Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Qupperneq 40
40m e n n i n g a r v e r ð l a u n d v 2 0 1 17 . m a r s 2 0 1 2 kvikmyndir danslist Þetta er náttúrulega frábær viðurkenning, líka bara fyrir fyrirtækið í heild sinni því fyrirtækið var kosið en ekki einhver einstaklingur. Það skiptir okkur miklu máli,“ segir Arnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri kvikmyndafyrirtækisins Caoz, sem meðal annars hefur framleitt teiknimyndina Legends of Valhalla, Hetjur Valhallar. Caoz hlaut Menningarverðlaun DV í flokki kvikmynda árið 2011. „Kvikmyndafyrirtækið Caoz fær Menningarverðlaun DV fyrir frumkvöðlastarf. Caoz hefur byggt upp sérfræðigrunn hér á landi og víðar, hlúð að hugviti, ráðist í nýja tækni, skapað tækifæri til frekari teiknimyndaframleiðslu og vakið á henni athygli á Íslandi og utan landsteinanna,“ segir í umsögn dómnefndar um fyrirtækið. Seld til 60 landa Hetjur Valhallar sló í gegn í kvikmyndahúsum hér á landi á síðasta ári og fékk frábæra dóma. Þá hefur myndin verið seld til sýningar í sextíu löndum, en Suður-Kórea er þó eina landið sem þar sem hún hefur verið sýnd enn sem komið er. „Það eru nú þegar um 750 þúsund manns nú þegar bara þar, sem er þó nokkur fjöldi. Svo er bara að bíða og sjá hvernig þetta kemur út í öðrum löndum. Þetta er allavega frábær byrjun.“ Arnar segir misjafnt hvenær Hetjur Valhallar verður tekin til sýninga í hinum löndunum en það muni líklega dreifast niður á allt þetta ár. Byrjað að þróa næstu mynd Eftir frábærar viðtökur á frumrauninni í teiknimyndagerð í fullri lengd er starfsfólk Caoz byrjað að þróa næstu mynd. Arnar segir þó unnið að öðrum verkefnum samhliða því, til dæmis auglýsingum. „Fókusinn er náttúrulega að skapa þennan iðnað hérna heima á þessari braut, að búa til teiknimyndir.“ Hann bendir á að ekki sé hlaupið að því að hrinda svo stóru verkefni í framkvæmd enda ekki margir sem hafi reynslu í þessum iðnaði hér á landi. „Þetta tekur allt langan tíma. Eins og með þessa mynd, frá því við hófum raunverulega framleiðslu og þangað til hún var búin liðu tvö ár.“ Ferlið frá því hugmyndin kviknaði og þangað til myndin var tekin til sýninga tók þó sex ár. Búin að sýna sig og sanna Arnar segir þau nú vera reynslunni ríkari og búin að sýna sig og sanna. „Þá gengur þetta nú sjálfsagt aðeins betur fyrir okkur að taka næsta verkefni að okkur.“ Kvikmyndafyrirtækið Caoz var stofnað árið 2001 og er leiðandi á sínu sviði í Evrópu. Áður en Hetjur Valhallar litu dagsins ljós hafði fyrirtækið meðal annars framleitt stuttu teiknimyndirnar Litla lirfan ljóta og Anna og skapsveiflurnar. Þær hafa báðar unnið til fjölmargra verðlauna. solrun@dv.is Arnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Caoz, segir fyrirtækið nú vera búið að sýna sig og sanna. „Skiptir okkur miklu máli“ Þetta kom mér mjög á óvart. Þetta er mikill heiður og ég var bara rosaglöð með þetta. Það eru svo margir sem eiga þátt í þessu, fólkið sem ég vinn með. Ég er búin að vera að vinna á mikið á Íslandi síðasta árið og ég er með svo góðan hóp með mér. Þá auðvitað gengur allt betur,“ segir danshöfundurinn Erna Ómarsdóttir sem hlaut Menningarverðlaun DV í flokki danslistar árið 2011. Hún segir mjög gott að fá svona viðurkenningu og að allir sem voru tilnefndir eigi að vera ánægðir. „Svona keppni í listum, það er alltaf spurning með það, en ég held þetta hafi rosagóð áhrif. Þetta er svona einhvers konar uppskera.“ Hægt að túlka pólitík með dansi Erna segir mikla grósku í dansi á Íslandi og mikið af ungu og efnilegu fólki bætist sífellt í hópinn. Síðustu árin hafi í raun orðið hálfgerð sprenging. „Það er ótrúlega gaman að vera á Íslandi og sjá og taka þátt í þessu blómlega danslífi. Þetta er rétt að byrja en það er búin að vera góð orka í loftinu síðustu árin. Sérstaklega eftir að Listaháskólinn byrjaði með dansdeildina. Svo eru náttúrulega margir sem fara út að læra. Það er góð blanda.“ Erna segir dansinn vera mjög margslunginn og á Íslandi fái áhorfendur aðeins að sjá brot af þeim dansstefnum sem eru í gangi úti í heimi. Hún skynjar aukinn áhuga á dansi meðal almennings hér á landi og áhorfendahópurinn sé sífellt að stækka. „Fólk er að fatta hvað þetta er skemmtilegt og áhugavert,“ segir Erna og bendir jafnframt á að hægt sé að túlka svo margt með dansinum, meira að segja pólitík. Svo sé dansinn alþjóðlegt tungumál. Hefur unnið mikið erlendis Erna hefur starfað mikið erlendis, aðallega í Mið-Evrópu; Frakklandi, Belgíu og Þýskalandi. Hún hefur mikið unnið með danshöfundum og leikstjórum í Belgíu upp á síðkastið, ásamt því að vinna að sínum eigin verkum. Oft er um að ræða ólík leikhús sem koma að verkunum og styrkja þau. Svo er farið með verkin á sýningarferðalög. Sum verk ganga í fjölda ára á meðan önnur hafa styttri líftíma. Á döfinni hjá henni er meðal annars að fara aftur af stað með verkið Teach us to outgrow our madness sem var frumsýnt árið 2009. Þá hefjast sýningar á verkinu Við sáum skrímsli í Feneyjum í sumar og verður það einnig sýnt á stórri sviðslistahátíð í Berlín. Með einn sex mánaða Í haust mun Erna halda til Japans með verkið Tickling death machine, sem er samstarfsverkefni hennar og Valdimars Jóhannssonar, eiginmanns hennar, við hljómsveitina Reykjavík! Erna „Rosaglöð með þetta“ Erna Ómarsdóttir hlaut Menningarverðlaun DV í flokki danslistar: lýsir verkinu sem tónleikum með leikrænu ívafi og ýmsum uppákomum. Þau munu fara með verkið meðal annars til Frakklands og Ástralíu. „Svo erum við að fara að byrja á nýjum verkefnum og ætlum að vinna dálítið á Íslandi því nú er maður kominn með einn lítinn,“ segir Erna og vísar þar til sex mánaða sonar síns. „Þá er gott að vera á Íslandi.“ solrun@dv.is Mörg járn í eldinum Ýmislegt er á döfinni hjá Ernu Ómarsdóttur á næstu mánuðum. Hún er meðal annars á leið með þrjú verk á sýningarferðalag víðs vegar um heiminn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.