Frjáls verslun - 01.05.2008, Page 166
166 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8
Bókin Hvernig hún fer að þessu – einkenni kvenfrumkvöðla í rekstri
er athyglisverð. Þetta er bók fyrir stjórnendur, karla og konur, sem vilja
ná meiri árangri, hafa hug á að fara út í eigin rekstur og vilja hafa réttu
tækin í höndunum til að ná árangri fljótt og örugglega.
s t j ó r n u n a r b æ k u r
Það er vel við hæfi í þessu tölublaði Frjálsrar verslunar að fjalla um áhugaverða bók um einkenni kvenfrumkvöðla í rekstri. Margaret Heffernan, höfundur bókarinnar How she does it – How Women Entrepreneurs Are Changing the Rules
of Business, skoðaði nokkur fyrirtæki sem annaðhvort voru í eigu eða
undir stjórn kvenna.
Margaret setur fram nokkur einkenna kvenstjórnenda í bókinni.
Markmið hennar er að taka saman á einn
stað þau einkenni sem nýtast bæði körlum og
konum til að stofna og/eða stýra fyrirtækjum
á árangursríkan hátt sem allir geta verið stoltir
af.
Og hvað er það sem einkennir konur í
rekstri? Margt er fyrirsjáanlegt en það sem
kemur mest á óvart er að höfundurinn heldur
því fram að konur taki meiri áhættu á sínum
starfsferli en karlar. Ekki af vankunnáttu
heldur af þörf. Neyðin kennir naktri konu
að spinna.
Það kemur hins vegar ekki á óvart að
konur skuldsetja sig frekar persónulega til að
fjármagna fyrirtæki sín en karlar. Sumpart
vegna þess að þær eiga erfiðara með að nálgast
fjármagn en líka vegna þess að þær eru stað-
ráðnar í að ná árangri.
Margaret líkir kvenfrumkvöðlum við inn-
flytjendur. Þeir kunna að vera hraktir af
heimaslóðum, taka áhættu og af staðfestu
leita að einhverju nýju og betra í nýja heim-
inum. Það er ekki í boði að mistakast.
Fjölgun kvenfrumkvöðla
Kvenfrumkvöðlum er að fjölga. Margaret nefnir nokkrar ástæður,
eins og að menntunarstig kvenna fari hækkandi; frumkvöðlum
almennt fjölgi; það sé auðveldara en áður að stofna fyrirtæki; en síð-
ast en ekki síst vilji konur sjálfstæði og frelsi sem þær fá frekar í eigin
rekstri en sem starfsmenn fyrirtækja.
Markmið kvenna í eigin rekstri er ekki einasta að sanna sig heldur
að starfa á eigin forsendum. Konur hætta að
starfa fyrir aðra af því að þeim finnst erfitt að
hafa áhrif; þeim finnst þær vera ósýnilegar;
þær telja sig ekki fá athygli á fundum; þær
telja verk sín ekki hljóta verðskuldaða viður-
kenningu; þær telja gengið framhjá sér við
stöðuhækkanir og þær telja sig vanta sveigj-
anleika í vinnutíma.
Hvernig ná þær þessum árangri?
Sögur af frumkvöðlum í bókinni eru ansi
áhugaverðar. Þar koma fram þau einkenni
kvenfrumkvöðla sem höfundur segir skýra
árangur þeirra. Höfundur leggur áherslu á að
konur eigi auðveldara með að setja sig í spor
annarra en karlar. Það sé þýðingarmikið gagn-
vart starfsfólki en ekki síður nýtist sá eiginleiki
til að sjá fyrir þörfina á markaði; setja hluti í
samhengi og sjá stóru myndina sem er eitt
undirstöðuatriði sterkra leiðtoga.
konur sjá um innkaup heimila
Margaret heldur því einnig fram að konur
skilji auk þess konur betur en karlar og eigi því
svona Fer
hún að...
textI: unnur valborg hilmarsdóttir
Unnur Valborg Hilmarsdóttir skrifar að
þessu sinni um bókina How she does it –
How Women Entrepreneurs Are Changing
the Rules of Business eftir bandaríska rit-
höfundinn Margaret Heffernan.
eINKeNNI KveNfrumKvöðla í reKstrI ...