Frjáls verslun - 01.05.2008, Blaðsíða 85
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8 85
s j á v a r ú t v e g u r
raun að stjórna fyrirtækinu myndu ráða sínum ráðum framhjá henni.
Þú öðlast engin áhrif við að komast inn í einhverja stjórn, bara af því
að þú ert kona, ef það er ekki að eigin verðleikum. Þarna skjóta þær
langt yfir markið.“
Fylgni, reglusemi og dugnaður
Hvaða aðferðir hafa þá verið árangursríkar?
„Það hefur verið mjög árangursríkt fyrir konur hvað þær hafa verið
ötular og duglegar að afla sér menntunar. Svo hafa konur sýnt fram á
það, með þeirri auknu ábyrgð, sem þær hafa verið að fá, að þær valda
því hlutskipti mjög vel og geta sýnt í verki að þær eru traustsins verðar.
Annars búum við konur yfir svo mörgum hæfileikum sem karlmenn í
raun hafa ekki. Fylgni kvenna, reglusemi og dugnaður eiga fullan rétt
á sér í fyrirtækjarekstri og er víða mikil þörf fyrir þessa eiginleika. Á
hinn bóginn tel ég karlmenn áræðnari, oft hugmyndaríkari og meira
leitandi að nýjum tækifærum. Við erum varkárari og pössum betur upp
á hlutina, en þegar þetta kemur saman er komið fullkomið mynstur,“
segir Rakel.
Talið berst að útrásinni, sem kjarnakonan Rakel þekkir vel til.
„Við keyptum fyrirtæki í Hirtshals í Danmörku árið 2002, sem
leggur skelfiskafurðir í brine, saltlög sem hefur ákveðið geymsluþol.
Þetta er þekkt aðferð á Norðurlöndum til að geyma matvæli, með
endingartíma upp á 6 – 8 vikur.
Reynslan af þessu varð svo til þess að við keyptum annað fyr-
irtæki árið 2005, í Vejle. Þar erum við með mjög stóra verksmiðju
sem kaupir regnbogasilung af bændum í nágrenninu. Silungurinn
er flakaður, flattur og settur í pækil. Svo er hann heitreyktur, kældur
og pakkað í smápakkningar fyrir Evrópumarkað. Þessari verksmiðju
fylgdi autt verksmiðjuhús og þangað fluttum við kavíarverksmiðju
sem við rákum áður í Stykkishólmi.
Nú rekum við því þrjár verksmiðjur í Danmörku og þar er raunar
stærsti hluti okkar veltu í dag. Við lítum þó alltaf á Stykkishólm sem
höfuðstöðvarnar og vonandi fær starfsemi okkar í Hólminum uppreisn
æru, þótt seinna verði,“ segir Rakel, en tvö af fjórum börnum hennar
starfa við fyrirtækið. Sonurinn Sigurður Ágústsson er í Danmörku
og hefur yfirumsjón með rekstrinum þar og Ingibjörg, elsta dóttirin,
vinnur hjá fyrirtækinu fyrir vestan.
Er gott að reka fyrirtæki í Danmörku?
„Afskaplega gott. Í Danmörku er miklu jafnara rekstrarumhverfi, ekki
eins og hér þar sem krónan sveiflast til og frá, upp og niður. Það er
alltaf erfiðara að gera áætlanir í slíku umhverfi. Í Danmörku er allt
miklu stöðugra og vitanlega erum við nær markaðnum með sumt af
því sem við erum að gera. Svo getum við lært margt af Dönum, sem
eru mjög ólíkir okkur. Þeir eru miklu aðhaldsamari og nýtnari en við
og fara afar vel með hlutina. Þeir vinna mjög vel á meðan þeir eru í
vinnunni en hafa svo þá sérstöðu að þar eru allir farnir heim klukkan
þrjú og þú færð ekki nokkurn mann til þess að vinna yfirvinnu þar.
Þetta stöðuga umhverfi Dana er þó nokkuð sem við gætum lært mikið
af. Íslendingar eru meira skorpufólk, kannski er það þessi gamli vertíð-
arbragur, sem ennþá situr í okkur.“
Þrjár verksmiðjur í danmörku
„Ég hef aldrei leitt hugann sérstaklega að
jafnréttisbaráttu. reyndar hafa kannski ekki
margar konur verið sýnilegar í sjávarútvegi, en
ég er sannfærð um að margar eiginkonur manna
í rekstri hafa iðulega staðið við hlið þeirra.“
„Í Danmörku er miklu jafnara rekstrarumhverfi,
ekki eins og hér þar sem krónan sveiflast til og
frá, upp og niður.“
Rakel Olsen, starfandi stjórnarformaður Agustson ehf. Fyrirtækið er
í Stykkishólmi og hét áður Sigurður Ágústsson.