Frjáls verslun - 01.05.2008, Síða 92
92 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8
j a F n r É t t i s M á l
Eftir situr Stubbur með sárt ennið. Þessi afstaða bræðranna
kemur þeim þó iðulega í koll, þannig að smám saman læra þeir
að það borgar sig að hafa Stubb með. Konur í viðskiptalífinu eru
auðvitað ekki í hlutverki Stubbs. Þær eru engin fórnarlömb og það
er ekki þannig að markvisst sé verið að forðast að hafa þær með. En
ég hef heldur enga trú á því að smám saman verði niðurstaðan að
konum fjölgi eingöngu vegna þess að það borgar sig. Það verður að
liggja raunverulegur vilji til grundvallar breytingum. Og þess vegna
skiptir svo miklu að við getum greint viðhorfin í umræðunni, sem
byggja ekki alltaf á því sem rétt er. Öll þekkjum við t.d. staðhæfingar
um að konur sækist síður eftir ábyrgð, hvort sem er í viðskiptalífi,
stjórnmálum eða fjölmiðlum. Ég man sjálf eftir því þegar að ég
byrjaði í blaðamennsku hvað ég var hissa þegar konur reyndust vilj-
ugar til að láta hafa eitthvað eftir sér eða koma í viðtöl. Viðhorfin
skipta máli því við erum alla daga að fást við viðhorf til málefna og
manna.
Prófum að snúa dæminu við
Allt tal um að það eigi bara að líta á einstaklinga en ekki konur og
karla, útilokar þá staðreynd að kynin búa að einhverju leyti við ólíka
reynslu. Í daglegu lífi er heldur enginn einstaklingur eða aðili. Ef við
ætlum eingöngu að tala um einstaklinga verður erfitt að viðurkenna
staðreyndir á borð við þær að enn eru konur einhverra hluta vegna
langtum færri í stjórnum stærstu fyrirtækja landsins. Segir það okkur
ekki eitthvað um stöðuna að haldnar eru ráðstefnur um konur og
atvinnulíf, konur og stjórnmál og konur og fjölmiðla, og jafnvel
að sérstakt tölublað Frjálsar verslunar sé tileinkað konum. Ef við
heimfærum þetta upp á karlmenn þætti fólki yfirskrift ráðstefnanna
ekki alveg jafnaðkallandi. Og þá erum við komin að kjarnanum.
Það blasir við að staða kynjanna er enn ólík enda eru viðhorfin til
kynjanna enn ólík. Viðhorfsbreyting er næsta markmið.
Ertu að leita
að bestu
Vöxtunum?
E
in
n
, t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
3
12
.2
0
7
www.s24.isStofnaðu reikning... 533 2424 – Sætún 1
16,80%
Allt að 16,80%* vextir á óbundnum sparnaðarreikningum hjá S24
*m.v. vaxtatöflu 21.4.2008, óverðtryggðir reikningar.
Þrátt fyrir aukna menntun,
framsækna fæðingarorlofslöggjöf,
jafnréttislög og áætlanir um
sveigjanlegan vinnutíma er það
einhverra hluta vegna staðreynd
að barneignir virðast hafa
meiri áhrif á stöðu kvenna á
atvinnumarkaði en karla.
Það truflar jafnréttismálin að
nálgast þau út frá hugtakinu sök.
Ýmist þá þannig að karlar eigi
sök á því hversu fáar konur eru í
stjórnum stærstu fyrirtækjanna,
eða að konur eru sagðar svo fáar
vegna þess að þær sæki ekki í
valdastöður.
Ég man eftir að hafa setið á
kaffistofu lögbergs á námsárunum
með bekkjarsystrunum
í lagadeildinni þar sem
umræðuefnið var hvort væri nú
betra, að eiga börn á meðan verið
er í námi, strax eftir útskrift eða
eftir nokkur ár í starfi.