Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Síða 72

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2012, Síða 72
Er þetta ekki eitt stórt samsæri? Meyr og montin n Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna bloggaði Hildur Lilliendahl um þá miklu athygli sem femín- ismi hefur fengið síðustu vikurnar. Hún segist finna fyrir því að eitt- hvað sé að breytast. „Í tíu daga hef- ur femínismi verið til umfjöllunar á kaffistofum og í fjölmiðlum og í skúmaskotum internetsins nokkuð viðstöðulaust. Ég man ekki hvenær það gerðist síðast.“ Hildur segist vona að með myndaalbúmi sínu Karlar sem hata konur og athygl- inni sem það fékk hafi hún breytt einhverju og að með stuðningi fólks í landinu og DV hafi henni tekist að hreyfa við einhverju. Hún segist vera hrærð og stolt. „Á þessum degi, fyrir ári síðan, var ég svartsýn og nokkuð döpur. Í dag, öðr- um dögum fremur, er ég meyr og montin og jafnvel svo- lítið bjart- sýn.“ Prestshjón styðja Sigurð Árna n Prestshjónin Jóna Hrönn Bolla- dóttir og Bjarni Karlsson hafa lýst yfir stuðningi við framboð Sigurðar Árna Þórðarsonar til biskups. Bar- áttan um biskupsstólinn stendur nú yfir en það kemur í ljós á næstu vikum hver verður næsti biskup Ís- lands. Stuðningur hjónanna mun eflaust reynast Sigurði Árna vel. Sigurður Árni er þeim hjónum vel kunnur en hann var heimilisvinur á bernskuheimili Jónu Hrannar þegar hann var prestur að Hálsi í Fnjóska- dal. Þá var hann æsku- lýðsleiðtogi og foringi í starfi KFUM sem Bjarni sótti sem ung- lingur. Stofnar eigin fjölmiðil n Eiríkur Jónsson blaðamaður ætlar að feta nýjar brautir þegar hann setur í loftið vefinn eirikurjonsson. is, þar sem hann ætlar að vera með fréttir sem hann segir með sínum sérstæða hætti. Blaðamaðurinn hefur komið víða við á litríkum ferli, svo sem á DV, Séð & heyrt og nú síðast Pressunni. Í Fréttablaðinu á fimmtudag sagð- ist Eiríkur ætla að endurvekja spjallþætti sína á síðunni, en þættir hans voru sýnd- ir á Stöð 2 fyrir mörgum árum. Eiríkur hefur þegar stofnað einkahluta- félag utan um rekstur- inn og segist hafa bull- andi trú á netinu. G eir Hilmar Haarde, fyrrver- andi forsætisráðherra og sak- borningur í landsdómsmálinu, borðar alla jafnan í matsölu Þjóðmenningarhússins ásamt öðrum sem tengjast réttarhöldunum með einhverjum hætti. Á miðvikudag snæddi hann þar lasagna líkt og Inga Jóna Þórðardótt- ir, eiginkona hans. Það er létt stemn- ing í landsdómi og var ekki verið að hafa fyrir því að rukka Geir fyrr en seinna um daginn en hann keypti sér svart kaffi með mjólk síðar um daginn. Þá ætlaði hann að gera upp skuld dagsins fyrir bæði sig og Ingu Jónu. Það vildi þó ekki betur til en að Geir fékk synjun á platínum kortið sitt. Í fyrstu héldu Geir og afgreiðslu- maðurinn í matbúðinni að Geir hefði slegið inn rangt PIN-númer þegar hann borgaði með kortinu. „Ég man þetta aldrei,“ sagði Geir þá við sjálfan sig og reyndi að muna númerið. Það var hins vegar ekki málið eins og kom í ljós þegar reynt var að sleppa PIN-númerinu. Kjartan Gunnarsson, fyrrver- andi framkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins, var fljótur að bregðast við og rétti þúsund króna seðil að Geir. Það reyndist þó ekki þörf á þeim stuðningi og tók Geir sjálfur upp fimm þúsund króna seðil úr jakka- vasanum og rétti afgreiðslumann- inum, sem hafði þó boðið honum að borga bara seinna. Afgreiðslumað- urinn gat að sjálfsögðu verið viss um að hitta aftur á Geir þar sem lands- dómsréttarhöldunum er hvergi nærri lokið. Meðan á þessu öllu stóð lengdist röðin í matsölunni og meðal þeirra sem biðu eftir Geir var Sigríður Frið- jónsdóttir, saksóknari Alþingis, en blaðamaður gat ekki betur séð en að hún glotti að þessu öllu saman. Geir fékk synjun á kortið n Geir H. Haarde snæddi lasagna í Þjóðmenningarhúsinu með eiginkonu sinni Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 9.–11. mars 2012 29. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.