Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Blaðsíða 6
6 Fréttir 9.–11. mars 2012 Helgarblað
Áskorun um að lækka verðið
n Segja eldsneytishækkun hafa alvarlegar afleiðingar
F
élag íslenskra bifreiðaeigenda
og fulltrúar frá bílaklúbbunum
BMWkrafti, Blýfæti, Íslandrover,
Krúser, Live2cruize og MBKÍ
komu nýlega saman til fundar til að
ræða þróun orkuverðs. Á fundinum
samþykktu félögin að skora á ríkið
að lækka álögur sínar á eldsneyti. Í
áskoruninni segir að venjuleg launa-
fjölskylda þurfi 260 þúsund krónur í
aukalegar tekjur til að mæta auknum
eldsneytiskostnaði miðað við óbreytta
notkun og að neikvæðustu áhrifin séu
á atvinnulífið á landsbyggðinni. Þau
vara við þeim kyrkingaráhrifum sem
sífelld hækkun hafi á allt þjóðfélag-
ið. Með hækkun eldsneytis á heims-
markaði og stöðugt hærri álögum
ríkisins stefni bensínlítrinn hraðbyri
í 300 krónur og afleiðingar séu meðal
annars fækkun innlendra ferðamanna
en fyrir marga sé það orðinn lúxus að
bregða sér bæjarleið.
Stefán Ásgrímsson, ritstjóri frétta-
blaðs FÍB, segir að stjórnvöld geti
vel lækkað álögurnar sem þau setja
á eldsneyti. „Þessi stífni stjórnvalda,
að lækka álögur, veldur svo mörgum
erfiðleikum. Það er til dæmis erfiðara
fyrir venjulegt fólk að sækja vinnu og
skutla börnum í skóla og fólk tapar al-
mennum lífsgæðum við þetta,“ segir
hann og bendir á að hlutfall elds-
neytisverðs sem fer til ríkisins sé nær
helmingur þess sem bíleigendur borgi
við dælurnar. „Það er föst krónutala
á eldsneytinu en við það bætast pró-
sentugjöld þegar það er flutt inn, til
dæmis vörugjald og svo bætist virðis-
aukaskattur ofan á allt. Því hærra sem
innkaupsverðið er og flutningskostn-
aður, því meira græðir ríkið. Þessu
verður að breyta.“
Lítrinn af bensíni kostar nú 254
krónur en samkvæmt grafi á heima-
síðu FÍB er innkaupsverð á lítrann
104,22 krónur. Kostnaður sem olíu-
félögin taka til sín, svo sem álagn-
ing og flutningskostnaður, eru 29,36
krónur en ríkið tekur hins vegar til
sín 121,13 krónur í skatta, gjöld og
virðisaukaskatt. gunnhildur@dv.is
E
inbýlishús Ingólfs Helga-
sonar, fyrrverandi for-
stjóra Kaupþings á Íslandi,
í Kópavogi hefur verið
sett á nauðungarsölu.
Þetta kemur fram í Lögbirtinga-
blaðinu. Nauðungarsölubeiðnin
er frá sýslumanninum í Kópavogi
vegna rúmlega 342 milljóna króna
krafna. Ekki er tekið fram í Lög-
birtingablaðinu hvernig umrædd
skuld er tilkomin. Húsið er tæp-
lega 330 fermetrar að stærð og er
fasteignamat þess tæpar 70 millj-
ónir króna.
Ingólfur er einn þeirra starfs-
manna Kaupþings sem verið hafa
til rannsóknar hjá sérstökum sak-
sóknara vegna meintra lögbrota í
rekstri bankans fyrir hrunið 2008.
Hann var yfirheyrður hjá embætt-
inu í maí 2010 vegna rannsókna
embættisins á ýmsum málum
sem tengdust Kaupþingi, með-
al annars viðskiptum sjeiksins
al-Thanis með hlutabréf í Kaup-
þingi.
Kyrrsetning og fjárnám
Á veðbandayfirliti hússins kemur
fram að nærri 302 milljóna króna
fjárnám hafi verið gert í húsinu í
ágúst síðastliðnum. Þá hvílir 11
milljóna króna kyrrsetningargerð
frá því síðastliðið sumar á húsinu
auk þess sem 25 milljóna króna veð-
skuldabréf frá árinu 2005 hvílir á því.
Slitastjórn Kaupþings hefur síð-
ustu misserin kyrrsett eignir hjá
mörgum af helstu stjórnendum
Kaupþings hér á landi. Meðal þess-
ara eigna eru jarðir sem félag í eigu
Ingólfs, Hreiðars Más Sigurðsson-
ar, Sigurðar Einarssonar, Magnúsar
Guðmundssonar og Steingríms
Kárasonar á í Borgarfirði. Fimm-
menningarnir eiga jarðirnar í gegn-
um eignarhaldsfélagið Hvítsstaði.
Vilja fá upp í kúlulánaskuldir
Kyrrsetningargerðir slitastjórnar-
innar byggja á því að reynt er að fá
eitthvað upp í hundraða milljóna
til milljarða króna kúlulánaskuldir
sem þessir fyrrverandi stjórnendur
Kaupþings skildu eftir sig í banka-
hruninu 2008. Dómstólar á Íslandi
hafa síðustu mánuði fellt dóma þar
sem fyrrverandi stjórnendum Kaup-
þings er gert að greiða þessa fjár-
muni til baka.
Allar eignir Ingólfs hér á landi
voru af þessum sökum kyrrsettar í
fyrrasumar, meðal annars geymslu-
húsnæði að Smiðshöfða þar sem
talið var að Ingólfur geymdi veru-
legt magn af fokdýru eðalvíni. Ekkert
eðalvín fannst hins vegar í húsnæð-
inu þegar slitastjórn Kaupþings fékk
heimild til að fara þangað inn í byrj-
un síðasta mánaðar.
Ingólfur fékk um 1.700 milljóna
króna kúlulán frá Kaupþingi á ár-
unum fyrir hrunið vegna hlutabréfa-
kaupa í bankanum. Þá kemur fram í
skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is að hann hafi fengið 529 milljónir
króna í laun á fjögurra ára tímabili
fyrir fall bankans um haustið 2008.
„Slitastjórn Kaup-
þings hefur síðustu
misserin kyrrsett eignir
hjá mörgum af helstu
stjórnendum Kaupþings
hér á landi.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Húsið á nauðungarsölu Einbýlishús Ingólfs Helgasonar í Fákahvarfi 12 hefur verið sett á
nauðungarsölu að beiðni sýslumannsins í Kópavogi.
Yfirheyrður Ingólfur var kallaður frá
Lúxemborg til yfirheyrslu sumarið 2010.
Stefán Ásgrímsson Segir að ríkið geti
vel lækkað álögur á bensín.
Húsið
Gríðarlegar skuldir
342 milljónir króna hvíla á
húsinu. Fjárnám var gert í
húsinu í fyrrasumar.
n 342 milljóna kröfur n Slitastjórn Kaupþings kyrrsetur eignir
boðið
upp
Uppbygging Landspítala:
Ósáttir við
stærðina
„Ekkert fordæmi er fyrir svo
miklu byggingarmagni á einum
deiliskipulagsreit enda teljum
við að svo
stórar bygg-
ingar muni
ekki rúmast
á lóðinni og
mun það hafa
mikil áhrif til
hins verra á
samgöngur,
umhverfi og
ásýnd svæðisins,“ segir Júlíus Vífill
Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks, um uppbyggingu á
lóð Landspítalans.
Á fundi borgarráðs á fimmtu-
dag var lagður fram samningur
við ríkið vegna uppbyggingar-
innar. Í tilkynningu frá borgar-
stjórnarflokki Sjálfstæðisflokks
kemur fram að sjálfstæðismenn
hafi ítrekað gagnrýnt að slíkt sam-
komulag sé lagt fram í borgarráði
áður en skipulagið sjálft hafi verið
staðfest af skipulagsyfirvöldum
borgarinnar eða fengið umræðu
meðal íbúa og annarra hags-
munaaðila.
„Við erum hlynnt uppbyggingu
á svæðinu í þágu Land spítalans.
Áætlað byggingarmagn á lóðinni
er hins vegar allt of mikið eða
293.000 fermetrar sem er fjórföld-
un núverandi byggingarmagns,“
segir Júlíus í tilkynningu sem
flokkurinn sendi frá sér.
Í bókun sem Sjálfstæðisflokk-
ur lagði fram á fundinum kemur
fram að samkvæmt samningnum
sem lagður var fram um fram-
tíðaruppbyggingu Landspítala
sé gert ráð fyrir að minnsta kosti
293 þúsund fermetra byggingum
á lóðinni. „Það er fjórföldun nú-
verandi byggingarmagns. Ríkið
hefur með samningnum afsalað
sér landi sem ekki mun nýtast
starfsemi Landspítalans í framtíð-
inni en fær mjög aukið byggingar-
magn á móti á þeim lóðum sem
nær standa núverandi spítala-
starfsemi. Með tilliti til þess að
samningurinn fjallar um meiri
uppbyggingu en nokkur fordæmi
eru fyrir hér á landi þarf, áður en
hann er samþykktur, að liggja fyrir
mat á uppbyggingarþoli svæðis-
ins, áhrif umferðar á umhverfi og
nærliggjandi byggð, yfirbragði
fyrirhugaðra bygginga og ásýnd
þeirra,“ segir í bókuninni.
Mikið úrval
sundfatnaði
af fallegum
Lístykkjabúðin,
þar sem allar
konur eru gyðjur
Lífstykkjabúðin
Laugavegi 82
www.lifstykkjabudin.is
d
v
e
h
f.
2
0
12