Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Qupperneq 44
44 Viðtal 9.–11. mars 2012 Helgarblað
á móti Ólafi Darra. Vegna þess er hún
komin með sítt, svart hár, andstætt við
ljósu lokkana sem hún skartar í Svart-
ur á leik. „Ég sagði við þá að ég myndi
ekki leika í þeirri mynd nema ég fengi
að breyta hárinu svona. Ég vildi ekki
að fólk færi að tengja mig við Dagnýju
sem ég leik í Svörtum. Það er svo stutt
á milli frumsýninga nefnilega að mér
fannst þetta skipta brjáluðu máli. Ég
fékk líka staðfestingu á því á frumsýn-
ingunni að þetta hefur breytt mér al-
gjörlega,“ segir María Birta sem gekk
um nánast ósýnileg á frumsýningunni
með svörtu lokkana.
„Það þekkti mig enginn og ég gekk
fram hjá öllum ljósmyndurum og öll-
um. Eftir sýninguna var ég að reyna
að knúsa Óskar leikstjóra til hamingju
og hann var orðinn geðveikt pirrað-
ur á gellunni sem var að toga í hann.
Hann bara þekkti mig ekki,“ segir hún
og hlær.
María var alveg í skýjunum þegar
hún fékk handritið að Svartur á leik
og sá að hún átti að leika kókaínhóru,
orð sem hún kýs þó ekki að nota. „Ég
vil leika eitthvað rosalega krefjandi.
Ég nenni ekki að leika eitthvað sem er
of auðvelt. Mamma var sú fyrsta sem
ég hringdi í eftir að ég fékk handritið
og ég var alveg í skýjunum því ég fékk
að leika kókaínhóru. Reyndar er það
svo ljótt orð. Mér finnst Dagný nefni-
lega ekki vera þannig í myndinni. En
þetta var krefjandi fyrir mig því sjálf
hef ég aldrei prófað nein efni né reykt
eina sígarettu. Það var því spennandi
að takast á við þetta,“ segir María Birta.
Minnkar við sig í fyrirtækinu
Eftir svona mikla velgengni á svo
skömmum tíma í leiklistinni liggur
beinast við að spyrja hvort hún ætli
ekki að mennta sig eitthvað í fræðun-
um. „Það eru rosalega margir búnir
að spyrja mig að þessu og ég hef pælt
í því. Það kæmi sjálfri mér ekkert á
óvart ef ég myndi sækja um einhvers
staðar í haust en þá vildi ég helst gera
það erlendis. Ég vil þá líka læra kvik-
myndaleik en ekki að leika á sviði. Það
eru alls konar litlir hlutir sem ég hef
verið að læra á setti sem ég væri til í
að kunna betur,“ segir María Birta en
til þess að rýma fyrir meira námi þarf
hún að minnka við sig í búðarrekstrin-
um en María rekur verslunina Maníu
á Laugaveginum.
„Á þessu ári er ég að kúpla mig
hægt og rólega út úr fyrirtækinu. Þetta
er í fyrsta skipti sem ég er með ein-
hvern sem sér um allt með mér og mér
finnst það rosalega óþægilegt. Það má
kannski alveg segja að ég sé svolítið
stjórnsöm. Bókarinn minn sem hefur
unnið með mér frá byrjun spurði mig
hvort mér liði ekki stundum eins og ég
væri málari en ég þyrfti að framleiða
málninguna áður en ég byrjaði. Ég
hafði bara aldrei pælt í þessu svona.
Ég er oft að vinna einhver verk sem
einhver annar getur gert og eflaust
betur en ég.“
Byrjaði með fimm þúsund krónur
María Birta hóf átján ára að reka net-
verslun á samskiptavefnum MySpace.
Það gekk svo vel að hún var farin að
eyða umtalsverðum tíma á hverjum
degi í reksturinn. Hún ákvað þá að
stökkva út í verslunarrekstur á Lauga-
veginum aðeins nítján ára að aldri.
„Ég held ég sé meiri „doer“ en „thin-
ker“. Ég hugsaði þetta aldrei alveg
til enda. Ég hugsaði bara: Ef ég fer á
hausinn þá tapa ég bara því sem ég
byggði upp því ég tók engin lán. Án
gríns byrjaði ég með fimm þúsund
krónur sem urðu að tíu þúsund krón-
um og þær urðu að 100 þúsundum.
Svona byggði ég þetta hægt og rólega.
Í stað þess líka að panta einhverja risa-
sendingu var ég búin að tína til hliðar
föt í nokkra mánuði á netinu. Ég var
farin að eyða svona tólf tímum á dag
í netreksturinn,“ segir María Birta sem
segist þó ekki vera orðin rík á rekstrin-
um. „Það var aldrei ætlunin. Ég skap-
aði mér þarna bara atvinnu sem ég var
og er glöð með. Mér hefur alltaf fund-
ist gaman að vinna í búðum og hef
gert það alla mína tíð. En nú langar
mig í nám og er á fullu í því.“
Námið sem um ræðir er flugnám
en María Birta eyddi miklum tíma
í það síðasta haust og vill halda því
áfram. „Ég þarf alltaf að leggja það á
hilluna, því miður. Það nám hentar
mér fullkomlega því ég mætti alltaf
6.30 á morgnana í flugið og gat þá ver-
ið mætt í ræktina klukkan 10 áður en
ég opnaði búðina klukkan ellefu. Þetta
er svo rosalega skemmtilegt nám. Ég
er nú enginn morgunhani en samt gat
ég rifið mig upp hálf sjö á morgnana
til að fljúga,“ segir María sem fór síð-
ar aftur í skólann um kvöldið og var
komin heim klukkan ellefu. Þá voru
sjö tímar í að fjörið hæfist aftur. „Mað-
ur var dauðþreyttur á morgnana og
stundum hálfsofandi í fluginu,“ segir
hún og hlær.
Mundu að þú munt deyja
Óhætt er að segja að María Birta fari
sínar eigin leiðir. Næst á dagskrá er ut-
anlandsferð þar sem hún ætlar í fall-
hlífarstökksnám. Það er hluti af henn-
ar „fáránlegu áramótaheitum“ eins og
hún orðar það sjálf. „Ég strengi alltaf
einhver svona heit. Í fyrra var það að
taka eins mörg próf og ég gat. Þá ákvað
ég að fara í flugnámið og taka bílpróf-
ið. Á þessu ári ætla ég að taka ennþá
fleiri próf. Draumurinn er að taka
„batwing“-prófið en áður en maður
gerir það þarf maður að stökkva 200
sinnum með fallhlíf. Ég stefni á 40
stökk í næsta mánuði,“ segir María
Birta sem fer utan í lok mánaðar og
kemur heim eftir miðjan apríl.
Hún stefnir á atvinnuflugmanns-
námið í haust og til frambúðar líst
henni vel á hvaða frama sem er, hvort
sem það er sem flugmaður, verslun-
areigandi eða leikkona. Hún segist
að hluta lifa eftir latneska orðatiltæk-
inu memento mori, eða mundu að þú
munt deyja. „Vinur minn sagði mér
nýlega frá þessu og ég lifi svolítið eft-
ir þessu. Maður veit ekki hvað gerist
á morgun þannig að ég geri bara allt í
dag,“ segir hún.
Ástarjátningar á djamminu
Hún viðurkennir að nýfengin frægðin
sé stundum erfið. Mesta áreitinu verð-
ur hún fyrir í miðbæ Reykjavíkur þeg-
ar fólk er komið í glas. „Það er kannski
þægilegt að vera frægur á Íslandi þeg-
ar maður er orðinn aðeins eldri. Þetta
er svolítið erfitt stundum, aðallega
á djamminu. Þegar fólk er komið í
glas þorir það nefnilega alveg að
segja manni hluti. Ég er búin að fá
svo margar ástarjátningar að það
er bara óþægilegt. Þetta er líka eitt-
hvert fólk sem man síðan ekkert
eftir því daginn eftir. Þetta er frek-
ar skrítið og ég er alls ekki mann-
eskjan í þetta. Ég bjóst ekki alveg
við að þetta væri svona. Stjúpfað-
ir minn er rosalega frægur (Pálmi
Gestsson, innsk. blm.) og að ganga
með honum niður Laugaveginn er
rosalega óþægilegt því það þekkja
hann allir. Þegar mér líður illa með
mitt litla, sem ég er eflaust að mikla
fyrir mér, þá ber ég mig bara saman
við hann og þá líður mér betur,“ seg-
ir hún en bætir við:
„Ég er samt það heppin að ég fæ
jákvæð viðbrögð. Ég er ekki að fá á
mig eitthvert fólk sem er að tjúllast á
mér með einhverjum niðrandi orð-
um á djamminu og það fríkar mig
líka svolítið út. Ég pæli meira í þessu
núna því ég verð að gera það,“ segir
María Birta.
Ólst upp við myndavélar
Sjálfstraustið geislar af Maríu Birtu
hvert sem hún fer og er hún alveg
óhrædd við að vera sú sem hún er og
lifa sínu lífi. Hún viðurkennir þó að
fólk taki því sem hroka. „Já, algjörlega.
Ég lendi svolítið í því að fólk haldi það
um mig. Ég myndi bara segja að ég
væri rosalega misskilin. Ég heyrði það
á sínum tíma að ég væri rosa góð með
mig en málið er að ég er bara örugg.
Ég þori að vera ég og fólki finnst það
oft mjög óþægilegt. Það sýnir svolít-
ið þeirra eigin vandamál. Það kem-
ur fólki til dæmis oft á óvart þegar ég
segist ekki hafa prófað neitt. Margir
halda að ég sé alltaf með nefið uppi
á djamminu, í góðum fíling og búin
að prófa allt í heiminum. En ég þori
bara að vera ég og þarf engin aukaefni
til þess,“ segir María Birta. En hvaðan
kemur þetta öryggi og sjálfstraust?
„Ég ólst upp við myndavélar,“ svar-
ar hún að bragði. „Pabbi tók myndir af
mér alls staðar og var alltaf með upp-
tökuvél á sér. Hann
tók stundum „fald-
ar myndavélar“ af
mér og bróður mín-
um þar sem við vor-
um að gera ómerki-
lega hluti eins og
að borða spagettí.
Þannig bara vand-
ist ég þessu. Þetta
hljómar kannski
klikkaðra en það
er. Svo byrjaði ég
líka að starfa sem
módel mjög ung.
Ég opnaði til dæm-
is sýningu í Tókýó
fyrir framan 3.000
manns þegar ég
var sextán ára. Skrápurinn á manni
þykknar bara við svoleiðis,“ segir hún.
Kannski tími fyrir ást um næstu jól
María lifir lífinu ansi hratt en er ekki
sammála því að hún taki of mikið að
sér. „Er hægt að gera of mikið?“ spyr
hún brosandi. „Bara á þessu ári fer
ég í mótorhjólaprófið og held áfram í
flugnáminu. Svo er það fallhlífarstökk-
ið og í sumar ætla ég að taka köfunar-
prófið,“ segir María en hraðinn hefur
sína ókosti, til dæmis að hún gleymir
oft að borða. „Það gleymist stundum.
Málið er að ég fæ ekki svengdartilfinn-
ingu sem getur verið ókostur í mínu
lífi. Vinir mínir hringja reglulega í mig
og athuga hvort ég sé búin að borða,“
segir hún en vináttan er eitthvað sem
hún ræktar. „Ég gat illa gert það síð-
asta haust þegar ég var í flugnáminu
því ég var upptekin öll kvöld. En vin-
irnir skipta mig rosalega miklu máli.
Þeir eru númer eitt hjá mér,“ segir hún.
En hvað með ástina? „Ég er ein-
hleyp í dag,“ segir hún og setur upp
fýlusvip. „Mér finnst rosalega gam-
an að fara á stefnumót en ég er ekki
að leita að elskhuga eins og er. Ég hef
bara ekki tíma núna. Kannski um jólin
má koma einhver ást þarna inn í spil-
ið,“ segir hún og brosir.
Verður áfram hún sjálf
Velgengni Maríu Birtu fer ekki vel í alla
en á meðan margar lærðar leikkonur
fá ekki verkefni hefur hin ómenntaða
María fengið þrjú stór verkefni í kvik-
myndum á síðustu tveimur árum. Hún
gefur sig þó ekkert út fyrir
neitt annað en að vera
áhugaleikkona. „Ég hef
bara mikinn áhuga á að
leika. Ég meina, gætu þá
viðskiptafræðingar ekki
verið pirraðir út í mig því
ég er með búð en er ekk-
ert menntuð í þeim efn-
um heldur?“ segir María
og þakkar hlutverkin sem
hún hefur fengið breyti-
legu útliti sínu. „Ætli ég sé
ekki bara heppin með út-
lit þannig að ég get breytt
mér í hvað sem er. Þegar ég
breytti hárinu yfir í svart úr
ljósu þekkti mig enginn. Ég
get breytt mér í hvað sem
er. Bæði get ég verið algjör
rokkari og svo líka algjör
dúllurass. Sjálf var ég að
vonast til að þurfa að snoða
mig fyrir næstu mynd. Það hefði verið
geðveikt,“ segir María sem lofar því að
vera áfram hún sjálf.
„Algjörlega. Vinur minn sagði ein-
mitt við mig um daginn að ég þyrfti
bara að halda áfram að vera ég sjálf.
Kannski verður mér tekið illa fyrstu
tvö árin en þegar ég er alltaf að tönnl-
ast á sömu hlutunum hlýtur fólk að
sjá að ég meina það sem ég segi,“ segir
María Birta Bjarnadóttir. n
„Maður veit ekki
hvað gerist á
morgun þannig að ég geri
bara allt í dag.
Enginn tími
fyrir ástina
María hefur ekki
tíma fyrir elsk-
huga núna en
það má skoða
það um jólin.
Vill krefjandi verkefni María vill ekki leika eitthvað sem er of auðvelt fyrir hana.