við með þrívítt verk. Það kemur svo einnig út há- tíðarútgáfa af Íslensk- um fuglum Bene- dikts Gröndal en fyrir jól kom út almenn útgáfa af henni.“ Há- tíðarútgáfan verður í mun stærra broti, með þykkari síðum, handskrifuð og í leð- urbandi. Hún verður mun fínni og fágæt- ari útgáfa og hún kemur út í 100 tölu- settum eintökum. Aðspurð hvaða verki þær séu stolt- astar af segir hún að það sé í raun ekkert eitt sem standi upp úr. Áhuginn liggi að mestu leyti í þeim verkefnum sem þær vinni í hverju sinni. Í umsögn dómnefndar segir að Snæ- fríð og Hildigunnur séu mörgum kunnar fyrir vel heppnað samstarf sitt síðast- liðinn áratug. Þær hafa rekið saman vinnustofu frá árinu 2000 og komið að fjölda verkefna þar sem þær hafa unnið talsvert með menningararfinn og oft og tíðum fundið skemmtilegan vinkil á hann í starfi sínu. Þar má nefna hönnun þeirra fyrir Þjóðminjasafnið og Landnámssýn- inguna í Aðalstræti, þar sem Geirfugla- kertin skemmtilegu urðu til. Snæfríð og Hildigunnur hafa einnig unnið mikið fyrir Háskóla Íslands og sendu í fyrra frá sér bráðskemmtilega vísindaútgáfu af afrifu- dagatali sínu. Þær hafa einnig átt í einkar vel heppnuðu samstarfi við bókaútgáf- una Crymogeu þar sem þær hafa hannað hverja bókina á fætur annarri. Sú þekkt- asta sé þar vitanlega Flóra Íslands eftir Eggert Pétursson en á síðasta ári sáu þær meðal annars um hönnun á Íslenskum fuglum eftir Benedikt Gröndal. Snæfríð og Hildigunnur komu að hönnun á Flóru Íslands og Íslenskum fuglum Vel heppnað samstarf Kom á óvartSnæfríð segir að valið hafi komið skemmtilega á óvart. Hún og Hildigunnur Gunnarsdóttir fengu Menningarverðlaun DV fyrir hönnun. DV17672180208 Jónas Kristjáns- son_4_3_2_2_2_6.jpg Löngufjörur í uppáhaldi Útgáfa 1001 þjóðleiðar merkja ákveðin kaflaskipti í lífi Jónasar Kristjánssonar. Umsögn dómnefndar Gamli ritstjórinn og orðhákurinn Jónas sýnir hér á sér nýja hlið þegar hann rekur af mikilli nákvæmni þjóðleiðir á Íslandi, bæði gönguleiðir og reiðleiðir. Fjallað er um hverja leið í knöppu en greinargóðu máli og með nákvæmum kortum. Bókinni fylgir á nútímavísu diskur sem gerir fólki kleift að hlaða leiðunum niður í GPS- tæki. Hér er um að ræða afrakstur áratuga- vinnu Jónasar og úr verður glæsilegt verk sem gera mun Íslendingum kleift að fara lítt troðnar slóðir um land sitt og kynnast því á nýjan hátt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.