Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Page 10
10 Fréttir 9.–11. mars 2012 Helgarblað
Efnahagsvandinn
var misskilningur
n Nefnd Geirs Haarde reyndi að bæta ímynd Íslands vegna gagnrýni
G
eir H. Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra og nú sak-
borningur fyrir Landsdómi,
skipaði nefnd í nóvember
2007 til þess að skrifa skýrslu
um aðsteðjandi vanda Íslands sem
þá var fyrst og fremst skilgreindur
sem ímyndarvandi. Í skýrslunni, sem
gefin var út í mars 2008 þegar óveð-
ursskýin hrönnuðust upp yfir Íslandi,
eru karaktereinkenni hinna sterku Ís-
lendinga dregin fram. Með skýring-
armynd, sem minnir á kennsluefni í
jarðfræði, er kraftur Íslendinga settur
í samhengi við krafta jarðar sem ólga
undir niðri. Niðurstaða skýrslunnar
er að aðsteðjandi efnahagsvandi sé
ímyndarvandi og að Íslendingar séu
hafðir fyrir rangri sök af útlendingum.
Skýrsluna skrifuðu Svafa Grön-
feldt, þáverandi rektor Háskólans í
Reykjavík og formaður nefndarinnar,
Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri
Viðskiptaráðs Íslands, Jón Karl Ólafs-
son, þáverandi forstjóri JetX/Primera
Air, Martin Eyjólfsson, Svanhildur
Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar-
og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar,
og Sverrir Björnsson hjá Hvíta húsinu.
Höfðað til þjóðerniskenndar
Hugmynd Geirs var að skipa nefnd
til þess að gera tillögur um hvernig
mætti styrkja ímynd Íslands gagnvart
erlendum aðilum sem höfðu gagn-
rýnt íslenskt efnahagslíf en um þetta
leyti var íslenski hlutabréfamarkaður-
inn að byrja að hrynja. Gengi bréfa í
FL Group hafði hrunið og fjölmörg fé-
lög voru á leiðinni fram af bjargbrún-
inni.
Í skýrslunni er mikið fjallað um
hversu mikilvæg ímynd væri fyrir
efnahag, afkomu og samkeppnis-
hæfni þjóða. Uppruna Íslendinga var
gert hátt undir höfði og fátækt fólks
fyrr á öldum sett í samhengi við stolt
og dugnað Íslendinga nútímans.
Skýra mætti karaktereinkenni Íslend-
inga með náttúruhamförum fyrr á
öldum á borð við móðuharðindin. Þá
er landnám Íslands sett í samhengi
við það hversu mikið Íslendingar
meta einstaklingsfrelsi sitt nú. Þá
segir: „Fyrstu Íslendingarnir voru fólk
sem kom hingað í leit að frelsi og betri
lífsskilyrðum. Þjóðin bjó lengstum við
kröpp kjör en þegar hún fékk frelsi og
sjálfstæði tók hún stökk frá því að vera
þróunarland til þess að verða ein rík-
asta þjóð í heimi.“
Í skýrslunni er dregin upp mynd af
Íslendingum sem duglegum, áræðn-
um og úrræðagóðum. „Þeir eru frjáls-
leg náttúrubörn og sterkur sjálfstæð-
isvilji einkennir þá,“ segir í skýrslunni.
Um fólkið, sem er sagt kraftmikið,
dugmikið og áræðið, segir: „Íslend-
ingar eru kraftmikil þjóð mótuð af
lífsbaráttu í harðbýlu landi. Dugnaður
og áræðni einkenna Íslendinga. Þeir
ganga fram af krafti í leik og starfi, eru
hreinskiptir og tjá sig tæpitungulaust.“
Enn fremur segir: „Íslendingar
meta sjálfstæði sitt og frelsi mikils í
stóru og smáu. Það er afrek sem þjóð-
in er stolt af, að fátæk nýlenda skyldi
hafa hugrekki til að berjast fyrir sjálf-
stæði sínu og takast að vinna það.“
Hinn sjálfstæði Íslendingur var í aðal-
hlutverki í skýrslunni því „Bjartur í
Sumarhúsum býr hér enn í hverjum
manni“.
Vanþekking og rang-
hugmyndir útlendinga
Mikið var fjallað um hversu erlend-
ir greiningaraðilar væru að lesa
stöðuna hér á landi vitlaust. Þeir
væru fullir af ranghugmyndum og
misskilningi. „Íslendingar hafa að
undanförnu orðið áþreifanlega var-
ir við ranghugmyndir erlendra að-
ila um Ísland og þær afleiðingar
og áhrif sem slíkt getur haft í formi
sérkennilegrar umfjöllunar erlend-
is, umfjöllunar sem hefur byggst á
skorti á upplýsingum og misskiln-
ingi en einnig á ytri aðstæðum sem
litlu er hægt að ráða um. Ímynd Ís-
lands er jákvæð frekar en neikvæð
en það kemur hins vegar berlega í
ljós í þeim takmörkuðu rannsókn-
um sem gerðar hafa verið á ímynd
þjóðarinnar að hún er lítil og við-
kvæm.“
Þá segir í skýrslunni: „Það hversu
viðkvæm ímynd Íslands er kemur
glögglega fram í þeim hremming-
um sem íslenskt viðskipta- og efna-
hagslíf gengur nú í gegnum í byrj-
un árs 2008. Álag á skuldir íslenskra
fjármálafyrirtækja og ríkissjóð er í
hæstu hæðum og Ísland sett í flokk
þjóða sem eru mun styttra komnar
á leið í þróun lýðræðis og efnahags-
mála. Ljóst er að álagið er hvorki í
samræmi við stöðu íslensku fjár-
málafyrirtækjanna né í samræmi
við ástand efnahagsmála á Íslandi
og þá ágætu innviði sem hér hafa
verið byggðir. Segja má að ímynd
Íslands sé ekki nægilega öflug til
þess að vinna gegn ranghugmynd-
um á borð við þær sem endurspegl-
ast í þeirri stöðu. Veik ímynd Ís-
lands, innanlands sem utan, felur
í sér vanþekkingu hagsmunaaðila á
einkennum og eiginleikum þjóðar-
innar og hún er hættuleg atvinnu-
og efnahagslífi, hagþróun og sam-
félags gerð sem Íslendingar kjósa
að búa við.“
Nýsköpun í takt
við Íslendingasögur
Í skýrslunni eru innviðir samfélags-
ins, heiðarleiki og gagnsæi lofað
mjög. „Ísland er þroskað lýðræð-
isríki með trausta innviði og póli-
tískan stöðugleika.“ Þá er vinnu-
markaðurinn sagður þroskaður og
öruggur og spilling í samfélaginu
með því minnsta sem þekkist í heim-
inum.
Íslendingar eru sagðir búa yfir
miklum sköpunarkrafti og náttúru-
legur kraftur einkenni það ferskasta
í menningunni og einstakur hljómur
nýsköpunar í tónlist og sjónlist kall-
ist á við hrynjandi rímna og Íslend-
ingasagna.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
„Bjartur í Sumar-
húsum býr hér enn
í hverjum manni.
Ímynd Íslands Fólkið, menn-
ingin og atvinnulífið er tengt við
náttúrulega krafta og sett upp
sem eldfjall í frumlegri skýringar-
mynd nefndarinnar.
Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is
Stærð 140x200
dúnsængur
100% dúnn
100% bómull
790 grömm
dúnfylling
engin
gerfiefni
Dúnmjúkar
áður 33.490 kr
nú 24.990 kr
Fermingartilboð
100 stk á tilboðsverði
Geir H. Haarde Lét búa til skýrslu þar sem dregin er upp mynd af sjálfstæðum Íslendingum sem eru duglegir og harðir af sér vegna þess að
náttúruhamfarir og fátækt fyrri alda hefur mótað þá.