Frjáls verslun - 01.05.2008, Page 73
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8 73
Er einhver tískustefna í stjórnun núna, að ykkar mati?
T.d. eins og straumlínulaga rekstur; að allir viti um stefnu
fyrirtækisins og svo framvegis?
Ragnhildur: Já, það hefur verið mikið í tísku að kaupa fyrirtæki!
Áslaug: Undanfarin ár hafa fréttir snúist um kaup og ekki óalgengt að
heyra sögur af stærstu kaupum Íslandssögunnar í hinum og þessum
geirum. Svo voru allir að reyna að toppa það, eins og við þekkjum. Í
dag held ég að stjórnendur hafi skipt um gír og séu ánægðir ef fréttir
snúast um góða afkomu.
Hver er munurinn á því að stjórna fyrirtæki í niðursveiflu eða
uppsveiflu? Það er talað um að það eigi að ráða fjármála-
stjóra í niðursveiflu en markaðsstjóra ef uppsveifla er talin
vera á leiðinni. Er áherslan núna á fjármálastjórann?
Auður: Hvort sem við erum að upplifa uppsveiflu eða niðursveiflu þá
þurfum við ávallt að hafa góðan fjármálastjóra og öflugan markaðs-
stjóra. Í dag reynir þó óneitanlega meira á fjármálastjórann.
Kannski er aldrei eins mikilvægt og nú um mundir að huga
að einhverju nýju - að keppa öðruvísi?
Auður: Huga þarf að nýjum leiðum í samkeppninni og er það vinna
sem þarf reyndar alltaf að vera í gangi. Uppsveiflu fylgir vöxtur og við
þurfum að laga okkur að honum í starfseminni og nýta tækifærin sem
fylgja þeirri sveiflu. En niðursveiflu fylgir oftast meira aðhald ásamt
tiltekt í rekstrinum og eru án efa tækifæri í þeirri sveiflu eins og hinni,
en þau eru oft erfiðari og yfirleitt ekki eins skemmtileg.
Ingunn: Ég er fyrst og fremst í fjárfestingum og í þeim hugsar
maður kannski svolítið öðruvísi og skoðar önnur tækifæri í niður-
sveiflunni en í hefðbundnum fyrirtækjarekstri. Þá er ef til vill leitað
að einhverju nýju. Núna er margt í boði og mikilvægt að ana ekki út
í stórar fjárfestingar nema að vel athuguðu máli.
Ragnhildur: Ég tel að maður hafi aldrei efni á því að bruðla ef ætl-
unin er að reka fyrirtæki með góðum hagnaði. Í niðursveiflu þarf að
setja skýrari ramma og taka erfiðar ákvarðanir. Ég hef alla vega ekki
ennþá verið í rekstri þar sem aðhald skiptir ekki máli.
Áslaug: Góður stjórnandi getur stýrt fyrirtækinu í góðæri á þann hátt
að það komi inn í niðursveifluna með tiltölulega góðan efnahags-
reikning og þá eru auðvitað tækifæri fyrir þá sem eiga peninga.
Kínverska táknið fyrir hættu þýðir einnig tækifæri, því að í hverri krísu
eru líka tækifæri!
Kristín: Skammtímahugsun er oft ríkjandi hjá hinum dæmigerða
íslenska stjórnanda, stefnan er sú að græða rosalega mikið á stuttum
tíma. Góður stjórnandi þarf hins vegar alltaf að hugsa aðeins lengra,
hafa ákveðna framsýni og horfa á tækifærin, líka í niðursveiflu.
Hefur fjármálastjórinn í íslensku viðskiptalífi ekki fengið
meiri völd núna á þessum erfiðu tímum?
Kristín: Jú, ég held að það hafi verið óhjákvæmilegt því við slepptum
alveg af okkur böndunum í góðærinu og þess vegna þarf að stíga á
bremsurnar núna.
h r i n g b o r ð s u m r æ ð u rh r i n g b o r ð s u m r æ ð u r
RAGNHILDUR GEIRSDÓTTIR:
Vinnan má ekki bara snúast
um laun. Það má umbuna
fólki með ýmsu öðru en
peningum. Sú hætta verður
annars alltaf fyrir hendi
að einstaklingar sem eru
drifnir áfram á bónusum
stýri öllu með það fyrir
augum að hámarka eigin
bónus.