Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Qupperneq 17
niður þarna. Þeirra horfur voru miklu verri því þeir voru bara í fangelsum og margir héldu áfram í neyslu og breytt- ust ekkert við fangavist.“ Sigurður segir batahorfur einstaklinga með fíknisjúk- dóma alltaf verri en þeirra sem ein- göngu þjást af geðsjúkdómum. Tveir starfsmenn með hverjum vistmanni „Í byrjun þá erum við að skoða fólk undir miklu öryggi en það sem er svo mikilvægt er að þegar við vitum að öryggið er komið þá verðum við að stunda endurhæfingu.“ Þá er unnið að því að byggja fólk upp í þeirri von að það komist út í lífið á nýjan leik. Þegar vistmaður hefur verið á deildinni í ákveðinn tíma getur hann fengið að fara í gönguferðir í nágrenn- inu og bæjarferðir í fylgd tveggja starfs- manna. „Það er yfirleitt í fyrstu eftir svona sex mánuði sem einhver fær að fara mikið út. Auðvitað er þó eng- in regla í því, það er svo mismunandi hvernig fólk er statt. Þetta snýst í raun um að endurhæfa fólk út í samfélagið.“ Geðklofi algengastur Algengustu geðsjúkdómarnir sem koma til álita þegar verið er að meta ósakhæfi eru yfirleitt alvarlegir viðvar- andi sturlunarsjúkdómar; geðklofi eða alvarlegt manískt geðhæðarástand. „Algengasta sjúkdómsgreiningin hjá okkur er alveg örugglega geðklofi eða líkt ástand; geðhvarfasjúkdómar, geðklofasjúkdómar, fíknisjúkdómar og persónuleikaraskanir. Sigurður bendir þó að sumir ein- staklingar fari í sturlun tímabundið af neyslu. Það er sá hópur sem er á gráu svæði þegar sakhæfi er metið. „Þessi hörðu efni, amfetamín og lík lyf eru svo hættuleg því þau ýfa svo upp sjúk- dóminn. Tímabundin áhrif af amfeta- míni og kókaíni eru geðrofseinkenni.“ Aðspurður segir Sigurður að marg- ir þeirra einstaklinga sem þjást af geð- sjúkdómum séu í raun líka veikari fyrir fíknisjúkdómum. Ólar ekki notaðar síðan 1930 Í kvikmyndum og skáldsögum er oft dregin upp drungaleg mynd af geð- sjúkrahúsum, þar sem sjúklingar eru bundnir eða reyrðir niður. Sigurður segir þetta vera fjarri veruleikanum hér á landi. Öllum slíkum tólum og tækjum var hent upp úr 1930 og hafa ekki verið notuð síðan í meðferð geð- sjúkra. „Við notum frekar einangrun og lyf og svo höfum við mann með fólki. Í neyðartilvikum þegar við ráð- um ekki við aðstæður, og það gerist ekki inni á þessari deild, þá er hægt að biðja lögregluna um að koma til að halda uppi aga bara eins og í þjóðfélaginu.“ Það þarf þó ekki að fara langt út fyrir landsteinana til að finna geð- sjúkrahús þar sem ólar eru notað- ar til að hafa hemil á geðsjúkum. Á Norðurlöndunum er þetta til dæmis eitt öryggisúrræða fyrir sjúklinga og starfsfólk. Sigurður bendir á að nauðungar- vistun sé margfalt sjaldgæfari á Ís- landi en á hinum Norðurlöndunum. Þegar hann starfaði sem læknir í Sví- þjóð þá var það til að mynda daglegt brauð að njörva niður fólk á bráða- geðdeildum. „Svíarnir og Norðmenn- irnir hrista hausinn og trúa okkur ekki á almennum geðdeildum – að við séum ekki að nota þetta.“ Réttargeðdeildin rólegust Sigurður segist ekki þekkja til þess að óánægja sé með það á öðrum deild- um Klepps að réttargeðdeildin sé komin undir sama þak. Hann áttar sig þó á því að það geti vakið kvíða hjá einhverjum að sjúklingar sem framið hafa voðaverk séu í næsta nágrenni. Mikilvægt sé þó að horfa á hlutina í stærra samhengi. Sigurður sér einn- ig um aðra deild, við hlið réttargeð- deildarinnar, þar sem vistaðir eru einstaklingar sem hafa verið svipt- ir sjálfræði en hafa ekki brotið af sér. „Þeir eru kannski með miklu meiri ofbeldissögu en hinir. Það er oft svo mikil tilviljun sem ræður hvað ger- ist í einhverju slysi. Því oftast er þetta náttúrulega slys þegar fólk er svona veikt. Það hefur ekki verið til neinna vandræða að hafa þá deild þar. Þetta fólk er í eðli sínu rólegra og uppákom- ur á þessum deildum eru sjaldgæfari en á venjulegum geðdeildum. Það liggur mikið í kúltúrnum. Allt sem er gert fyrirbyggjandi, það kemur í veg fyrir hluti.“ Sigurður segist ekki hafa orðið var við óánægju eða kvartanir frá íbúum og fyrirtækjum í grennd við spítalan- um og bendir á að í nágrannalöndun- um séu réttargeðdeildir nær undan- tekningalaust staðsettar í þéttbýli. Það gætir þó ennþá fordóma gagn- vart geðsjúkum í samfélaginu. Sigurð- ur tekur eftir því en telur Íslendinga vera að færast í rétta átt. „Ég skil alveg, og kannski hefur það komið svolítið á óvart, að það er svolítil hræðsla við þetta ennþá. En ég held þetta sé bara óvissa og þekkingarleysi. Svolítill eim- ur af fordómum. Það er bara eitthvað sem við verðum að vinna með og með því að útskýra hlutina þá held ég að hlutirnir verði í lagi.“ Fréttir 17Helgarblað 9.–11. mars 2012 Nýi uppáhaldsstaðurinn þinn í Reykjavík! Borðapantanir í síma 553 5323 AÐALSTRÆTI 2 - 101 REYKJAVÍK - WWW.RUB23.IS Sumir loSna aldrei af deildinni n Ný réttargeðdeild opnuð á Kleppi n Þar eru vistaðir alvarlega veikir einstaklingar sem ófærir eru um að stjórna gjörðum sínum „Time out“-herbergi Á öryggisganginum er herbergi þar sem einstaklingar geta fengið að pústa og hugsa sig um með eftirlitsmanni. Vistlegt Herbergin eru björt og vistleg, búin rúmi, skrifborði, stól, sjónvarpi og fataskáp með læstri hirslu fyrir persónulegar eigur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.