Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Qupperneq 8
8 Fréttir 9.–11. mars 2012 Helgarblað Braust inn á vef Vodafone n Over-X lét til skarar skríða O kkur er ekki skemmt yfir þessu,“ segir Hrannar Pét- ursson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Vodafone, en heimasíða fyrirtækisins varð fyr- ir barðinu á alsírska tölvuþrjótin- um Over-X. Hann náði upphafssíðu vodafone.is á sitt vald þar sem hann birti skilaboðin „Alsír að eilífu“ en að sögn Hrannars varði ástandið þó að- eins í um korter þar sem starfsmenn Vodafone náðu að bregðast skjótt við. „Sem betur fer þá er þessi vefur fyrst og fremst sölu- og þjónustuvefur sem tengist ekki innri kerfum þannig að það voru engin gögn í hættu, en svo sannarlega er þetta eitthvað sem við viljum síður að gerist,“ sagði Hrann- ar í samtali við DV eftir að heimasíða Vodafone var aftur komin í gagnið og laus við alla tölvuþrjóta. Aðspurður sagði Hrannar að far- ið yrði yfir öryggismálin í kjölfarið, þó slíkt sé reglulega gert, en atvik sem þessi veki menn til umhugsun- ar. Hann benti á að svona árásir væru síður en svo einsdæmi. „Mönnum hefur tekist að komast inn á síður hjá ólíklegustu aðilum þannig að þetta er viðvarandi barátta. En það var engin ógn sem stafaði af þessu, en fremur óþægindi fyrir þá viðskipta- vini sem voru að leita sér upplýsinga á þessum tíma.“ Tölvuþrjóturinn Over-X hefur augljóslega látið til sína taka áður víða um veröld samkvæmt veraldar- vefnum. Hann virðist þó helst skemmta sér við að hakka sig inn á síður og skilja þar eftir skilboð með vísun í Alsír að einhverju leyti. mikael@dv.is Slitastjórnin stefnir al- Thani Slitastjórn Kaupþings ætlar að stefna Sheikh Mohammed bin Khalifa al-Thani þar sem hann verður krafinn um greiðslu 50 milljóna dala sem hann fékk lán- aðar til að kaupa rúmlega 5 pró- senta hlut í bankanum í septem- ber 2008. Viðskiptablaðið greinir frá þessu. Þar segir að stefnan sé tilbúin og hún verði birt al-Thani innan skamms. Málið verði höfð- að fyrir íslenskum dómstólum. Eins og DV greindi frá á miðviku- dag stóð til að þingfesta ákæru embættis sérstaks saksóknara á hendur þeim Ólafi Ólafssyni, Hreiðari Má Sigurðssyni, Sig- urði Einarssyni og Magnúsi Guð- mundssyni vegna al-Thani máls- ins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Enginn þeirra mætti þó í héraðs- dóm og var málinu frestað til loka mars. Viðskipti félagsins Q-Ice- landic Finance, sem var í eigu al- Thani, og fléttan í kringum þau eru, líkt og fram hefur komið, álit- in hafa verið sýndarviðskipti. Síbrotamaður á nýju hjóli Um klukkan þrjú aðfaranótt miðvikudags var karlmað- ur handtekinn við Mennta- skólann í Hamrahlíð. Tilkynnt hafði verið um innbrot og hafði maðurinn brotið rúðu en ekki komist inn. Á svipuðum tíma hafði lög- reglan afskipti af manni sem hjólaði um Breiðholtið á nýju reiðhjóli. Samkvæmt lögreglu er maðurinn þekktur brota- maður um þrítugt sem gat ekki gert grein fyrir hjólinu. Hættumerki frá ársbyrjun 2008 Jón Þór Sturluson, fyrrverandi að- stoðarmaður Björgvins G. Sigurðs- sonar viðskiptaráðherra, sagði að hann hafi talið hættu steðja að ís- lenska bankakerfinu allt frá árs- byrjun 2008 en að þessi hætta hafi svo magnast eftir því sem leið á árið. Hann var fyrsta vitnið sem gaf skýrslu fyrir landsdómi á fimmtu- dag. Hættan sem var aðsteðjandi var að íslensku bankarnir hafi átt í erf- iðleikum með endurfjármögnun. „Það voru aðsteðjandi hættumerki frá ársbyrjun 2008. Sú hætta var ekki bráð framan af. Hættan magn- aðist upp í takt við það sem tíminn leið,“ sagði Jón Þór fyrir landsdómi. Hann segir að „róttækar að- gerðir“ til að bregðast við þessum aðsteðjandi vanda hefðu getað haft öfug áhrif en ætlað var, hugs- anlega hraðað falli bankanna, og því var unnið að úrræðum í „kyrrþey“ eins og hann orðaði það snemma í yfirheyrslunni. Með orðum sínum á hann við starfshóp sem settur var á laggirnar í ágúst 2008 til að bregðast við aðsteðj- andi vanda. Ekki skemmtilegt Vefurinn er kominn aftur í gagnið. n Tveir drengir voru hætt komnir í sjónum við Ægisíðuna Ó mar Sigurjónsson og Pétur Friðgeirsson voru á gangi á Ægisíðunni seinni partinn á þriðjudag þegar þeir sáu tvo unga drengi sem voru í sjálf- heldu á skeri. Ómar og Pétur brugð- ust hratt við og gátu aðstoðað dreng- ina, en annar þeirra, átta ára, var hætt kominn í sjónum. Tilviljun réð því að Ómar og Pétur voru þarna á rölti segir Ómar en þeir félagarnir voru á heilsubótargöngu á þessum slóðum. Spurning um mínútur „Við vorum þarna í göngutúr á Ægi- síðunni. Það var nú svona frekar óvenjulegt, við höfum ekki gert það áður,“ segir Ómar, „þá sjáum við þessa tvo stráka, sem voru bara komnir út í sjó. Þeir hafa verið að leika sér í fjörunni en allt í einu var fjaran bara horfin og það flæddi hratt að.“ Strákarnir voru því í vanda staddir en annar þeirra, sá eldri, komst sjálfur upp á þurrt land, en sá yngri, stóð fastur í sjónum og gekk aldan yfir hann. „Þessi eldri hafði tekið sénsinn og komst í burtu, en þessi litli varð eftir,“ segir Ómar. „Þegar við komum að voru öldurnar farnar að skella á honum og sjórinn náði honum upp að hnjám. Þetta var bara spurning um mínútur,“ segir Ómar. Tóku beint á rás „Hann var að reyna að standa, en ef hefði hann dottið þá hefði hann kannski sogast út með öldunum. Ég veit ekkert hvort hann kann að synda eða ekki, en þetta var hræði- legt.“ Þeir Ómar og Pétur tóku því á rás beint út í sjóinn til þess að ná drengnum á þurrt land. Pétur hras- aði og datt og meiddi sig, en Ómar náði drengnum og leiddi hann aftur á þurrt land. „Ég reyndi að fara eins hratt og ég gat til hans, ég bara óð sjóinn og náði honum.“ Ekki hefði þurft að spyrja að leikslokum hefðu þeir félagarnir ekki brugðist svo skjótt við. Með stígvél full af sjó Drengurinn gat sagt Ómari hvar hann á heima og sendi Ómar hann því snarleiðis heim, enda stígvél drengsins full af sjó og drengur- inn holdblautur. Drengurinn mun hafa búið skammt og Ómar fylgdist með honum hlaupa heim. Ómar hefur þó ekki heyrt neitt frekar af drengnum en býst ekki við því að honum hafi orðið meint af volk- inu. Ómar segir að þetta hafi verið ótrúleg lífsreynsla og er feginn að þeir félagarnir voru staddir þarna fyrir tilviljun. „Þetta fór sem betur fer allt vel,“ segir hann. Ásta Sigrún Magnúsdóttir blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is Bjargaði Barni af flæðiskeri Staðreyndir um drukknun 1 Það er undantekning ef sá sem er við það að drukkna getur kallað á hjálp. Öndunarfærin eru fyrst og fremst til að anda. Röddin er í öðru sæti. Fullnægja þarf súrefnisþörfinni áður en hægt er að tala. 2 Munnurinn er ýmist í kafi eða upp úr – ekki nógu lengi upp úr til þess að ná að anda frá – anda að – og kalla á hjálp. Ólíklegt er að fólk hafi nema rétt nægan tíma til að anda snöggt frá sér og aftur að sér – áður en það byrjar að sökkva aftur. 3 Drukknandi maður getur ekki veifað eftir hjálp. Hann teygir ósjálfrátt út handleggina og þrýstir niður. Þannig réttist líkaminn af svo munnur helst upp úr meðan andað er. 4 Eftir að ósjálfráðu lífsbjargarvið-brögðin (IDR) hafa tekið við, hefur fólk ekki lengur stjórn á handahreyf- ingum. Af lífeðlisfræðilegum orsökum getur drukknandi maður ekki „hætt við“ og notað viljastyrk til að veifa eftir hjálp, færa sig til björgunarmanns eða teygja sig í björgunartæki. 5 Líkaminn er uppréttur/lóðréttur allan tímann sem ósjálfráða sjálfs- bjargarferlið er í gangi. Samt virðist fólk ekki sparka frá sér til að halda sér uppi. Án aðstoðar þjálfaðs björgunarmanns, getur maður aðeins barist um í 20–60 sekúndur áður en hann sekkur. - Af vefnum sjosund.is „Ég reyndi að fara eins hratt og ég gat til hans, ég bara óð sjóinn og náði honum. Bjargaði ungum dreng „Öldurnar voru farnar að skella á honum.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.