Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Síða 38
Byggingarlist 38 m e n n i n g a r v e r ð l a u n d v 2 0 1 17 . m a r s 2 0 1 2 val fólksins Þetta kom mér svolítið á óvart þar sem ég hélt að einhver tónlistarmaður hefði tekið þetta,“ segir Guðmundur Jörundsson, yfirhönnuður Kormáks & Skjaldar en verslunin fékk verðlaunin Val fólksins. Í vetur var frumsýnd glæsileg herrafatalína Kormáks & Skjaldar. Þetta er önnur herrafatalína merkisins og er hún líkt og sú fyrsta hönnuð af Guðmundi. Guðmundur hefur unnið hjá Kormáki og Skildi í rúmlega fimm ár en hefur verið í fullu starfi hjá þeim síðan í haust. „Ég byrjaði hjá þeim áður en ég fór í fata- hönnunarnám í Listaháskólanum en í miðju námi ákváðum við að gera fyrstu línuna og gerðum svo aðra um leið og ég útskrifaðist. Þeir buðu mér svo hönnun- arstarf er ég kláraði námið.“ Hann segir samstarfið hafa gengið afar vel og nú sé búið að stofna fyrirtæki í kringum merk- ið. Þeir séu í undirbúningsvinnu í vor- línunni og haustlínu sem sýnd verður á Reykjavik Fashion Festival í lok mánað- arins. „Við erum með stór plön og það er nóg að gera.“ Fyrirtækið sem um ræðir heitir Klæðskeraverkstæði Kormáks og Skjaldar en línan Kormákur og Skjöldur Collection. Aðspurður hvort þeir stefni á útrás segir Guðmundur að þeir vonist til að geta selt út. „Ég veit ekki hvenær við stefnum á það en það væri mjög spenn- andi. Við erum í fyrsta skipti núna í fram- leiðslu í verksmiðju erlendis og það er stórt stökk. Við ætlum að fikra okkur áfram og ná tökum á því áður en við för- um með vöruna á sölusýningar. Klæðskeraverkstæði Kormáks og Skjaldar hefur eingöngu hannað karl- mannsföt en Guðmundur segir að von- andi færi þeir sig einnig yfir í kvenfatnað seinna meir. „Við ætlum að ná fullum tökum á því sem við erum í núna áður en við förum að bæta við okkur nýjum verk- efnum. Við erum alltaf að læra eitthvað nýtt á hverjum degi.“ Hann segir það frábært að fá slíka viðurkenningu frá fagaðilum. „Það er líka frábært að vita að almenningur sé hrifinn af þessu. Mér finnst samt tilnefn- ingin sjálf vera mesta málið og er aðal- lega ánægður með við skyldum vera til- nefndir.“ Umsögn dómnefndar: Herrafataverslunin hefur á undanförn- um árum haft víðtæk áhrif á herratísku íslenskra karlmanna og hefur skapast ákveðið samfélag og ímynd í kringum hana. Guðmundi hefur nú tekist að búa til herrafatalínu úr þessari ímynd. Hann vinnur á vandaðan hátt úr klassískri herratísku og heldur hönnuninni tíma- lausri. Jafnframt gæðir hann þau fersk- leika þannig að þau eiga fullt erindi við tísku dagsins í dag. Stór áform og nóg að gera Kormákur & Skjöldur – herrafatalína Það er ekki um auðugan garð að gresja í svona viðurkenningum fyrir byggingarlist og þess vegna lítum við á þessi verðlaun sem ákveðin status,“ segir Sigurður Einarsson, arkitekt hjá Batteríinu Arkitektum ehf., en hann er aðalhönnuður og verkefnisstjóri Hörpu, en Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa vann til Menningarverðlauna DV í flokknum „byggingarlist“. Auk Menningarverðlauna DV hefur Harpa hreppt þrjú verðlaun síðan húsið var opnað. Það eru hin bresku Civic Trust Awards, verðlaun fyrir besta list- viðburðahúsið hjá Travel & Leisure Design Awards og svo fékk torgið fyrir framan Hörpu verðlaun sem besta al- menningsrýmið á Arkitekturmassan í Svíþjóð. „Verðlaunin er að detta inn á erlendum vettvangi,“ segir Sigurður og bætir við að Harpa fái mikla umfjöllun erlendis. „Það er sama hvaða arkitekta- tímarit eða vefmiðill er skoðaður. Alls staðar er tekið á þessu húsi og umfjöll- unin er meira og minna í eina áttina – ótrúlega jákvæð. Maður nær bara ekki að lesa þetta allt.“ Aðspurður um umræðuna hér heima segir Sigurður fáa neikvæða einstaklinga hafa haft hátt. „En ef við tölum ekki um kostnaðinn heldur bygginguna sem slíka, arkitektúrinn og hljómburðinn þá hefur umræðan í mín eyru aðeins verið jákvæð,“ segir hann en bætir við að umræðan um kostn- að hafi oft verið á talsverðum villigöt- um. „Þegar samkeppni um húsið lauk árið 2005 var byggingin boðin á 12 milljarða. Í dag eru menn að tala um heildarkostnað í kringum 30 milljarða. Í gamni mínu umreiknaði ég þetta yfir í kanadíska dollara því ég var að bjóða í verk þar í landi. Þar minnir mig að árið 2005 hafi upphæðin náð 230 milljónum kanadískum dollurum og hafi hækkað upp í 257 milljónir árið 2011 svo hækk- unin var í raun óveruleg. Íslenska krón- an var náttúrulega allt önnur 2005 en hún er í dag.“ Sigurður segir Hörpu þá byggingu sem hann sé stoltastur af. „Harpa er toppurinn á ferlinum. Ég hef unnið við ýmsar byggingar og hingað til var ég stoltastur af skála Alþingis en við feng- um einmitt Menningarverðlaun DV fyr- ir hann árið 2002. Þá var skálinn okkar skrautfjöður. Nú stendur Harpa upp úr. Hún er það spes.“ Umsögn dómnefndar um Hörpu: Sem form í borgarmyndinni vekur Tón- listarhúsið Harpa aðdáun og hrifningu sumra, undran annarra. Tilkoma hennar setur mikið mark á miðbæ Reykjavíkur og hafnarsvæðið og hún kemur til með að skipa stóran sess í framtíðarskipulagi svæðisins. indiana@dv.is Harpa toppurinn á ferlinum Sigurður Einarsson er aðalhönnuður og verkefnisstjóri Hörpu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.