Frjáls verslun - 01.05.2008, Page 91
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8 91
j a F n r É t t i s M á l
leyndarmálið
Það gæti verið fróðlegt að kanna hversu hátt hlutfall
fjölskyldufólks í viðskiptalífinu er með heimilishjálp. Á
kaffistofum vinnustaða og á ráðstefnum segja konur hver
að annarri að þær séu með heimilishjálp. Þegar þessi mál
eru rædd lækka konur róminn og nánast hvísla þessu að
öðrum konum, rétt eins og þær séu að játa á sig glæp.
Öruggasta vísbendingin um að stoltið sé ekki raunverulegt
er vitaskuld sú staðreynd að þetta myndu konurnar aldrei
játa fyrir tengdamóður sinni. En einhverra hluta vegna
sé ég það heldur ekki alveg fyrir mér að karlmennirnir í
atvinnulífinu, ungu pabbarnir, ræði það mikið að þeir séu
með heimilishjálp. Vitaskuld er bara sjálfsagt og eðlilegt
að á heimilum þar sem báðir aðilar vinna fullan vinnudag
komi einhver að utan til þess að sinna þeim heimilisverkum
sem áður voru talin fullt starf kvenna. Og sennilega er þetta
skýringin á því að margar konur líta svo á að þær fái aðstoð
við heimilisverkin, fremur en að fjölskyldan fái hjálp.
Þú ert svo lítill
Lagalegt jafnrétti er bara eitt skref í áttina að jafnrétti
kynjanna. Viðhorfin skipta miklu, ef ekki mestu, þó lögin
séu auðvitað mjög mikilvæg. Þá þarf að líta til viðhorfa
beggja kynja, kvenna og karla. Það truflar jafnréttismálin að
nálgast þau út frá hugtakinu sök. Ýmist þá þannig að karlar
eigi sök á því hversu fáar konur eru í stjórnum stærstu fyrir-
tækjanna, eða að konur eru sagðar svo fáar vegna þess að
þær sæki ekki í valdastöður eða skorti jafnvel einhverja
eiginleika sem karlar hafa almennt. Það er vont ef jafnrétt-
ismálin snúast upp í það að finna sökudólg. Í smábarnasög-
unni af Stubbi eru það stóru bræðurnir Pétur og Óli sem
eru andstyggilegir við Stubb og finna eilífar afsakanir fyrir
því að hann megi ekki vera með þeim. Þeir segja:
„Þú mátt ekki fara með okkur í skólann, af því að þú
ert svo lítill.“
samspil kröfuréttar
og barneigna
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir lögfræðingur skrifar
hér um jafnréttismálin.
Þessi blanda er einhver besta uppskrift
af samviskubiti sem um getur og flestir
íslenskir foreldrar vinna eftir þessari
uppskrift á degi hverjum.
auðvitað finna konur að það er ekki
bæði hægt að vera eins og „aðþrengdu
eiginkonurnar“, sem dytta að orkídeum
í garðinum með spaða í annarri
hendi og hvítvínsglas í hinni þar sem
blómabeðið er lokahnykkurinn á
lýtalausu heimili, og að storma um
sigurreifar í fyrirtækjum landsins.