Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Blaðsíða 35
35m e n n i n g a r v e r ð l a u n d v 2 0 1 17 . m a r s 2 0 1 2 Ballettinn valdi mig ur breyst svo mikið síðustu ár og námið tekur mið af því. Nú er kenndur listdans í Listaháskóla Íslands þar sem nemend- ur vinna allan daginn við það að mennta sig í dansi. Það er stórkostlegt að fylgjast með því starfi sem þar fer fram og ég sé að úr þessu námi koma dansarar með mikla færni.“ Langþráð háskólanám Það vakti athygli þegar Ingibjörg lét af starfi sínu sem skólastjóri Listdansskóla Íslands og fór í langþráð háskólanám. Sagnfræðin hafði heillað hana í langan tíma og árið 1997 tók hún ákvörðun um að skrá sig. „Ég hætti að vera að skólastjóri Listdansskóla Íslands 1997 og hafði mikla og uppsafnaða þörf fyrir að hvíla líkam- ann. Ég fór því í háskólann og innritað mig í sagnfræði. Ég naut mín vel í þessu námi og auðvitað nýtti ég mér mína reynslu í dansi. Ég lauk BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2002 og síðan MA í sagnfræði frá sama skóla árið 2007, báðar ritgerðir mínar fjölluðu um dans. BA-rit- gerðin mín um upphaf nútímadans á Ís- landi. Seinni ritgerðin fjallaði um íslensk- ar dansskemmtanir fram til 1850.“ Eiginmaðurinn sá um heimilið Á fræðasviðinu hefur Ingibjörg látið til sín taka. Hún hefur skrifað fjölmarg- ar greinar um dans meðal annars fyrir Morgunblaðið, í Sagnir og tvær grein- ar um íslenskan dans í bókina Dans i Norden sem var gefin út í Osló 2007. Auk þess flytur hún erindi um sögu ís- lensks listdans víða um heim. Ingibjörg kenndi námskeiðið „Dans og dans- menning. Frá hoppi til hip-hops“ við þjóðfræðiskor Félagsvísindadeildar Há- skóla Íslands haustið 2007. Hún vinnur nú að ritun á sögu danslistar á Íslandi auk þess að miðla þeim rannsóknum sínum og kenna íslenska listdanssögu við Listaháskóla Íslands. „Ég vinn þetta svona á mínum hraða, satt best að segja þá er ég í svo mörgum vinnum að mér gefst minni tími en ég vildi til verksins. Ég vinn fimm tíma í viku í bókhaldi í útgerðarfélagi, kenni danssögu, kenni ballett og nú er ég líka að semja dans fyrir óperu sem verður sett upp á Akur- eyri. Dagarnir mínir eru ansi langir eins og þeir hafa reyndar verið alla ævi. Sem betur fer á ég mjög góðan mann,“ segir hún og kímir. Eiginmaður Ingibjargar er Árni Vil- hjálmsson háskólaprófessor og eiga þau saman þrjár dætur. „Þegar ég var að kenna langt fram á kvöld sá hann Árni minn um að elda kvöldmatinn og koma börnunum í rúmið. Um tíma þurfti ég líka að leggjast í ferðalög og þá sá hann Árni alfarið um heimilið.“ Fer á allar sýningarnar Ingibjörg er hvergi hætt að semja dansa. Hún er eins og áður hefur komið fram að semja dansa fyrir óperu á Akureyri og framlag hennar til danslistar er mik- ið. Hún var danshöfundur í Þjóðleikhús- inu á þeim árum sem hún starfaði þar og samdi verk fyrir uppsetningar leikhúss- ins. Hún var einn af stofnendum Ball- ettflokks Félags íslenskra listdansara sem var þrýstiafl fyrir stofnun Íslenska dansflokksins, samdi hún fyrir hann meðal annars verkið Frostrósir árið 1968. Hún samdi einnig fjölmörg verk fyrir Íslenska dansflokkinn eftir stofn- un hans og má þar nefna verkið Sálu- messu sem var fyrsti nýklassíski ball- ettinn sem sýndur var á Íslandi. Einnig má nefna ballettinn Sæmund Klemens- son sem fluttur var af Íslenska dans- flokknum og Þursaflokknum vorið 1978 á Listahátíð í Reykjavík. Ballettinn kom Þursaflokknum á kortið og samning hjá útgáfuaðilanum Fálkanum og gekk sýn- ingin í Þjóðleikhúsinu frá hausti fram til áramóta, sem er einsdæmi um ballett- sýningar, fyrr og síðar. Ingibjörg hefur auk þess samið ótal marga dansa fyr- ir Leikfélag Reykjavíkur, Þjóðleikhúsið, ýmsa leikhópa og fyrir sjónvarp. „Það er mikilvægt að mínu mati að semja ný ís- lensk verk sem henta okkar dönsurum, segir Ingibjörg sem er þekkt fyrir það sækja allar mögulegar danssýningar sem settar eru upp. „Það er rétt, ég fer á allar sýningarnar, segir hún og skellir upp úr. Það veitir mér ómælda ánægju að fylgjast með dönsurum og ég vil fara á bæði góðar og slæmar sýningar. Það er nefnilega svo mikilvægt að læra og all- ir verða að fá að gera mistök og þroska sig áfram. Þannig verður góður dansari til. Já, og manneskjur, þannig verða líka góðar manneskjur til.“ kristjana@dv.is Heiðursverðlaunahafi Menningarverð- launa DV Ingibjörg Björnsdóttir vinnur að ritun sögu íslenskrar danslistar og dansar enn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.